Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.1988, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 16.06.1988, Blaðsíða 19
\iiKun juUit Knattspyrna 2 deild: „Erfiður róður" - segir Heimir Karlsson, þjálfari Víðismenn hafa ekki átt mik- illi velgengni að fagna að und- anfðrnu. Tveir tapleikir i röð í íslandsmótinu og fallnir út úr bikarnum, strax í annarri um- ferð. Hver er ástæðan fyrir þessum hrakförum Víðisstrák- anna? Við lcituðum álits Heim- is Karlssonar, þjálfara: „Eg vildi óska þess að ég vissi það, þá væri allt komið í lag. Þetta er margt smátt, sem gerir eitt stórt. 2. deildin er ekkert auðveldari en sú fyrsta. í leiknum við IR áttum við all- ar fyrstu 30 minúturnarogþað var bara mínútuspursmál hve- nær við myndum skora, þegar ÍR-ingum tekst að skora tvö mörk í röð á 5 mínútna kafla. Það var eins og rothögg," sagði Heimir. Mikil mciðsli -Nú töpuðuð þið bikarleik á Selfossi og eruð þar með falln- ir út úr bikarnum. Hvað vilt þú segja um þann leik? „Við áttum marga góða punkta í leiknum og skoruðum þegar um korter var eftir af venjulegum leiktíma en Sei- fyssingum tókst að jafna fyrir leikslok og komast yfir á síð- ustu mínútum framlengingar. Við gerðum miklar breyt- ingar á liðinu, sem lofa góðu. Þá hafa meiðsli hrjáð leikmenn liðsins mikið og má þar nefna Hafþór, Sævar, Guðjón og Ola Róberts. Hafa þrír af þeim lít- ið sem ekkert getað æft með í sumar. Lið, sem hefur ekki meiri breidd, má ekki við svona !öguðu.“ -Næsti leikur? „Við eigum leik gegn Breiðablik á Garðsvelli. Þeir eru sterkir og það verður erf- iður róður," sagði Heimir Karlsson að lokum. Hart barist í leik UMFN og UMFG í Njarðvík. Ljósm.: hbb. Grindavík áfram I bikarnum Það hefur mikið verið að gera hjá knattspyrnumönn- uni í siðustu viku og um helg- ina. eins og fram kemur í eft- irfarandi pistli. 3. DEILD Njarðvíkingar tóku í sið- ustu viku á móti Gróttu frá Seltjarnarnesi í 3. deild Is- landsmótsins en ekki gekk betur en svo að þeir sendu Gróttu heim aftur með þrjú mörk upp á vasann ásamt öllum stigunum. Reynis- mönnum frá Sandgerði gekk öllu betur, voru með upp- brettar ermar og uppskáru sigur gegn IK 2:0 í Sand- gerði. Þá tóku Njarðvíkingar einnig á móti Grindvíking- um, sem báru sigur úr být- um, 3:0. MJÓLKURBIKARINN/ 2. UMFERÐ Önnur umferð í Mjólkur- bikarkeppninni var leikin um helgina og á mánudags- kvöld. Grinavíkingar tóku á móti 4. deildarliðinu Ægi og hreinlega burstuðu þá, 11:0. Arvakur mætti Höfnum og sigraði 2:0. Þróttur R. lék gegn Njarðvikingum, sem urðu því miður að bíta í það súra epli að tapa 1:3. Þá tóku Selfyssingar á móti Víðis- mönnurn fyrir austan fjall. Voru heimamenn sterkari aðilinn og báru sigurorð af Víði með tveimur mörkum gegn einu, eftir franilengdan leik. Þar með er ráðið að Víð- ismenn halda ekki áfram í Mjólkurbikarkeppninni þetta árið, en eins og flestum er kunnugt léku þeir til úr- slita í keppninni í fyrra, þá gegn Fram. Það eru því að- eins Grindvíkingar sem halda áfram í bikarnum, ein- ir Suðurnesjaliða að IBK undanskildu. Fimmtudagur 16. júní 1988 19 Ragnar Margeirsson var megin af tímanum í vörn gegn stórliði Fram. Her er hann þó kominn á fullt í sóknina. Ljósm.: hbb. Aðeins tvö stig úr fjórum leikjum hjá ÍBK: „Ég sló aldrei boltann" - segir Einar Ásbjörn Ölafsson, sem skoraði jöfnunarmark ÍBK gegn Leiftri á Ölafsfirði „Ég sló aldrei boltann. Hann fór í síðuna á mér frá markverð- inum og inn,“ sagði Einar As- björn Ölafsson, sem bjargaði andliti Keflvíkinga á Olafsfirði með þvi að skora jöfnunarmark IBK þegar aðeins 2 mín. voru til leiksloka. „Við áttum að vera búnir að gera út um leikinn. Leifturs- menn áttu aðeins þetta eina tækifæri sem þeir skoruðú úr. Engu að síður er eins og það vanti herslumuninn hjáokkur. Banda- rískur þjálfari til Kefl- víkinga Bandarískur körfuknatt- leiksþjálfari, Lee Nober, er væntanlegur til íslands um helgina. Hyggst hann líta á að- stæður hjá IBK og ef sam- komulag næst mun hann þjálfa þar í vetur. Lee Nober er mjög þekktur og virtur körfu- boltaþjálfari í Bandaríkjunum og á tíu ára þjálfaraferil að baki, þó svo hann sé aðeins tæplega þrítugur. T.a.m. hefur hann þjálfað Cleveland State, sem er í fremstu röð í 1. deild bandariska háskólakörfubolt- ans. Hreinn Þorkelsson er einnig inni í myndinni varð- andi þjálfun liðsins en Gunn- ar Þorvarðarson, þjálfari IBK sl. vetur, hefur nú tekið sér frí frá þjálfun. Það er eins og hugarfarið sé ekki rétt og menn því ekki nógu grimmir,“ sagði Einar Asbjörn. Uppskera Keflvíkinga í síð- ustu fjórum leikjum er aðeins tvö stig. Þeir léku við Franr í síðustu viku og máttu hrósa happi að hljóta annað stigið. Keflvíkingar náðu að halda í við Framara í fyrri hálfleik en í þeim seinni var aðeins eitt lið á vellinum. Fram réði lögum og Iofum á vellinum, skoraði m.a. tvö niörk, sem voru dæmd af. Keflvíkingar hafa ekki leik- ið vel að undanförnu. I.iðið leikur týpískan breskan fót- bolta, löng spörk og hlaup, sem hefur gefið lítinn árangur. Lítið hefur verið um skemmti- legt samspil. Og þegar Ragnar Margeirsson er kominn áfullt í vörninni, þá er ekki laust við að ýmsar spurningar vakni í hugunt manna._ Næsti leikur IBK er á rnánu- dag gegn IA í Keflavík og hel'st hann kl. 20. Körfuknattleikur: Fara ÍBK og UMFNí Evrópukeppni? Njarðvíkingar og Keflvík- ingar eru nú að kanna mögu- leika á þátttöku í Evrópu- keppnum í körfuknattleik. Að sögn Skúla Skúlasonar, formanns körfuknattleiks- ráðs íBK, yrði það ntikil fjár- hagsleg áhætta efafþátttöku yrði. „Við erum að kanna það hvort það sé grundvöll- ur fvrir þátttöku,“ sagði Skúli’. Golfsýning í Leiru 18. júní John Garner, landsliðs- þjálfari Islands í golfi, verð- ur með golfsýningu á Hólms- vélli í Leiru á laugardag, 18. júní, kl. 11. Mun John þá sýna hvernig best er að „berj- ast“ við litlu, hvítu kúluna og svo mun hann einnigsýna ýmsar kúnstir. John er Englendingur og fyrrum atvinnumaður í íþróttinni. Hann náði góðunt árangri sem slíkur og komst nr.a. í 10 manna Evrópuúr- val tvisvar sinnum. Síðan 19?7 hefur hann kennt golf og er einnig með fastan kennsluþátt í stærsta golf- timariti í Evrópu, Golf World.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.