Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.1988, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 16.06.1988, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 16. júní 1988 Ódýrasti ísinn í bænum • Matseðillinn á Boggabar heldur áfram að stækka • Nú bjóðum við ljúffengan ís í box- um og í brauðformi með eða án dýfu P.S. Það tekur okkur aðeins eina mínúlu að afgreiða eina pítu! n¥t Kr. 90 og kr. 80 & góður skyndi - bitastaður Kr. 100 og kr. 90 Sudurnesjo Knottbordsstofo Grólin 8 Sími 13822 Allir geta spilað snóker ungir sem eldri. Sjö glæsileg 12 feta borð. Kjuðar fyrir alla. Leið- beinendur ei' ósk- að er. Opið l'rá 11:30 - 23:30 all; daga. Pantið tíma eða kort. Bæjarbókasafn Keflavíkur vekur athygli á nýju síma- númeri sínu 15155 Augiýsingasímar Víkur-frétta eru 14717 og 15717. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, LOVÍSU DAGMAR HARALDSDÓTTUR Birkiteig 6, Keflavík Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Keflavíkur. Guð blessi ykkur öll. Gísli J. Halldórsson Krisljana Gísladóltir Ólafur Eggertsson Ilelga Gisladóttir Haraldur Gíslason Þorbjörg Þórarinsdóltir og barnabörn tHKun Á efri myndinni er verið að hreinsa hjá Ellert Skúlasyni, en hjá Fiskiðjunni á þeirri til hlið- ar. Ljósm.: hbb. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja: Löðir hreinsaðar á kostnað eigenda Heilbrigðiseftirlit Suður- nesja lét i siðustu viku taka til á lóðunt fjögurra fyrirtækja í Njarðvík samkvæmt boði heil- brigðisnefndar. Að sögn Magn- úsar H. Guðjónssonar, frant- kvæmdastjóra heilbrigðiseftir- litsins, var um eftirtalin fyrir- tæki að ræða: Ellert Skúlason h.f., Bílabraggann, Fiskverkun Hilmars og Odds og Fiskiðj- una. Hófust aðgerðirnar hjá Ell- ert Skúlasyni. Er þær voru ný- hafnar fóru forsvarsmenn fyr- irtækisins fram á að aðgerðum yrði hætt, þar sem til stæði að reisa snyrtilegt port á lóð fyrir- tækisins við Sjávargötu á allra næstu dögum. Heilbrigðiseft- irlitið féllst á að fresta aðgerð- um eftir að skrifleg yfirlýsing þess efnis hafði borist. „Síðan fórurn við og fjar- lægðum bilhræ við Bílabragg- ann. Akváðu þá forsvarsmenn þess fyrirtækis að gera þetta sjálfir og var aðgerðum því hætt á þeim stað. Hjá Hilmari og Oddi komu engin viðbrögð og var lóðin því hreinsuð á þeirra kostnað, sömuleiðis lóð Fiskiðjunnar. Allir þessir aðilar höfðu fengið itrekað áminningar frá heilbrigðiseftirlitinu og var því ekki annarra kosta völ en að láta til skarar skríða,“ sagði Magnús. Um önnur fyrirtæki í Njarð- vík sagði hann að þar sem enn ætti sér stað sóðaskapur á lóð- um hafi lóðahöfum í flestum tilfellum verið gefinn fresturtil hreinsunar þar til síðar í sunt- ar. En aðgerðireinsogþærsem framkvæmdir voru í Njarðvík í síðustu viku hefjast fljótlega i Sandgerði og síðar Garði, Keflavík og koll af kolli. Að lokum vildi Magnús nota tækifærið til að koma á framfæri eftirfarandi ábend- ingu: „Þeir aðilar, sem hunsa fyrirskipanir heilbrigðiseftir- litsins, gætu lent í slíkum lóða- hreinsunum sem geta verið kostnaðarsamar, þar sent þær eru framkvæmdar á kostnað lóðarhafa." Víða er pottur brotinn Eins og frarn kernur hér fyrir ofan stendur nú yfir hreinsunarátak í þrem byggð- arlögum á Suðurnesjum á veg- um Heilbrigðiseftirlits Suður- nesja. Hefur víða verið gerð mikil bót á ástandinu, en þó má víða gera enn betur og birt- um við hér tvö dænti, annað frá Sandgerði en hitt frá Njarð- vík, því til staðfestingar. Svona mynd birtum við einnig í fyrra frá athafnasvæði Harðar h.f. í Njarðvík og getum ekki séð að þar hafi nein breyting orðið á. Við þetta fiskverkunarhús er m.a. gamall og úr sér genginn vörubíll, sem varla verður notaður úr þessu. Ljósm.: epj.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.