Víkurfréttir - 16.06.1988, Blaðsíða 5
MÍKUH
jUUU
Bifrciðin eftir 20 mctra ferðalag utan vegar. Ljósm.: epj.
Hafnaði á hvolfi
utan vegar
Nokkrum mínútum fyrir
miðnætti á miðvikudagskvöld-
ið í síðustu viku var lögregla og
sjúkrabíll kölluð út vegna bíl-
veltu á Reykjanesbraut. Er að
var komið var bifreið á toppn-
um eftir um 20 metra vega-
lengd utan vegar milli afleggj-
aranna tveggja til Innri-
Njarðvíkur. Var ökumaður
bifreiðarinnar þegar fluttur til
læknis en reyndist svo til
ómeiddur en hinsvegar grun-
aður um ölvun við akstur.
Að sögn vitna hafði öku-
maðurinn ekið mjög hratt og
gáleysislega áður en hann
missti bílinn út af. Fyrst rann
hann 12 metra kafla eftirslétt-
um móanum en lenti þá á stór-
um steini, sem áætlaður var
tæpt tonn að þyngd, og við það
högg reif hann steininn upp og
tók hann með sér á loft og
endaði á toppnum í grjóturð
eftir um 8 metra flug. Var bif-
reiðin, sem er eldri gerð af
Mözdu, gjörónýt á eftir.
Oþægileg
tilfinning
Tveir ungir menn komu
á ritstjórn blaðsins með frá-
sögn af miður góðu atviki
sem henti þá á Hafnargöt-
unni á mánudag. Voru þeir
að aka eftir götunni og er
þeir mæta hvítum og rauð-
um steypubíl hendist stór
grjóthnullungur af steypu-
bílnum og munaði minnstu
að hann lenti á framrúðu
bils þeirra.
Síðan hélt hnullugurinn
áfram og hafnaði á skjól-
vegg. Má sjá á þessu að
þarna hefði getað hlotist af
stórslys. Ættu því öku-
menn steypubíla sem ann-
arra stórra bíla, sem slíkir
steinar gætu leynst á, að
gæta þess að ganga þannig
frá að ekki hljótist af slys.
Fiskveiðasjóður
hafnaði
þremur
Suðurnesjaaðilum
Að því er fram kom nýlega í
Fiskifréttum synjaði Fisk-
veiðasjóður þremur aðilum af
Suðurnesjum á fundi í lok síð-
asta mánaðar.
Umræddir aðilar, sem sóttu
um, voru útgerð togarans
Hauks GK frá Sandgerði, sem
vildi nýtt skip í stað Hauks, og
útgerðir Hraunsvíkur GK og
Þorbjörns GK, sem sóttu um
að fá nýja báta.
Sóttu alls 45 aðilar um fyrir-
greiðslu og var 27 þeirra synj-
að.
Yr KE seldur burt
Þeir bræður Örn og Þor-
steinn Erlingssynir í Keflavík
hafa selt bát sinn Ýr KE 14 til
Þorlákshafnar. í staðinn hafa
þeir fengið Sæmund HF, sem
er 38 tonna eikarbátur, en Ýr
var 75 tonna stálbátur.
Fimmtudagur 16. júní 1988 5
Barna-
stærðir.
Stórkost-
legt
úrval.
í SPORTBUÐ OSKARS
_ SUMARAFSLÁTTUR
| af öllum vörum í
I /O dag, fimmtudag, og
laugardag. Komið og gerið góð kaup
á alla fjölskylduna fyrir sumarið.
matin
frönsku krumpugallarnir
komnir aftur.
Eitt mesta úrval landsins.
Stærðir: S - XL
Litir: Bleikt, blátt, grænt,
rautt, dökkblátt
o.fl.
STANDARD
gallarnir frá
Adidas komnir
aftur. Allar stærðir
Litir: Dökkblátt.
- ★ -
Franskir krumpugallar frá Nino Cerutti.
Krumpugallar frá Golden Cup.
PEUGEOT golf-
reiðhjól fyrir alla
fjölskylduna. VÖrUr
Þau sterkustu f\/rÍK
ogvinsæl- 'YfU
ustu alla
°9' fjölskylduna
FÓTBOLTAR - KÖRFUÍOLTAR
HANDBOLTAR
—. ★ ■ —
Stuttbuxur og bolir í úrvali
ALDREI MEIRA ÚRVAL AF
________SPORTVÖRUM
SPORTBÚÐ ÓSKARS
- tilvöru sportbúð