Víkurfréttir - 12.06.1987, Blaðsíða 8
Lesendasíðan
8 Föstudagur 12. júní 1987
Uttil
Til
hamingju.
Úli
Ég vil lýsa yfir ánægju
minni með þá röggsemd sem
Olafur Björnsson hefur hald-
ið uppi síðan hann tók við
störfum stjórnarformanns
Sjúkrahúss Keflavíkurlækn-
ishéraðs og Heilsugæslu-
stöðvarinnar. Hefur honum
tekist að framkvæma verk
sem forverar hans í starfi
hafa talað um, en ekki kom-
ið í framkvæmd.
Hér er átt við það að losa
borgarana við rándýran
lækni sem náði stundum allt
að hálfri milljón í mánaðar-
tekjur. Og lækka annan um á
annað hundrað þúsund í
mánaðarlaun. Þá stöndum
við ekki síður í þakkarskuld
við Olaf, ef hann losar stofn-
unina við þá rauðliða, sem
makað hafa þar krókinn
undanfarin ár.
Aðeins einn blettur er enn
eftir, sem þarf að hreinsa
upp, það er að losna með ein-
hverju móti við varaformann
stjórnarinnar. Hún sýndi
það og sannaði í síðasta blaði
að sögusagnir um hana eru á
rökum reistar.
En við formanninn vil ég
segja: „Áfram Oli, þú hefur
stuðning fyrir gerðum þín-
n
um.
Bjartur Sjáandason
Er íþróttahúsið
ekki fyrir alla
Keflvíkinga?
Ástæðan fyrir því að ég
sest niður og skrifa
nokkrar línur er sú stað-
reynd að íþróttahúsið í
Keflavík virðist hafa verið
byggt fyrir nokkra, en
ekki alla. Þar á ég við að
húsið er leigt eða lánað út
og ekkert tillit tekið til
hins almenna borgara,
sem eins og ég og fleiri,
erum ekki í íþróttafélög-
um eða vinna hjá fyrir-
tækjum sem eru nógu
sterk til að leigja allt hús-
ið fyrir starfsfólk sitt.
Þegar spurt er, fær
maður svör eins og „þú
getur komið á daginn“
eða „það er búið að leigja
út alla tímana og ekkert
hægt að gera“. Fyrir það
fyrsta er ég, eins og flestir
aðrir, að vinna á daginn,
við því seinna vil ég benda
þeim á sem ráða húsinu
þ.e.a.s. íþróttaráði og
bæjarstjórn að þeir hafa
gleymt svolitlu. Það er að
húsið var byggt fyrir alla
Keflvíkinga, en ekki fáa
útvalda, af ykkur.
í framhaldi af framan-
sögðu vil ég skora bæði á
íþróttaráð og bæjarstjórn
og þar með talinn bæjar-
stjórann, að breyta þessu
til betri vegar og vil ég
gera það að tillögu að
tveir tímar tvisvar í viku
verði settir við húsið, sem
væru fyrir alla sem vildu
nota það. Bara til þess að
tryggja að almenningur
gætí notið hússins,
Með von um úrbætur.
Annel Borgar Þorsteinsson
FEGRUNAR- OG HREINSUNARÁTAKIÐ
í fullum gangi
Bæjarbúar - athugið!
Starfsmenn Keflavíkurbæjar flytja fyrir
ykkur drasl að kostnaðarlausu. Aðeins að
hringja í Áhaldahús bæjarins,
í síma 1552.
Viðminnum á10%
málningarafsláttinn
í Jám og Skip, Dropan-
um og Litavali, sem gildir
út júnímánuð.
Þjóðhátíðardagurinn nálgast
Gerumfínt íkringum okkurfyrir17.júníog
látum þannig bæinn skarta sínu fegursta.
F53
.«531
Bæjarstjórinn í Keflavík
Erum
við ein-
hverjir
dónar?
Við erum hér nokkrir skip-
verjar, sem óskum eftir opin-
beru svari frá Guðfinni Sig-
urvinssyni, forseta bæjar-
stjórnar Keflavíkur, um það
hvort við séum einhverjir
dónar. Svo hlýtur að vera
fyrst hann segir að maður,
sem sýnir dónalega fram-
komu, sé að svara að sjó-
mannasið.
Ekki höfum við vitað til
þess að við værum meiri dón-
ar en landkrabbar, nema síð-
ur sé. Eru því yfirlýsingar á
borð við þá, sem Guðfinnur
gaf, mikiil blettur fyrir stétt
okkar, sem nauðsyníegt er að
hreinsa af. Sjóarar
Laddý.
fékkstu
Tilefni þessara skrifa
minna er greinarkorn Arn-
dísar Tómasdóttur í síðustu
Víkurfréttum. Arndís eða
Laddý, eins og flestir nefna
hana, ryðst þama fram rit-
völlinn af þvílíku ofsóknar-
brjálæði að spurningerhvort
hún hafi ekki brotið öll vel-
sæmismörk.
Annað eins bull og þvæla
hefur ekki sést á prenti lengi.
Enda raunar furða að nokk-
ur skuli taka slíkt til birting-
ar, jafnvel þó skrifað sé undir
fullu nafni. Eina haldbæra
skýringin fyrir skrifum þess-
um er að hún hafi skrifað
þetta eftir að hafa fengið
slæma martröð.
Vil ég ekki trúa að
óreyndu að þeir mætu menn
sem nú skipa meirihluta bæj-
arstjórnar Njarðvíkur geti
sætt sig við þá framkomu
sem hún hefur í frammi sem
fulltrúi þeirra í stjórn Sjúkra-
hússins og hún opinberaði
með bulli því sem birtist á
dögunum og ég hef áður
vitnað í. Finnst mér það vera
fyrir neðan virðingu þeirra
að láta flokksmann úr öðrum
flokki komast upp með slíkt.
Vegna ummæla hennar
um þá sem stundum vilja fela
sig bak við nafnleynd, kýs ég
þann háttinn á að þessu
sinni. Enda treysti ég henni
ekki fyrir þeirri vitneskju að
vita nafn mitt.
MI