Víkurfréttir - 16.06.1988, Blaðsíða 18
MlKUn
jUttit
18 Fimmtudagur 16. júní 1988
Bæjarfuiltmar minnihlutans víttir
Njarðvík 13. júní 1988
Hr. ritstjóri.
Bæjarráð Njarðvíkur hefur
falið mér undirrituðum að
óska þess við yður að blað yðar
birti í næsta tölublaði ályktun
sem bæjarráðið gerði að tillögu
þeirra Ragnars Halldórssonar
og Steindórs Sigurðssonar á
fundi sínum hinn 9. þ.m. svo-
hljóðandi:
„Bæjarráð Njarðvíkur sem
starfar með fullu umboði bæj-
arstjórnar í sumarleyfi hennar
ályktar að víta bæjarfulltrúana
Ingólf' Bárðarson, Inga Gunn-
arsson og Guðmund Sigurðs-
son fvrir brot á trúnaðar-
skyldu í máli sem augljóst er að
trúnaður skal vera um skv. 37.
gr. samþykktar um stjórn
Njarðvíkurbæjar þar sem
segir: Bæjarfulltrúi skal gæta
þagnarskyldu um það sem
hann fær vitneskju um í starfi
sínu og leynt á að fara vegna
einka- eða almannahagsmuna
samkvæmt lögum, eðli máls
eða sérstakri ákvörðun bæjar-
stjórnar.
Nú hefur það gerst að blaðið
Reykjanes ílutti hinn 8. júní
frásögn af máli sem hefur verið
til umfjöllunar fyrir bæjarráði
og bæjarstjórn og birti einnig
mynd af afriti bréfs sem ein-
ungis ofangreindum þremur
bæjarfulltrúum varafhenteftir
ósk þeirra. Þetta gerist þrátt
fyrir að bókað sé á þeim fundi
bæjarstjórnar sem fjallaði um
málið að fundi væri lokað og
að allt sem þar færi fram væri
trúnaðarmál.
Bæjarfulltrúunum var full-
kunnugt um að bæjarstjóri og
meirihluti bæjarstjórnar lögðu
á það megináherslu að hvarf
bæjarritara úr starfi sínu yrði
með þeim hætti að það skaðaði
hvorki persónu hans eða fram-
tíðarstarfsmöguleika. Þeim
var einnig fullkunnugt um
hvernig trúnaðarskjal það sem
þeir fengu afrit af var komið
til, og að bæjarstjóri var ekki
með því að segja bæjarritara
upp starfi sínu.
Það er því fullkomlega víta-
vert og sýnir ekki annað en
þroskaleysi þeirra og virðing-
arleysi fyrir Sigurði Ólafssyni
að þeir skyldu láta birta trún-
aðarskjalið.
Fullkominn vafi hlýtur að
leika á því hvort bæjarfulltrú-
ar sem þannig hegða sér séu
færir um að gegna því starfi.“
Alyktun þessi var samþykkt
með tveimur samhljóða at-
kvæðum, og vegna hennar
óskaði fulltrúi minnihlutans,
Guðmundur Sigurðsson þess
að svar hans væri bókað. Guð-
mundur fól mér einnig aðóska
þess að þér birtuð svar hans
sem var svohljóðandi:
„Undirritaður bæjarfulltrúi
óskar eftir að fram komi að
trúnaðarskjal það sem um ræð-
ir í bókun meirihlutans er ekki
birt með minni vitneskju og
því síður samþykki og vísa ég
því ásökunum þeirra á hendur
mér persónulega alfarið á
bug.“
Guðmundur Sigurðsson (sign)
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Virðingarfyllst,
Oddur Einarsson
bæjarstjóri.
Aukafundar krafist í
bæjarstjórn
Vegna bókunar meirihluta
bæjarráð Njarðvíkur, sem birt
er hér í blaðinu, hefur Ingólfur
Bárðarson, bæjarfulltrúi í
Njarðvík, óskað eftir birtingu
bréfs, þar sem minnihlutinn fer
fram á að aukafundur verði
haldinn í bæjarstjórn Njarðvík-
ur. Fór sá fundur fram í gær-
kvöldi. Jafnframt átti þá að
leggja frarn cftirfarandi bókun,
sem hann óskaði einnig birting-
ar á. Þar sem blaðið var farið í
prentun, þegar fundurinn var
haldinn, er ekki hægt að greina
frá niðurstöðum hans i þessu
blaði.
Bréf minnihlutans:
„Hr. forseti bæjarstjórnar,
Steindór Sigurðsson.
Samkvæmt 9. grein um
fundarsköp bæjarstjórnar,
óskum við undirritaðir bæjar-
fulltrúar, að haldinn verði
aukafundur í bæjarstjórn
Njarðvíkur, þar sem bókun
meirihluta bæjarráðs 9. júní
um vítur á hendur okkur var
sett fram. Við óskum að um-
rædd bókun verði þar tekin til
umfjöllunar.
Fund þennan óskurn við að
verði í síðasta lagi ntiðvikudag-
inn 15. júní 1988.
Ingólfur Bárðarson
Ingi Gunnarsson
Guðmundur Sigurðsson.“
Bókun minnihlutans:
„Vegna bókunar meirihluta
bæjarráðs á bæjarráðsfundi 9.
júní s.I., þar sem við undirrit-
aðir bæjarfulltrúar erum víttir
fyrir meint brot á þagnar-
skyldu um trúnaðarmál, vilj-
um við taka fram eftirfarandi
og óska tekið til bókunar.
A fundi bæjarstjórnar þann
7. júni s.l., þar sem tillaga
bæjarstjóra um uppsögn bæj-
arritara, voru veittar upplýs-
ingar sem óskað var eftir að
farið væri með sem trúnaðar-
mál - sá trúnaður hefur fylli-
lega verið haldinn af okkar
hálfu.
Að afloknum aukafundi
þann 2. júní, var lagt fram
bréf, sem bæjarstjóri hafði af-
hent bæjarritara, (sem birtist í
Reykjanesi 8. júní). Þetta bréf
litum við ekki á sem trúnaðar-
mál, enda höfðum við haft það
undir höndum og rætt það áð-
ur en til fundar kom, og að
auki var okkur kunnugt um að
margir aðilar utan bæjar-
stjórnar voru með bréf þetta.
Með tilvísun til framanrit-
aðs vísum við til föðurhúsa öll-
um ásökunum í okkar garð urn
brot á trúnaði og krefjumst
opinberra afsökunarbeiðna,
sem birt verði t báðum staðar-
blöðunum, eða sanni að öðr-
um kosti að um trúnaðarbrot
hafi verið að ræða af okkar
hálfu.
Sé umhyggja meirihlutans
fyrir persónu fyrrverandi bæj-
arritara - eins mikil - og fram
kemur í bókuninni, hefði betur
verið hugað að því áður en bæj-
arstjóri ritaði áðurnefnt bréf í
nafni bæjarstjórnar, án um-
ræðu í bæjarráði eða bæjar-
stjórn og þar með án heimild-
ar.
Ingólfur Bárðarson
Ingi Gunnarsson
Guðmundur Sigurðsson.
ATVINNA
Starfsstúlka óskast á leikskólann Gimli
í'rá og meö 1. ágúst. Vinnutími frá 13:00
til 17:00. Umsóknarfrestur til 23. júní.
Upplýsingar hjá forstöðumanni á staön-
um og í síma 15707 á vinnutíma.
Atvinna - Ný störf
Afgreiðslufólk með reynslu af blómum
og blómaskreytingum.
Afgreiðslufólk með góða reynslu á kassa.
Konu vana veitingum.
Uppl. í síma 16188.
ATVINNA
Óskum að ráða laghentan mann til teikni-
vinnu. Upplýsingar aðeins á staðnum.
GRÁGÁS HF.
Vallargötu 14 - Keflavík
Biðröð var í grillaðar pulsur.
Grillveisla
í Svartsengi
Foreldrafélag Tjarnarsels í
Keflavík stóð fyrir árlegri grill-
veislu með börnunt af dag-
heimiiinu og leikskólanum
ásamt foreldrum þeirra, í
Svartsengi við Grindavík á
laugardag. Ekki er liægt að
segja að veðurguðirnir hafi
verið hliðhollir, sólarlaust og
stutt í rigningu.
Voru grillaðar pulsur á
staðnum, auk þess sent við-
stöddum var boðið upp á
Svala. Hi-C og sleikipinna, en
að öðru leyti var stund þessi
frentur líflaus. Oft hafa sam-
komur þessar þó verið eftir-
minnilegar samverustundir
foreldra og barna.