Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.1988, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 02.06.1988, Blaðsíða 15
\>iKun jutU% Fimmtudagur 2. júní 1988 15 Knattspyrnufélagið Víðir, Garði: Sala happ- drættis- miða gengur vel Knattspyrnufélagið Víðir stendur um þessar mundir fyrir happdrætti. Miðana selja þeir á leikjum en einnig mun vera hægt að kaupa miða utan vallarsvæðisins í Garði. Aðal- vinningur í þessu happdrætti er Mitsubishi Colt EXE ’88. Þá eru einnig fjórar utanlands- ferðir í boði með Arnarflugi á kr._ 30.000 hver. í stuttu spjalli, sem Víkur- fréttir áttu við Jónatan Ingi- marsson, kom fram að sala á happdrættismiðunum hefur gengið vel en þeir eru tiltölu- lega nýbyrjaðir að selja. Ut- gefnir miðar eru 1200 og verð- urdregiðþann 19.júní. Erekki málið að taka upp 1000 krónur og fá sér miða? Keflavík: Ný verka- lýðshöll senn Hjólin snéru upp í loft er bíllinn stöðvaðist utan vegar á Miðnesheiði. Ljósm.: epj. Bflbeltín björguðu Bílvelta varð á Miðnesheiði á laugardagskvöld. Sluppu þau sem í bílnum voru án alv- arlegra meiðsla en bifreiðin er trúlega ónýt á eftir. Atti slysið sér stað rétt fyrir utan Mánagrund. Virðist öku- maður hafa misst vald á bif- reiðinni, sem var á leið til Sandgerðis skömmu eftir að hann kom inn á klæðningu sem nýbúið var að leggja og því nokkuð hættuleg, ef ekki er ek- ið eftir þeim umferðarleiðbein- ingum sem þar voru. Var aug- ljóst áummerkjum ávettvangi að ökumaður hafði ekið utan í kantinum smá spöl áður en bifreiðin valt og á þeim kafla m.a. lent á stút frá hitaveitunni sem þarna er. Er lögregla og sjúkralið kom á vettvang voru þær, sem í bílnum voru , búnar að koma sér út úr honum með hjálp veg- farenda, en talið er að öryggis- beltin hafi þarna komið í veg fyrir stórslys. Er talið að orsök óhappsins megi rekja til reynsluleysis ökumanns, sem hafði aðeins haft ökuréttindi í 1 dag. byggð Hafinn er undirbúningur að byggingu nýs húss við endann á Félagsbíói í Keflavík, þar sem húsið Tjarnargata 6 stend- ur nú, en Verkalýðs- og sjó- mannafélag Keflavíkur og ná- grennis keypti húsið fyrr á þessu ári. Verður nýbygging þessi í eigu Lífeyrissjóðs verka- lýðsfélaga á Suðurnesjum og nokkurra verkalýðsfélaga, þ.á. m. VSFK, Verkakvennafél- agsins, Iðnsveinafélagsins o.fl. Að sögn Sigurbjörns Björnssonar, framkvæmda- stjóra VSFK, mun með húsi þessu verða gerð stækkun á sviði Félagsbíós sem, eins og kunnugt er, er í eigu VSFK. Þá yrði í þessu nýja húsi öll starf- semi umræddra verkalýðsfél- aga og lífeyrissjóðsins. Er bygging þessi nú hjá skipulagsnefnd Keflavíkur- bæjar en reiknað er með að byggingin verði staðsett þvert á enda bíósins í sömu bygg- ingalínu og Sparisjóðshúsið nýja og hús Bústoðar eru nú. Óskum sjómönnum til hamingju með daginn. Fiskanes hf. Grindavík Óskum sjómönnum til hamingju með daginn. Happasæll sf. Básvegi 1 - Keflavík Óskum sjómönnum til hamingju með daginn. Stafnes hf. Njarðvík Athugið breyttan útkallssíma hjá lögreglunni í Keflavík frá 1. júní 1988: Rannsóknardeild................................ 15510 Umferðarmál ................................... 15514 Boðunardeild .................................. 15520 Yfirlögregluþjónn Þórir Maronsson ............. 15515 Aðstoðaryfirlögregluþjónn Karl Hermannsson .... 15516 Lögreglufulltrúi John Hill .................... 15518 Lögreglufulltrúi Óskar Þórmundsson............. 15519 Lögreglufulltrúi Herbert Árnason .............. 15520 Varðstjóri Guðfinnur Bergsson ................. 15520 Rannsóknarlögreglumaður Víkingur Sveinsson ... 15521 Rannsóknarlögreglumaður Rúnar Lúðvíksson .... 15514 Rannsóknarlögreglumaður Jóhannes Jensson .... 15522 Lögreglan í Keflavík

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.