Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.06.1988, Síða 19

Víkurfréttir - 02.06.1988, Síða 19
mmimu* Dunlop-mótið í golfi: Óskar öryggið uppmálað Metþátttaka varð í Dunlop- mótinu í golfi, sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi. 128 kylfingar luku keppni og börðust við hvítu kúluna í 36 holur. Oskar Sæm- undsson GR sigraði örugglega án forgjafar, kom inn á pari vallarins, 144 höggum, fimm höggum á undan Gunnari Sig- urðssyni GR. í 3.-4. sæti komu svo Hilmar Björgvinsson GS og Sigurður Pétursson GR á 150 höggum og fimmta besta skor átti Björn Víkingur Skúlason GS, 151 högg. Hilmar byrjaði mjög vel seinni daginn og var kominn í forystu eftir sex holur, þá 3 undir pari. Hann missti síðan aðeins flugið og mistök á síð- ustu holu kostuðu hann einnig annað sætið. í keppni með forgjöf sigraði Friðgeir Guðnason GR. Aðal- steinn Ingvarsson NK varð annar og Oskar Sæmundsson þriðji. Þeir voruallirmeðsama höggafjölda, 136 högg en árangur á síðustu 3 holunum réð röðinni. Aukaverðlaun fyrir að vera næst holu á 8. og 16. flöt hlutu Arnar Guðmundsson GR, 2,41 m, og Ragnar Þ. Ragnars- son GL, 1,10 m frá holu. Aukaverðlaun, veglegt golf- sett frá Austurbakka hf., um- boðsaðila Dunlop, átti að veita þeim sem færi holu í höggi í mótinu. Ef enginn næði því skyldi dregið úr nöfnum þátt- takenda í mótslok. Geirmund- ur Sigvaldason, Golfklúbbi Suðurnesja, fór holu í höggi á 8. braut en í þriðja höggi, því fyrst hafði hann slegið kúlu sinni út fyrir völlinn. Þetta er því hola í höggi en viðurkenn- ist ekki sem slík. í sárabætur afhenti Árni Þ. Árnason í Austurbakka Geirmundi kúlukassa. Þegar verðlaun höfðu verið afhent átti aðeins eftir að draga úr hópi þátttak- enda og til að hljóta golfsettið þurfti viðkomandi að vera við- staddur. Það tókst ekki fyrr en í þriðja drætti og þá kom nafn Björns V. Skúlasonar upp úr pokanum og var honum fagn- að af um 100 manns, sem fylltu golfskálann. Verðlaunahafar ásamt Arna Þ. Arnasyni, forstjóra Austurbakka hf. Tómas bestur - á Suðurnesjamótinu í snóker. - Var með fjögur hæstu skorin í mótinu Tómas Marteinsson hauipar sigurlaunun- unum. A myndinni til hliðar er hann ásamt Helga Hólm og Berki Birgissyni, sem varð annar. Ljósm.: hpy. Tómas Marteinsson varð Suðurnesjameistari í snóker með forgjöf er hann sigraði Börk Birgisson í úrslitaviður- eign með sex vinningum gegn þremur. Mótið var nú í fyrsta skipti haldið með forgjöf og út- sláttarfyrirkomulagi en bak- hjarl þess var Umboðsskrifstofa Helga Hólm, sem gaf glæsileg vcrðlaun í mótið. Sigur Tómasar var mjög öruggur enda lék hann vel. Hann átti fjögur hæstu skorin í mótinu, 68-58-48 og 47 og tap- aði engri viðureign á leiðinni í úrslitin. Urslitaleikurinn var spennandi í byrjun. Börkur vann tvo fyrstu leikina en með harðfylgi komst Tómas inn í leikinn, náði að jafna og kom- ast yfir 3:2. Börkur jafnaði 3:3 en þá var eins og allur vindur væri úr honum. Tómas vann næstu þrjá leiki og tryggði sér öruggan sigur. I þriðja sæti varð Gunnar Gunnarsson en hann sigraði Birgi Rafnsson 3:1 í úrslitavið- ureign um þriðja sætið. Frammistaða Birgis kom skemmtilega á óvart þar sem hann kemur úr þriðja fiokki en einnig létu fleiri ungir spilarar að sér kveða sem sýnir best að iþróttin er í miklum uppgangi hér á Suðurnesjum. Þátttakendur í mótinu voru 32 og var það haldið á Knatt- borðsstofu Suðurnesja. í móts- lok afhenti Helgi Hólm, Tóm- asi Marteinssyni glæsilegan farandgrip og eignarbikar fyrir sigurinn. Fimmtudagur 2. júní 1988 19 inu. Hilmar var kominn í forystu eftir frábæra byrjun, en fataðist llugið á síðustu holunum og endaði í 3. sæti. Eins og sjá má voru áhorfcndur fjölmargir á svölunum og þátttakcndur aldrei fieiri. Ljósm.: pket. HRUNÐ Hárgreióslustofa Hólmgarði 2 - Keflavík - S: 15677 verður lokuð dagana 6. - 12. júní vegna námskeiðs í Þýskalandi. Opnar aftur 13. júní. AÐSTOÐ? AÐSTOÐ við ljósritun AÐSTOÐ við vélritun AÐSTOÐ við laserútprentun AÐSTOÐ við uppsetningu bréfa og auglýsinga Lítið inn og kynnið ykkur möguleikana. Sérstakur skólaafsláttur! Haínargötu56 230Keflavik Sími 92-15880

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.