Víkurfréttir - 02.06.1988, Blaðsíða 24
V/KUR
fuOit
Fimmtudagur 2. júní 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. - Síniar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
NJARÐVIK:
Megin áhersla lögð á
fegrun og snyrtingu
Miklar framkvæmdir verða
hjá Njarðvíkurbæ i sumar að
sögn Odds Einarssonar bæjar-
stjóra. Það verk, sem er áber-
andi stærst, er viðbygging
grunnskólans en innivinna er
að hefjast þar.
Þó verður aðaláherslan lögð
á fegrun ogsnyrtingu bæjarfél-
agsins. „Munum við taka til
hendinni víða í bænum," sagði
Oddur. Verða steyptir kant-
steinar með þeim götum sem í
fyrra var lagt slitlag á og í
framhaldi af því verður ráðist í
gerð gangstétta.
Gerðar verða graseyjur víða
um bæinn ogsvæðið umhverfis
Ytri-Njarðvíkurkirkju mun
gjörbreyta um svip í þessari og
næstu viku. Þá er verið að út-
búa grænt svæði fyrir norðan
Herðubreið og Skjaldbreið en
það svæði verður eitt það fyrsta
af grænum svæðum, sem ekið
verður í nothæfum jarðvegi úr
uppgreftri úrgötustæðum, síð-
an sléttað og loks sáð í. Verða
nokkur slík svæði, bæði stór og
smá, tekin til slíkra fram-
kvæmda í sumar.
Bæjarfélagið stendur sjálft
að gatnagerð á tveimur stöðum
þ.e. framlengingu Seylubraut-
ar í átt að ytra hverfinu en
þeirri götu hefur ekki enn verið
gellð nafn, og síðan er það
framlenging Gónhóls. Þá eru
verktakar að annast gatna-
framkvæmdir í Móahverfi.
Sér Meistarahús um hús og
götu í Starmóa og Steinsmíði
er meðsamskonar verk í Lyng-
móa. En bærinn sjálfur mun
sjálfur sjá um gatnafram-
kvæmdir í Lágmóa, þar sem
einstaklingar munu byggja hús
en hvað verður með Kjarrmóa
er enn ekki ákveðið en Oddur
sagðist vænta að þar fengist
einn byggingaraðili til að
byggja megnið af húsunum en
bærinn sæi síðan um gatna-
gerð.
Grindavík:
75 metra
viðlegu-
kantur
í bygg-
ingu
Hafin er bryggjusmíði aust-
an við miðgarðinn svonefnda í
Grindavíkurhöfn. Að sögn
Jóns Gunnars Stefánssonar,
bæjarstjóra, liggur fjárveiting
upp á 30 milljónir króna fyrir
verki þessu en gert er ráð fyrir
75 metra löngum viðlegukanti.
Er stefnt að því að fljótlega á
næsta ári geti kantur þessi orð-
ið nothæfur og myndi þá nýt-
ast á næstu vetrarvertíð.
50 templ-
arar á stór-
stúku-
þingi í
Keflavík
í gær hófst í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja unglinga-
reglu- og stórstúkuþing. Gert
er ráð fyrir að stórstúkuþing
þetta sæki 50fulltrúarvíðsveg-
ar að. I sambandi við þingið
verður haldinn opinn og al-
mennur fundur í Fjölbrauta-
skólanum í kvöld kl. 20:30 þar
sem landlæknir, Olafur Olafs-
son, og heilbrigðisráðherra,
Guðmundur Bjarnason, verða
framsögumenn.
A morgun, föstudag, verða
svo heiðraðir nokkrir læknar,
alþingismenn og kirkjunnar
menn, sem staðið hafa framar-
lega í áfengisbaráttunni að
undanförnu.
Verður ekki barinn opi i
á bak við . . . ?
Unnið er að gerð grassvæðis norðan við Skjaldbreið og Herðubreið.
Miklar fegrunarfrantkvæmdir eru við Y-Njarðvíkurkirkju.
Ljósmyndir: epj
Lést af völdum
umferðarslyss
22ja ára gamall Keflvík-
ingur, Erlingur Björnsson,
Greniteig 39, lést síðastlið-
ið mánudagskvöld á gjör-
1 1 m Æ
r V
Erlingur Björnsson
gæsludeild Borgarspítalans
i Reykjavík eftir bílslys,
sem hann lenti í aðfaranótt
sunnudagsins.
Erlingur var að aka heim
á leið um þrjúleytið aðfara-
nótt sunnudagsins. Er
hann var staddur um 100
metra sunnan við Kópa-
vogsbrúna, á Hafnarfjarð-
arvegi, missti hann stjórn á
bifreið sinni, sem hafnaði á
ljósastaur. Var hann einn í
bílnum.
Erlingur var þegar flutt-
ur á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans í Reykjavík,
þar sem hann lést. Hann
var einhleypur og barnlaus
og bjó i foreldrahúsum.
Fasteignaviðskipti á Suðurnesjum:
Nýjar reglur
og ekkert
skoðunargjald
Félag fasteignasala á
Suðurnesjum birtir annars
staðar í blaðinu auglýsingu
um brevtt form á sölu fast-
eigna og skipa á Suðurnesj-
um. Eru breytingar þessar
að mestu leyti þær sömu og
gilda hjá fasteignasölum á
höfuðborgarsvæðinu, þó
með þeirri undantekningu
að hér verður ekki krafist
kr. 5.600 sem skoðunar-
gjald.
Helstu breytingarnareru
að nú þurfa að liggja fyrir
ýmis gögn áður en íbúðin er
sett á sölu og eins þarf að
samþykkja söluumboð til
fasteignasalans, þar sem
fram koma ákveðnar upp-
lýsingar.
Verður nánar greint frá
þessu máli í næsta tölublaði
Víkurfrétta. Að öðru leyti
er fólki bent á auglýsing-
una, sem birtist á annarri
síðu blaðsins.