Víkurfréttir - 16.06.1988, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 16. júní 1988
VÍKUR
Kínverskt
í BREKKU
Nýr kínverskur veitingastaður var opnaður að Tjarnargötu 31a í
Kcflavík í gærdag, nánar tiltckið í sama húsnæði og veitingastaður-
inn Brckka er í. Hinn nýi staður tekur 65 manns í sæti, scm er svipað
og „gamla“ Brckka gerir.
Eigandi nýja Kína-veitingastaðarins er að sjálfsögðu Oskar Ar-
sælsson, „Brekku-kóngur“. Hann hafði ákveðið að opna þcnnan
stað á Vatnsnestorgi og var meira að segja búinn að skýra hann eftir
því. Óskar hætti öllum áformum um að opna þar og hóf breytingar á
Brekku fyrir um mánuði síðan.
„Mig langaði niður á torg og
ég var með góðar hugmyndir
til að framkvæmda þar, enda
staðsetningin góð. Það hefði
hins vegar orðið mjög kostn-
aðarsamt og tekið of langan
tíma. Ég ákvað því fyrir u.þ.b.
mánuði síðan að gera þetta
hérna í brekkunni.semerbæði
hagkvæmara og ódýrara. Síð-
an hefur verið unnið hérdag og
nótt,“ sagði Óskar.
Aðspurður um kostnaðar-
hliðina sagði hann að þessar
breytingar væru eins ódýrar og
hægt væri. Svo til alll væri
smíðað á staðnum en engu að
síður á smekklegan hátt. Að-
eins stólarnir og skraut, sem
tilheyrir Kínasalnum, var
keypt. Borðbúnaður er allur í
kinverskum stíl og einnig festi
Óskar kaup á nýrri eldavél,
sem er sérstaklega ætluð til
matseldar á kínverskum mat.
Þetta er engin venjuleg elda-
vél, meira en helmingi stærri
og öðruvísi útbúin.
Að sjálfsögðu voru „fluttir
inn“ þrír Kínverjar til að sjá
um matseld og þjónustu, tveir
matreiðslumenn og ein [ijón-
ustustúlka. Með þeim komu
um 2 tonn af hráefni, s.s. hrís-
j%UU%
Óskar Ársælsson ásamt kinversku starfsfólki sínu á nýja staðnum. Ljósm.: hbb.
grjón, krydd og ýmislegt fleira
sem til þarf til matargerðar á
kínverska vísu.
Samhliða opnun nýja Kína-
salarins voru gerðar miklar
breytingar á húsakynnum
Brekku. Eldhúsið varstækkað
um meira en helming og
geymsluaðstaða bætt, bæði
kæli- og frystigeymsla. Fyrir
innan Kína-salinn hefur svo
verið gerð lítil setustofa og bar.
Fyrir þá sem ætla ekki að
borða á staðnum hefur verið
gerður sér inngangur, þar sem
hægt er að panta til að taka
með heim. Til viðbótar mun
Brekka selja pizzubotna og
sósur og hálfbakaðar pizzur í
verslanir og hugsanlega Kína-
mat, allt undir merki Brekku.
Opnunartíma hefur verið
breytt, þannig að framvegis
verður lokað á mánudögum og
þriðjudögum, sem Óskar sagði
að notaðiryrðu til framleiðslu.
Síðan verður opið miðvikudag
til föstudags frá kl. lóenfrákl.
11 laugardaga og sunnudaga.
En er eitthvað Oeira á döf-
inni hjá Óskari? „Það er aldrei
að vita.En eigum við ekki að
segja að þetta sé ágætt í bili?"
Þroskahjálp:
Á hestbaki
og í grill-
veislu
Þau hjá Þroskahjálp á Suður-
nesjum gera ýmislegt til
skemmtunar. Nýlega bauð
Hestamannafélagið Máni
þroskahcftum börnum í rciðtúr
á svæði þeirra við Mánagrund.
Voru niætt ástaðinn um 30 hörn
og fullorðnir og skemmtu sér
konunglega á hestbaki.
Að loknuni útreiðartúrnum
var haldið aftur til höfuðstöðva
Þroskahjálpar, þar sem boðið
var til grillveislu, þar sem allir
gátu borðað eins mikið af pyls-
um og þeir gátu í sig látið. Já,
þau gera margt sniðugt hjá
Þroskahjálp.
Ljósm.: hbb.
40 MANNS TIL FÆREYJA
Í síðustu viku lagði þessi u.þ.b. 40 tnanna hópur af stað í vikuferð til Færeyja. Var lagt af stað frá Hótel
Kristinu í Njarðvík og ekið þaðan með rútu til Seyðisfjarðar, þar sem Smyrill vartekinn út til Fæ[evja.
Átti ferðalag þetta að standa yfir i viku, þannig að þau ættu að fara að koma hvað úr hverju...
Ljósm.: hbb.
Breyttur
opnunar-
tlmi
Pðsts og
Síma
Ákveðið hefur verið að taka
til reynslu upp nýjan opnunar-
tíma hjá póstafgreiðslunni í
Keflavík. Verður opnað kl.
8:30 en í staðinn lokar af-
greiðslan kl. 16:30 alla virka
daga.
Verður þessi háttur hafður á
fram til 15. september í haust.
Eftir sem áður verður af-
greiðslan opin í hádeginu.
Guðsþjónusta 17. júní kl.
13:30. Formaður þjóðhátíðar-
nefndar, Ingólfur Bárðarson,
setur þjóðhátíðina í upphafi
messunnar. Organisti: Óddný
Þorsteinsdóttir. Kirkjukórar
Ytri og Innri Njarðvíkursókna
syngja.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
17. júní:
Hátíðarguðsþjónusta kl.
13:00. Böðvar Pálsson flytur
hátíðarræðu. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur. Organisti: Sig-
uróli Geirsson.
Sóknarprestur
Sunnudagur 19. júní kl. 11
Guðsþjónusta. Fermd verð-
ur Anna Ósk Finnbjörnsdóttir
frá Bandaríkjunum. Heimilis-
fang hennar hér er að Smára-
túni 12, Keflavík. Altaris-
ganga. Organisti: Oddný Þor-
steinsdóttir. Kirkjukórar Ytri
og Innri Njarðvíkursókna
syngja. Prestur: Þorvaldur
Karl Helgason.
Jarðarför Karólínu Maríu
Karlsdóttur, Háteigi 10,
Keflavík, mánudaginn 20. júní
kl. 14.