Víkurfréttir - 12.06.1987, Page 5
\>iKurt
juUit
Föstudagur 12. júní 1987 5
Ruglingsleg
vegamerking
Á fundi bæjarstjórnar
Keflavíkur í síðustu viku
vakti Drífa Sigfúsdóttir
bæjarfulltrúi athygli fundar-
manna á sérkennilegum
merkingum á gatnamótum
Flugstöðvarvegar og Turn-
ervegar (Flugvallarvegar).
Þar er greint frá því að 3 km.
séu til Njarðvíkur og jafn-
langt til Keflavíkur. Kom
fram í máli Drífu að verið
gæti að vegalengdin til
Njarðvíkur væri rétt, en hún
væri alröng varðandi Kefla-
vík, þar sem gatnamót þessi
eru rétt frá efstu húsunum í
Keflavík.
Vegna þessa mældi blaðið
vegalengdir og kom í ljós að
iðnaðarhúsin við Iðavelli í
Keflavík voru innan við 400
metra frá umræddum gatna-
mótum. Ef farið var stystu
leið til Njarðvíkur voru inn-
an við 2 km að Samkaup. Sé
farið eftir þeirri reglu að
mæla að pósthúsi, þá eru 2
km að pósthúsinu í Keflavík
ef ekið er niður Skólaveg. En
í Njarðvík er ekkert pósthús
og því er auðséð að báðar
þessar mælingar eru tómt
rugl.
Umrædd merking á gatnamótum Flugstöðvarvegar og Flugvallarvegar við Turner.
Ljósm.: epj.
Sjómannadagurinn
í Keflavík:
Hefðbund-
in hátiðar-
höld
Hátíðarhöld sjómanna-
dagsins í Keflavík og Njarð-
vík verða með hefðbundnu
sniði eins og undanfarin ár.
Hefjast þau með skemmti-
siglingu kl. 12:30 og er þess
vænst að fullorðnir sendi
ekki börnin ein.
Eftir hádegi hefjast síðan
hátíðarhöld við Keflavíkur-
höfn. Þegar blaðið fór i
prentun var dagskráin ekki
fullbúin og vísast því í götu-
auglýsingar.
I ár hefur nýtt sjómanna-
dagsráð tekið til starfa í
Keflavík og er það skipað
þeim Sigurbirni Björnssyni,
Kristjáni Ingibergssyni og
Ola Þór Valgeirssyni.
Soroptimistaklúbbur
Suðurnesja:
Blómasala
w
a
þriðjudag
Soroptimistaklúbbur Suð-
urnesja, sem er klúbbur
kvenna um öll Suðurnes
nema Keflavik og Grinda-
vik, mun ganga í hús á
þriðjudaginn, 16. júní, og
bjóða til sölu blóm.
Markmið klúbbsins er að
styðja við Þroskahjálp á Suð-
urnesjum og er blómasala
daginn fyrir 17. júní einmitt
gerð í því augnamiði. En
mörg undanfarin ár hafa þær
haft markmið þetta.