Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.1988, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 17.03.1988, Blaðsíða 10
\fiKun 10 Fimmtudagur 17. mars 1988 Skrokkurinn umtalaði í Njarðvíkurslipp, sem fékk fyrir mörgum árum nafnið Brúsi SN-7 frá Njarðvík. Ljósm.: epj. 140 tonna bátur í smíðum í Njarðvík Nú í mörg ár hefur staðið uppi í Njarðvíkurslipp skrokk- ur af 140 tonna stálskipi sem fluttur var til landsins frá Noregi. A sínum tíma stóðu miklar deilur um skrokk þennan og töldu sumir embættismenn að hann fengist aldrei viðurkenndur þar sem hann hefði ekki komið rétta boðleið. Samkvæmt skipaskrá Sigl- ingamálastofnunar hefur nú fengist skráning á skrokki þessum sem 140 tonna skip í smíðum hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf., en hann er óseldur. 1 sömu skrá kemur einnig fram að hjá Herði hf. er 8 tonna bátur í smíðum, en sá bátur mun fara til Hafnar- fjarðar. Eru Grindvík- ingar komnir I smá- fiskadráp? Ovænt uppákoma sem varð á kútmagakvöldi Lionsklúbbs Grindavíkur um síðustu helgi, vakti athygli. Um var að ræða kútmaga af dverga-kyni, sem Hafsteinn Guðnason, fyrr- verandi skipstjóri, vakti athygli á. Eftir að Hafsteinn hafði vakið þessa athygli, var veislu- stjóri kvöldsins, Ellert Eiríks- son, fenginn til að ganga með hann um salinn og sýna. Eins Verðlaunasamkeppni um nafn á götu Bæjarstjórn Njarðvíkurauglýsireftirtillögum um nýtt nafn ágötuna sem liggur frá bæjarmörkum við Keflavík (Hafnargötu), um ytra hverfi og Fitjar (gamla Reykjanesbrautin), og mun liggja íbogafram hjá nýju gróðrarstöðinni og verksmiðjuhúsi Ramma hf. að Seylubraut skv. skipulagstillögum sem birtar voru á baksíðu frétta- bréfs Njarðvíkur. Tillögum skal skila til bæjarskrifstofu Njarðvíkur. Með tillögunum skal fylgja nafn höfundar í lokuðu umslagi. Skilafresturertil 31. mars n.k. og mun sérstök dómnefnd sem bæjarstjórn skipar, velja göt- unni nafn úr tillögum sem berast. Sú tillaga sem valin verður hlýtur 15.000 kr. verðlaun. Bæjarstjóri Nýja innimálningin frá Slippfélaginu BETT og MILTEX - er seld í.. . W\ Litaval Baldursgötu 14 - Keflavík - Sími 14737 Verslum þar sem málarameistari er til aðstoðar! Ef litli kútmaginn er borinn saman við hinn venjulega eða eld- spýtnastokkinn, er ekki nema von að menn spyrji, hvort Grindvík- ingar séu komnir í smáfiskadrápið? Ljósm.: epj. og sést á meðfylgjandi mynd er hér um mjög smáan kútmaga að ræða, bæði ef tekið er mið af eldspýtnastokknum sem sést einnig á myndinni, eða þeim kútmaga sem er úr þokkalega stórum þorski og liggur einnig á diskinum. Sagði Hafsteinn í samtali við blaðið að menn hefðu af þessu tilefni grínast um það hvort Grindvíkingar væru komnir í smáfiskadrápið. Þó sagði hann að það væri enn meira gaman við þetta að sá litli er unninn undir átu eins og sá stærri, þ.e. fylltur með til- heyrandi, og gætu menn gert sér í hugarlund hvað það hefði verið mikil vinna. Vildi Hafsteinn nota þetta tækifæri til að þakka Grind- víkingum fyrir frábært kvöld. Guðmundur Maríasson við eitt verka sinna. Guðmundur Maríasson Sýnir á BREKKU Þessa dagana stendur yfir myndlistarsýning á veitipga- staðnum Brekku í Kellavík. Er það myndlistarmaðurinn Guð- mundur Maríasson sem sýnir þar verk sín. Þetta er fyrsta einkasýning Guðmundar, en hann hefur tekið þátt í mörgum samsýn- ingum með fólki á vegurn Bað- stofunnar, en í þeim félagsskap hefur hann verið mjög virkur frá upphafi. En hvenærskyldi Guðmund- ur hafa byrjað að mála? Því svarar hann á eftirfarandi hátt: ,,Ég byrjaði á krafsinu strax og ég fór að staulast áfram“. Tilkynning til viðskiptamanna Hitaveitu Suðurnesja Lokanir standa yfir í öllum byggðar- lögum. Þeir sem hafa fengið gulan spjaldið mega eiga von á lokun eftir 4-5 daga. Skilvísi borgar sig. Stöndum saman og greiðum ávallt fyrir eindaga. Lokunargjald er nú kr. 1500. Dráttar- vextir 3.8%. Innheimtustjóri

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.