Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.1988, Page 4

Víkurfréttir - 02.06.1988, Page 4
mun 4 Fimmtudagur 2. júní 1988 | júttU SJOMANNADAGURINN: Hefðbundin hátíðarhöld Hátíðarhöld sjómannadags- ins verða með hefðbundnu sniði hér á Suðurnesjum en blaðinu er kunnugt um sér- staka hátíðardagskrá á fjórum stöðum og lítur hún þannig út: GARÐUR: Kl. 10 hefst dagskráin við höfnina. Þar verður boðið upp á bátsferð og ýmislegt fleira á vegum Slysavarnasveitarinnar Ægis. Kl. 13:30 verður sjó- mannamessa í Útskálakirkju og blómsveigur lagður að minnismerki óþekkta sjó- mannsins. Kaffisala hefst í samkomu- húsinu að lokinni messu og þar verður aldraður sjómaður heiðraður. Kl. 16 hefjast skemmtiatriði við barnaskól- ann í umsjón Verkalýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps. GRINDAVÍK: Dagskráin hefst þar á laug- ardeginum með skemmtisigl- ingu kl. 16:30ogsíðanerkapp- róður kl. 20:00. A sunnudeginum hefst dag- skráin með skrúðgöngu frá Sjómannaheimilinu kl. 10. Hálftíma síðar eða kl. 10:30 verður lagður blómsveigur á minnisvarða drukknaðra sjó- manna og kl. 11 er sjómanna- messa. Kl. 14 fara fram ávörp út- gerðarmanna og sjómanna, aldraðir verða heiðraðir, afla- kóngur heiðraður, aflaverð- mætakóngur heiðraður. Verð- launaafhending fyrir kappróð- ur, boðhlaup, reiptog og koddaslagur. Vélstjórar og skipstjórar etja síðan kappi í knattspyrnu á íþróttavellinum kl. 18, en dagskránni lýkur með dans- leik í Festi, sem hefst kl. 22:00. KEFLAVÍK: Keflvíkingar hefja dag- skrána kl. 9 með því að draga íslenska fánann að húni við minnismerki sjómanna og við höfnina. Kl. 11 er síðan sjó- mannamessa í Keflavíkur- kirkju. Hin geysivinsæla skemmtisigling hefst síðan kl. 12:30 og er farið bæði frá Keflavikur- og Njarðvíkur- höfn en aðeins komið að í Keflavík. Hátíðarhöldin við Keflavík- urhöfn hefjast síðan kl. 14með hátíðarræðu, sem fulltrúi Vísis, félags skipstjórnar- manna á Suðurnesjum, flytur. Síðan tekur við heiðrun aldr- aðra sjómanna, aflakóngur heiðraður, kappróður, stakka- sund, koddaslagur, reiptog og e.t.v. eitt óvænt dagskrár- atriði. Kaffisala verður að þessu sinni í efri salnum á Glóðinni og stendur hún yfirfrá kl. 14 til 18. SANDGERÐI: Skemmtisigling með börnin hefst kl. 9:30 um morguninn í Sandgerði en messan hefst kl. 11. Kl. 13:15 hefst skrúðganga en gengið er frá björgunarstöð Sigurvonar að höfninni, en eins og venjulega sér Sigurvon um dagskrána. Eru hátíðar- höldin sett kl. 13:30. Þarverð- ur flutt hátíðarræða, aldraður sjómaður verður heiðraður og minnst drukknaðra sjómanna. Þá verða afhent björgunar- verðlaun og að því loknu eru skemmtiatriði. Kappróður hefst síðan kl. 17 og meðan dagskráin stendur yfir við höfnina er boðið upp á kaffi í Samkomuhúsinu. ^sHÓTEL KEFlAVtK BÍLALEIGA í 2 ár hefur Hótel Keflavík verið opið fyrir gesti okkar. Jafnt og þétt aukum við þjónustu okkar og búum vel að gestum í 32 vel búnum herbergjum hótelsins. Bílaleiga er eitt skref í viðbót fyrir þá og FYRIR ÞIG. HÓTEL HEIMILI FYRIR GESTI OKKAR BÍLL FYRIR ÞIG HHÓTEL KEHAVÍK VIÐ ERUM VIÐ SÍMANN 24 TÍMA Á SÓLAHRING. BÍLALEIGA Vatnsnesvegi 12 - Simi 14377 Keflavík: Lóðarúthlutun án samþykkis eiganda Miðvikudaginn ll. maí var tekið fyrir i bygginganefnd Keflavíkur ósk frá Gleraugna- verslun Keflavíkur og Nesbók um 5 metra lóðarauka til norð- urs við lóð þeirra að Hafnar- götu 45 í Keflavík. Fyrir lágu meðmæli frá Skipulagi ríkisins varðandi breytingu þessa. A fundinum samþykkti bygginganefnd erindi þetta. Þegar fundargerðin kom síðan fyrir bæjarstjórn Keflavíkur á þriðjudag í síðustu viku var bæjarstjórnin þessu ekki sam- mála enda virðist lóðaúthlutun þessi hafa verið gerð án sam- ráðs við bæjarráð, þó svo að viðkomandi lóð, þ.e. sú nr.43, sé í eigu Keflavíkurbæjar. Var því samþykkt að vísa máli þessu til bæjarráðs til nánari umfjöllunar. Fiskmark- aðimir þrír samtengdir Nú er verið að vinna að samtengingu fiskmarkaðanna þriggja við Faxaflóa um tölvu. Svona lita núverandi fiskkassar frá Fiskmarkaði Suðurncsja út. Ljósm.: epj. Ef af yrði verður samtenging- unni háttað á líka vegu og nú er hjá FiskmarkaðiSuðurnesja varðandi Njarðvík, Grindavík og Þorlákshöfn. Gæti þá t.a.m. fiskkaupandi staðsettur í Reykjavík boðið i fisk íNjarð- vík og öfugt. Þá eru þessir aðilar ásamt fiskmarkaðinum á Norður- landi og tveimur plastkassa- verksmiðjum að huga aðsam- vinnu við gerð plastkassa fyrir fiskiskipaflotann og yrði þá svipaður háttur hafður áog nú er með ölkassa, þ.e. gamlir kassar eru lagðir inn upp í nýja. Eru viðræður um mál þetta á byrjunarstigi.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.