Víkurfréttir - 16.06.1988, Page 16
\)iKun
16 Fimmtudagur 16. júní 1988
jUOU
Garðaúðun
Tek að mér að úða garða. Úða einnig
gegn roðamaur.
Emil Kristjánsson
Símar 14885 og 14622.
Æ r Nfe ;;#/ \ L
Am Bni Á Wii »» \ .
fíi ii íii ii iw'
it .„. J
Byggðasafn Suðurnesja
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
Húsmæðraorlof
Húsmæðraorlof Suðurnesja verður að
Laugarvatni vikuna 11.-17. júlí. Upplýs-
ingar í símum:
Keí'lavík 11692 Kristjana
Keí'lavík 12393 Guðrún
Keí'lavík 11486 Einhildur
Sandgerði 37584 Sigríður
Garður 27123 Edda
Njarðvík 11382 Ragnheiður
Vogar 46540 Hallveig
Grindavík 68267 Bylgja
Hafnir 16931 Þorbjörg
Oiiof'sheimilið í Gufudal einnig til leigu.
Upplýsingar veitir Kristjana í síma 27050
eftir kl. 17:00.
Hvað bæta má hér...
Það er margt sem okkur
bæjarbúum dettur í hug þegar
okkur finnst við þurfa að
kvarta yfir því sem miður fer í
bæjarfélaginu. Sumir eða sum-
ar eru svo heppnir eða heppnar
að geta verið í „saumaklúbb-
um“, hvort sem er í heimahús-
um eða á vinnustöðum og
fengið útrás fyrir það sem
þyngst hvílir á í það og það
skiptið. Aðrir sýna hörku og
hringja í viðkomandi aðila eða
jafnve! ráðast á hann/hana á
ólíklegustu stöðum og tímum
dags með allskyns fúkyrðum,
sem sjaldan leiða til góðs. Ég
ætla mér þriðju leiðina, þ.e. í
fjölmiðilinn, sem ég tel besta
kostinn enda eru bestar líkur á
því að mínar athugasemdir nái
til þeirra er málin varða.
Það sem hvílir einna helst á
mér í augnablikinu eru stór-
hættulegu gatnamótin á Faxa-
braut og Hringbraut, þar sem
ófá umferðarslysin hafa orðið
undanfarin ár. Þeir sem koma
vestur Faxabrautina, þ.e. frá
Fjölbrautaskólanum, og
stöðva á gatnamótunum við
Hringbraut sjá hvorki til hægri
eða vinstri vegna þess að bílar
á bílastæðum beggja vegna við
byrgja allt útsýni. Hraði þeirra
bíla, sem aka um Hringbraut,
er yfirleitt milli 50 og 60
km/klst. svo að ekki er alltaf
auðvelt að koma auga á þá
nema þá að vera kominn með
bílinn út á hálfa götuna. Þarna
held ég að þurfi að grípa til var-
úðarráðstafana, enda finnast
eflaust margar lögregluskýrsl-
urnar um einmitt slys á þessum
gatnamótum.
Mín ábending er sú að leggja
þyrfti af allavega tveggja bíla
stæði beggja vegna við á
Hringbrautinni og sérstaklega
SB.K^
NY FERÐA-
ÁÆTLUN SBK
GILDIR FRÁ 15. JÚNÍ N.K.
MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA
Frá Sandgeröi til Frá Garöi til Frá Keflavik til Frá Reykjavik til Frá Keflavik til
Keflavikur og Keflavikur og Reykjavikur. Keflavikur, Garös Garös og Sandgeröis.
Reykjavíkur. Reykjavikur. og Sandgeröis.
Kl. 10:00 Kl. 09:55 Kl. 06:45 Kl. 08:30 ★ Kl. 09:40
13:00 13:05 10:30 ★ x 13:30 ★ 12:45
15:00 Keflavík 14:40 Keflavik 13:30 ★ 17:30 ★ x 14:30
17:00 17:05 17:30 19:00 16:45
19:00 Keflavik 18:40 Keflavik 21:00 ★ 22:15 ★★ 18:30
20:40 20:25 20:15
23:30 Keflavík 23:25 Keflavik 23:15
■ Frá 1. sept til 1 mai veröa feröir kl. 15:30 frá Keflavik ■
og Reykjavik mánudag til föstudags. '
LAUGARDAGA
Frá Sandgeröi til Frá Garöi til Frá Keflavik Frá Reykjavik til Frá Keflavik til
Keflavikur og Keflavikur og til Reykjavikur. Keflavikur, Garös Garös og Sandgeröis.
Reykjavikur. Reykjavikur. og Sandgeröis. . *
Kl. 10:30 Kl. 10:35 Kl. 09:00 ★ Kl. 11:45 Kl. 10.15
13:00 13:05 11:00 13:30 ★ 12:45
15:00 Keflavik 14:40 Keflavik 13:30 ★ 15:30 14:30
17:00 17:05 17:30 19:00 ★ 16:45
20:40 20:25 21:00 ★ 22:15 ★★ 20:15
23:30 Keflavik 23:25 Keflavik 23:15
SUNNUDAGA OG AÐRA HELGIDAGA
Frá Sandgeröi til
Keflavikur og
Reykjavikur.
Kl. 13:00
15.00 Keflavik
17:00
19:00 Keflavik
20:40
23:30 Keflavik
Frá Garöi til
Keflavikur og
Reykjavikur.
Kl. 13:05
14:40 Keflavik
17:05
18:40 Keflavik
20:25
23:25 Keflavik
Frá Keflavik til
Sandgeröis.
Kl. 12:45
14:30
16:45
18:30
20:15
23:15
Frá Keflavik
til Reykjavikur.
Kl. 11:00
13:30 ★
17:30
21:00 ★
Keflavik fyrír aftan tima
þýöir aö feröin endar i Keflavik.
★ Ekiö i Voga.
★ ★ Ekiö i Voga ef farþegar eru.
Frá Reykjavik til
Keflavikur, Garös
og Sandgeröis.
Kl. 13:30 ★
17:30 ★
19:00
22:15 ★ ★
x Ekiö um Vatnsleysuströnd
ef sæti eru pöntuö.
SÉRLEYFISBIFREIÐIR KEFLAVÍKUR
vegna þess að á báðum þessum
stöðum virðist nóg pláss til að
veita þeim bílum, sem kæmu
til með að missa „sín“ stæði í
þágu betri umferðarmenning-
ar. Vonast ég til að umferðar-
nefnd taki þetta til umhugsun-
ar áður en alvarlegt slys hlýst
af.
Næsta athugasemd er öllu
heldur spurning til bæjaryfir-
valda um hvenær eigi að lag-
færa neðsta enda Sunnubraut-
ar en hún var sundurgrafin í
vetur út að Flugvallarvegi
vegna olíulekans margfræga.
Það er lágmarks krafa að
svona vinnubrögð verði lag-
færð hið snarasta því ástand
hennar er engum bjóðandi
nerna þá helst sem nýrri sér-
leið í rallýkeppni. Svona
gatnagerð gengur ekki enda-
laust á lélegum viðgerðum!
Jæja, þá fer ég að verða bú-
inn að rumsa þessu út úr mér
og líðanin er strax farin að
skána. Mitt síðasta í bili er smá
skot til lögreglunnar og vænti
ég þess að hún taki vel í þessa
bón mína, þar sem ég hef ekk-
ert nema gott um ykkur að
segja, að einu atriði undan-
skyldu.
Það virðist sem ykkur sé
ekki kennt að brosa í lögreglu-
skólanum! Sérstaklega tekur
maður eftir þeim í fiugvallar-
hliðunum, enda á ég þar leið
um dags daglega. Öll vitum við
um þann eina sanna „bros-
lausa“ og lítið við honum að
gera, en að mestallur fiotinn
þurfi að píra á mann þessu grá-
kalda og hjartastöðvandi
augnaráði finnst mérfyrirneð-
an allar hellur. Þessi steingerv-
ingsháttur lögreglumanna
yfirleitt á ekki heima í okkar
nútimaþjóðfélagi og gerir ekk-
ert nema illt til í tengslum sín-
um við almenning. Að sjálf-
sögðu verðið þið öðru hvoru að
vera virðulegir, sléttir og
greiddir við sérstök tilefni en
að öllu jöfnu í hinu daglega lífi
gengur allt betur ef þið eruð
með bros á vör.
Að brosa blítt er besta ráð,
börnin okkar kunna.
Beiskjan brennir burtu dáð,
og bæjarlífið þunna.
Því bið ég ykkur yfirvöld,
að bæta svipinn lúna.
Brosin ykkar bitur, köld,
bannsett eru núna.
Með þökk fyrir birtinguna.
Valur Ketilsson
„Hvenær á að lagfæra neðsta enda Sunnubrautar,
en hún var sundurgrafin í vetur út að Flugvallar-
vegi, vegna olíulekans margfræga?“
Læra fyrst
skrifa svo
Oft gcrir prentvillupúk-
inn blaðalesendum grarnt í
geði. en þær villur fyrirgef-
ast. Villur, sem verða vegna
hreinnar og klárrar van-
kunnáttu fyrirgefast ekki.
Þeir sem hafa ekki gott
vald á íslensku ritmáli eiga
ekki að skrifa í blöð. i Vtk-
urfréttum var ekki alls fyrir
löngu talað um að eitthváð
hafi skotið upp rótum. Hér
er orðatiltækjum ruglað
saman á neyðarlegan hátt!
Þágufallssýkin er orðin
að faraldri í sumum fjöl-
miðlum. Eða hvað finnst
fólki urn eftirfarandi
klausu úr Reykjanesinu:
Brotist inn
í Baðhúsiðl
GRINDAVÍK: Honum
hefur vantað filmurjjein^
sem braust inn í baðhúsið
við Bláa lónið aðfaranótt
sunnudagsins. Var farið
inn í búningsklefa og
L stolið ca. 50 filmum.
Það á að vera reisn yfir
ntálfari þeirra sem tjá sig
opinberlega. Lágkúran og
kunnáttuleysið er ætíð til
vansa. Verður í besta falli
aðhlátursefni.
M álverndunarmaður