Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.1988, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 02.06.1988, Blaðsíða 14
Erlendu gestirnir ásamt fulltrúum Sigurvonar og Hannesi Þ. Hafstein, framkvæmdastjóra SVFÍ, við skut fyrsta róðrar- og seglbjörgunarbáts slysavarnafélagsins, Þorstein, sem nú er hýstur í fyrstu björg- unarstöð landsins í Sandgerði. mun juUii Hannes Þ. Hafstein ásamt enskum fulltrúum frá því félagi sem átti Þorstein áður en hann var keyptur til Islands 1929. Ljósm.: epj. Sandgerði: Erlendir slysavamafulltrú- ar í heimsókn hjá Sigurvon Sendum sjómönnum á Suður- nesjum okkar bestu kveðjur í tilefni sjómannadagsins. Útgerðarfélagið Njörður hf. Oskum sjómönnum til hamingju með daginn ÍSLENSKUR GÆÐAFISKUR HF. Njarðvík Sendurn sjómönnum hestu hátíðaróskir í tilefni sjómannadagsins. Hraðfrystihús Keflavíkur hf. Sendum sjómönnum hestu hátíðaróskir í tilefni sjómannadagsins. Skipaafgreiðsla Suðurnesja sf. Sendum sjómönnum hestu hátíðaróskir í tilefni sjómannadagsins. Valbjörn hf. og Jón Erlingsson hf. Sandgerði Sendum sjómönnum hestu hátíðaróskir í tilefni sjómannadagsins. Miðnes hf. Sandgerði Síðasta sunnudag heimsóttu 35 erlendir slysavarnafulltrúar slysavarnadeildina Sigurvon í Sandgerði. Gestir þessir, sem eru frá Norðurlöndum og nokkrum öðrum Evrópulönd- um, voru hér á landi í tilefni af landsþingi Slysavarnafélags Islands og 60 ára afmæli þess. Aður en þeir komu til Sand- gerðis heimsóttu þeir Bláa lón- ið en í Sandgerði skoðuðu þeir björgunarstöðina og snæddu þar hádegisverð, sem var sjáv- arréttahlaðborð frá Vitanum. Fararstjóri með hópnum var Hannes Þ. Hafstein, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafél- ags Islands. Njörður hf., Sandgerði: 150 tonna bátur í smíðum á ísafirði Senn hefst smíði á 150 tonna, 26 metra báti fyrir Ut- gerðarfélagið Njörð h.f. í Sandgerði hjá Skipasmíðastöð Marselíusar h.f. á Isafirði, að sögn blaðsins Bæjarins besta. Kemur fram í blaði þessu að samþykki fyrir smíðinni sé löngu komið en nú standi að- eins á svari frá Fiskveiðasjóði. Hefur sá sjóður ekki afgreitt neinar beiðnir frá áramótum, nema fyrir hin svokölluðu portúgölsku skip. Verður hafist handa um smíðina um leið og leyfi Fisk- veiðasjóðs berst en áætlað er að smíði skipsins taki um þrettán mánuði. Ríkið heimtar arð af engu Ríkið hefur farið þess á leit við Hitaveitu Suðurnesja að fá greiddan arð af hagnaði fyrir- tækisins. Samkvæmt útreikn- ingi HS gæti þetta numið 18 milljónum króna. Hefur stjórn HS alfarið hafnað kröfum þessum. Kom fram á fundi bæjarstjórnar Keflavíkur nýverið að ríkið, sem samkvæmt Iögum ætti 20% hlutafjár, hefði þó aldrei lagt krónu í fyrirtækið.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.