Víkurfréttir - 17.03.1988, Page 23
ViKurt
juttU
Fimmtudagur 17. mars 1988 23
Bæjarstjórn Keflavíkur: •
„Eigum að hætta að eyrnamerkja"
Miklar umræður urðu á
fundi bæjarstjórnar Keflavík-
ur síðasta þriðjudag vegna tii-
lögu sem Garðar Oddgeirsson,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, flutti á fundinum.
En til umræðu var hækkun
dagvistargjalda.
Gekk tillaga Garðars út á
það að allir íbúar Keflavíkur
sem fengju úthlutað dagheim-
ilisplássum ættu að njóta sam-
mælis varðandi gjaldtöku og
því lagði hann til að aðeins ein
gjaldskrá gilti en ekki lægri
fyrir einstæða foreldra en aðra.
Sagði hann m.a. undirþess-
um lið eftirfarandi: „Við eig-
um að hætta að eyrnarmerkja
menn eftir því hvort þeir sofi
hjá löglega eða ólöglega.“ Atti
hann þar við að einstæðir for-
eldrar væru í raun ekki til.
I umræðum annarra bæjar-
fulltrúa kom fram að í dag
væri svo komið að einstæðir
foreldrar nytu einir dagheim-
ilisplássa í Keflavík með
tveimur undantekningum.
Meira en það, á biðlista væru
um 30 manns og væri það um
árs bið.
Töldu sumir bæjarfulltrúar
s.s. Magnús Haraldssonaðhér
væri um fljótræði að ræða hjá
Garðari og því væri frekar að
menn reyndu að uppræta ef
um misnotkun væri að ræða af
hálfu þeirra sem teldu sig vera
einstæða.
Að lokum var tillaga Garð-
ars felld með 5 atkvæðum gegn
2, þ.e. atkvæðum fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins gegn at-
kvæðum Alþýðuflokksfulltrú-
anna en fulltrúar Framsókn-
arflokksins sátu hjá.
Smáauglýsingar
Óska eftir
að ráða unga stúlku til að gæta
2ja barna frá kl. 9 til 12. Uppl. í
síma 12874 eftir kl. 18.
Einbýlishús til sölu
136 m2 einbýlishús til sölu í
Sandgerði. Uppl. í síma 37627.
Til sölu
eldhúsinnrétting ásamt eldun-
ar-og blöndunartækjum. Uppl.
í síma 14058 eftir kl. 20.
Til sölu
Af sérstökum ástæðum ereftir-
farandi til sölu: Ignis ísskápur
14 ára i góðu standi, Electra
eldavél, þarfnast lagfæringar, 3
olíufylltir rafmagnsofnar,
2x500 w og 1x800 w, sem nýir.
Britax barnabílstóll m/5 punkta
öryggi, og barnarimlarúm und-
an einu barni. Uppl. i símum
13181 og 13228, eftir kl. 17.
Öska eftir
3ja herb. ibúð til leigu í Kefla-
vík eða Njarðvík frá 1. maí, í
lengri tima. Uppl. í sima 27318
eftir kl. 20.
Til leigu
3ja herb. ibúð, 6 mán. fyrirfram.
Uppl. i síma 14156 á föstudag
frá kl. 13-18.
Til sölu
Falleg útskorin svefnherbergis-
húsgögn úr dökkum við. Uppl. í
síma 14871.
Til sölu
barnakojur með skúffum og
hillum undir neðri koju, áföst-
um hillum innan í koju. Bóka-
hilla með skáp, skrifborð með 2
stólum. Selst sem sett. Uppl. í
síma 14192 eftir kl. 18. Tilboð.
Tapað - Fundið
Herra gullhringur tapaðist sl.
föstudag 11/3, sennilega hjá
Verslunarbankánum. Uppl. í
sima 13498. Fundarlaun.
Lyklakippa tapaðist
á Suöurgötu í Keflavík. Finn-
andi vinsamlegast skili henni á
skrifstofu Víkur-frétta. Fundar-
laun.
íbúö óskast
2ja herb. íbúð óskast til leigu i
Y-Njarðvik sem fyrst. Uppl. í
sima 12249 eftir kl. 19.
Til sölu
ísskápur 135x60 og hillusam-
stæða. Uppl. í síma 13166.
Úrvalshey til sölu
Uppl. i sima 37572.
Til sölu barnavagn
Notaður barnavagn til sölu,
verð kr. 5000. Uppl. í síma
14744.
Bangsi bestaskinn
á betra verði!
Þegar Bangsi Bestaskinn syngur og
talar, lifnar hann við, því bæði munn-
urinn og augun hreyfast. Honum
fylgir snælda með skemmtilegu æv-
intýri og falleg myndabók til að
skoða.
Takmarkað magn. Kr. 2.940.
F.
rístund
Holtsgötu 26
Njarðvík
Simi 12002
Dúbl í
horn!
Billiard
(snóker) er
skemmtileg
íþrótt sem
allir geta
leikið, ungir
sem eldri. Leiðbeinendur
ef óskað er. Sjö 12 feta borð
og kjuðar fyrir alla.
OPIÐ
alla daga
frá kl.
11.30-23.30.
Pantið tíma
eða komið.
Knattborðsstofa Suðumesja
Grófinni - Keflavík - Sími 13822
Kúfiskbeita á
Suðurnesjum
Til sölu fyrsta flokks kúfiskbeita. Beitan er
afgreidd hjá vöruhúsi Skipaafgreiðslu
Suöurnesja, Keflavík, sími 14042.
Upplýsingar í síma 94-6292 og 94-6227 á
kvöldin.
BYLGJAN SF., Suðureyri
Til fermingargjafa
Sængur og koddar
Rúmfatasett frá kr. 900
Værðarvoðir
Straufríir damaskdúkar
Veisludúkar
Handgerðir dúkar
LÍSA
Hafnargötu 25
Sími 12545
Árshétíð
Golfklúbbs Suðurnesja
verður haldin í Golfskálanum, Leiru, laug-
ardaginn 19. mars. Húsiö opnað kl. 19 meö
fordrykk.
Borðhald - Skemmtiatriði - Happdrætti
Góðir vinningar - Dans fram eftir nóttu.
Forsala aðgöngumiða í Golfskálanum og í
síma 14100 í dag og kvöld,-
Skemmtinefndin
Leiðbeinendur
Leiðbeinendur óskast við íþrótta- og leikjaskóla
Keflavíkur, sem starfræktur verður í júní, júlí og
ágúst. - æskilegt er að umsækjendur hafi íþrótta-
kennarapróf.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Nánari uppl. gefur Jón Jóhannsson í íþróttahúsi
Keflavíkur, sími 11771.
íþróttaráð