Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.1988, Side 13

Víkurfréttir - 02.06.1988, Side 13
Handhal'ar íbúðanna þriggja ásamt Halldóri Ragnarssyni (lengst t.h.) og Sigurbirni Björnssyni (lengst t.v.). NÝIR VERKAMANNABÚSTAÐIR í KEFLAVÍK: Byggingartími aðeins tveir mán- uðir á íbúð Byggingaverktakafyrirtæk- ið Húsanes s.f. aflienti stjórn Verkamannabústaða í Kefla- vík þrjá nýja bústaði á laugar- dag og samtímis afhenti stjórnin bústaðina til þriggja fjölskyldna. Um er að ræða fyrsta raðhúsið sem stjórn Verkamannabústaða í Kefla- vík lætur byggja. I raðhúsi þessu eru þrjár ibúir, nr. la, b og c við Heiðarholt í Keflavík. Þeir íbúar, sem fengu þarna íbúðir, eru Geir Sigurðsson og Hafdís Karlsdóttir, Ásta Sig- urðardóttir og Kjartan Guð- finnsson og Sigfús Axfjörð Sigfússon og Ingibjörg Magn- úsdóttir. Af hálfu Húsaness kom það í hlut Halldórs Ragn- arssonar að afhenda íbúðirnar sem byggingaraðili og fyrir hönd stjórnarinnar veitti Sig- urbjörn Björnsson formaður þeim viðtöku. Hinn nýi verkamannabústaður að Heiðarholti la, b og c, sem risu upp á mettíma. Fyrstu íbúarnir taka við lyklun- um af íbúðum sínum. Eru íbúðir þessar 105 ferm. að stærð og hófust bygginga- framkvæmdir í desember og hafa því aðeins tekið um 6 mánuði eða 2 mánuði að jafn- aði á hverja ibúð. Hefur verið samið við Húsanes um bygg- ingu annars slíks húss við eijda þessa húss, einnig með þremur íbúðum. Er reiknað með að það verði tilbúiðtil afhending- ar fljótlega á næsta ári. Ödýrasti ísinn í bænum • Matseðillinn á Boggabar heldur áfram að stækka • Nú bjóðum við ljúffengan ís í box- um og í brauðformi með eða án dýfu P.S. Það tekur okkur aðeins eina mínútu að afgreiða eina pítu! /1 nd Minnum ykkur á kaffihlað- borðið á sjómannadaginn kl. 14-18 i efri sal. Stjórn vcrkamannubústaða í Keflavík ásamt forráðamönnum Húsaness sf. F.v.: Júlíus Högnason, Her- mann Ragnarsson, Halldór Ragnarsson, Sigurbjörn Björnsson, Jón A. Jónsson, Halldór Gunnlaugsson, Hólmar Magnússon, Anna Margrét Guðmundsdóttir og Margeir Þorgeirsson. Ljósmyndir:epj. „í lilefni af „Vordög- um Vigdísar" hafa kenn- arar og nemendur grunn- skólunnu tekið að sér fegrunaryerkefni á svæðinu. Á efri mynd- inni sjást nemendur frá Grunnskóla Njarðvíkur ásamt Sigrúnu Stefáns- dóttur í Selskógi. Til hliðar sjást kennarar Holtaskóla planta lúpín- um við nýju Reykjancs- brautina í átt að Leifs- stöð. - Ljósmyndir: hbb. Sumarvörur fvrir siómannadag /• Fallegir sumarjakkar- og frakkar • Stuttbuxur - Bermudabuxur og venjulegar buxur • Sjóliðapeysur og sweatshirt • Bolir í ótrúlegu úrvali • Mikið til af leður- og rúskinnsfatnaði öskum sjómönnum til hamingju með daginn PomWm Hafnargötu 19 - Sími 12973 , Vordagar Vigdísar“ \fiKUn jUUit \IIKUR Fimmtudagur 2. júní 1988 13 PLONTUSALA DRANGAVÖLLUM 3 KEFLAVÍK ATH: G A R Ð A Ú Ð U N STURLAUGS ÓLAFSSONAR Fjölbreytt úrval af garðplöntum. Tré, mnnar og limgerði frá Skógrækt ríkisins. Blóm, rósir og kvistir frá Grímsstöðum í Hveragerði. Lífrænn áburður. Vikur og blómaker. Opið virka daga frá kl. 13-22, laugar- daga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 13-17. Sama verð og í Reykjavík E Nota eingöngu hættulítil efni sem náð hafa bestum ár- angri við eyðingu sníkjudýra á plöntunum, Permaset og Triton, sem límir efnið við plönturnar. 100% árangur. Úða með nýjustu áhöldum. Pantið tímanlega. Uppl. í síma 12794 og 11588 á Plöntusölunni. Ath. Best að hringja á kvöldin. - Fljót og góð þjónusta.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.