Víkurfréttir - 15.09.1988, Blaðsíða 11
mun
HAGKAUP
HAGKAUP
„RÍKIГ í HÓLMGARÐINN? —
Afgreiðslustörf
Hagkaup vill ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa í
verslunum sínum í Reykjavík. Ferðir greiddar fyrir
starfsfólk utan Stór-Reykjavíkursvæðisins. Upplýs-
ingar fást hjá starfsmannahaldi Hagkaups, síma 91-
686566 milli kl. 13 og 17 alla virka daga.
Starfsmannastjóri verður til viðtals í Hagkaup
Njarðvík, föstudaginn 16. og mánudaginn 19. sept-
ember n.k. milli kl. 10 og 12.
Fimmtudagur 15. september 1988 11
10 Fimmtudagur 15. september 1988
Við bjóðum þér að „leggjast“ í leikfimi. Stórkostlegt tækifæri fyrir alla sem
vilja styrkja vöðva og grennast.
FÍNT FORM kerfið býður upp á 7 mismunandi bekki sem styrkja og
grenna viðkomandi.
Þú leggst upp í bekkina og þeir sjá um að vinna á viðkomandi vöðvum og
líkamshlutum. Hver bekkur er 7-8 mínútur að í senn og samtals tekur
„hringurinn" um klukkustund. Engin þreyta - enginn sviti - en árangur
færðu að sjá.
Hver og einn er mældur og vigtaður áður en hafnar eru æfingar í fyrsta
sinn, svo og aftur eftir ca. 8 tíma prógram.
Nánari upplýsingar og tímapantanir í síma 15955.
Vertu í FÍNU FORMI.
Líkamsrækt Óskars
Hafnargötu 23 - Keflavík
Gallery-kynning
Snyrtivörukynning á
Gallery-vörum miðviku-
daginn 21. sept. kl. 20.
Snyrtifræðingur úr
Reykjavík kynnir.
. X \ \ \ 1 I !!///
x SÓLBAÐSSTOFAN /
S'GhEV
Sími 11616
Hafnargötu 54 - Keflavík
Líkamsrækt Óskars
Ingibjörg
Gunnarsdóttir:
„Ætti að
vera í
lagi“
„Ég hef bara ekki hugleitt
það,“ sagði Ingibjörg Gunn-
arsdóttir, er blaðamaður
spurði hana álits á staðsetn-
ingu áfengisverslunarinnar í
Hólmgarði 2, en Ingibjörg var
að sækja barn á Garðasel.
-Svona fljótt á litið?
„Ég held að það ætti að vera
allt í lagi.“
Ragnar
Sigurðsson:
„Ekki of
hrifinn"
„Ég yrði ekkert voðalega
hrifinn af þessu ef ég byggi
hérna í hverfinu," sagði Ragn-
ar Sigurðsson, sem var að
sækja barnið sitt á Garðasel,
en blaðamaður lagði fyrir
hann þá spurningu hvað hon-
um fyndist um flutning ÁTVR
í Hólmgarðinn.
-Getur þú bent á annan stað
undir áfengisverslunina?
„Er ekki ágætt að hafa hana
þar sem hún er?“
Svala Svavarsdóttir, forstöðukona Garðasels:
„ðsmekklegt við
hliðina á
bamaheimili"
Einn þeirra staða, sem kom-
ið hafa inn í umræðuna vegna
fyrirhugaðs flutnings Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins í
Hólmgarð 2, er dagheimilið
Garðasel. Rætt hefur verið um
þá hættu sem börnunum staf-
ar af hinni miklu bílaumferð,
sem fylgir verslun sem „rík-
inu“. Víkurfréttir komu við á
Garðaseli fyrir helgina og tóku
forstöðukonuna, Svölu Svav-
arsdóttur, tali.
„Þetta er ósmekklegt að
leyfa áfengisverslun við hlið-
ina á uppeldisstofnun,“ sagði
Svala, er hún var spurð hvað
henni fyndist um flutning
ÁTVR í Hólmgarðinn. „Fyrir
utan alla slysahættuna, sem
stafar af umferðinni; hún er
voðaleg" bætti Svala við.
„Hingað eru sótt um 80
börn á sama tíma, milli klukk-
an fimm og sex, þannigaðekki
er umferðin, sem myndast
fyrir lokun á föstudögum í rík-
inu, til þess að bæta það.“
-Hafið þið gert einhverjar
ráðstafanir vegna fyrirhugaðs
flutnings ÁTVR í hverfið?
„Við erum búin að óska eft-
ir því við bæjaryfirvöld að sett
verði upp há girðing til þess að
loka okkur hér á Garðaseli frá
þessu og hefur bæjarstjóri tek-
ið vel í málið. Það er allt í lagi
að setja „ríkið“ þar sem ekki er
verið að ala upp börn,“ sagði
Svala Svavarsdóttir að lokum.
Litlu kórstrákarnir fjórir ásamt foreldrum sínum og sóknarprestinum, séra Þorvaldi Karli Helgasyni.
Ljósm.: hbb
Við messu í Ytri-Njarðvík-
urkirkju síðasta sunnudag
voru 6 börn skírð. Vildi svo
skemmtilega til að fjögur
barnanna, allt drengir, áttu
foreldri er starfar í kirkjukór
Ytri-Njarðvíkurkirkju. Auk
þess sem foreldrar eins barns-
ins starfa báðir við kórinn, fað-
irinn syngur en móðirin er org-
anistinn.
Um er að ræða Hrein Gunn-
ar, foreldrar: Gróa Hreins-
dóttir og Guðmundur Sigurðs-
son; Guðmund, foreldrar:
Jónína Jónsdóttir og Stefán
Guðmundsson; Tryggva Frey,
foreldrar; Sigríður Sigurgeirs-
dóttir og Smári Traustason og
Einar Þór, foreldrar: Eydís
Eyjólfsdóttir og Stefán Einars-
son.
Þessu til viðbótar upplýstist
það að með haustinu bætast
vonandi þrjú börn í hópinn,
þar sem tvö foreldri til viðbót-
ar úr hópnum eiga von á litlum
krílum, þar af tvíburum í ann-
að skiptið. Má því segja að
kórfélagarnir í Ytri-Njarðvík-
urkirkju séu all frjósamir.
Frjósamir
körfélagar
Reynir Ólafsson,
íbúi við Norðurgarð:
„Aukin umferð
með tilkomu
áfengisversl-
unarmnar
„Ein af ástæðunum fyrir því
að við hcr í hverfinu erum á
móti ílutningi áfengisverslun-
arinnar í hverfið er hin aukna
umferð sem myndast við til-
komu verslunarinnar," sagði
Reynir Olafsson, tbúi í Norð-
urgarði, í viðtali við Víkur-
fréttir.
„Það er verið að úthluta
okkur íbúðahverfi með lokuð-
um göturn, þegar einokunar-
verslun hér á Suðurnesjum er
skyndilega skellt niður í hverf-
ið,“ sagði Reynir og hélt
áfram: „Ogekki minnkarum-
ferðin við tilkomu bjórsins.
Mér finnst það ósmekklegt af
opinberu fyrirtæki að ráðast
inn í íbúðahverfi. Það erslæni
reynsla af því úr Reykjavík.
-Hvað með aðstöðu fyrir
börtiin í hverfinu?
„Hún erslæm. Þau þurfa að
nota bæjargrasið undir knatt-
spyrntiiðkun, þannig að eini
staðurinn til að iðka knatt-
spyrnu í hverfinu er við göt-
una.
Þessi áfengisverslun er hag-
stæð fyrir verslunina í hverf-
inu cn ekkert annað,“ sagði
Reynir að lokum.
Undirskrifta-
söfnun í bígerð
Eitt mesta hitamál, sem
komið hefur upp að undanförnu
er sú fregn að Áfengis- og tó-
baksverslun rikisins ætli sér að
opna verslun að Hólmgarði 2 í
Keflavík. Stendur nú yfir undir-
búningur að almennri undir-
skriftasöfnun gegn ákvörðun
þessari, auk þess sem óánægja
hefur komið inn á borð bæjar-
stjórnarmanna í Keflavík.
En hvað segja íbúarnir sjálf-
ir? Til að fá að einhverju leyti úr
því skorið tókum við nokkra
þeirra tali og birtast þau viðtöl
hér með.