Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.09.1988, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 15.09.1988, Blaðsíða 19
muR jtitUi Ritun héraðssagna í kjölfar rómantísku stefnunnar á átjándu öld og fyrri hluta þeirrar nítjándu óx áhugi manna íEvrópu mjög á sögu. Bæði sögu einstakra Ianda og landshluta. Dæmi um það var vaxandi áhugi á söfnun ís- íenskra handrita. I kjölfarið fylgdi aukinn áhugi á verndun íorn- minja. Minjasöfn urðu til og reglu- legur uppgröftur hófst. Fornleifa- fræðin mótaðist sem vísindagrein á þessu tímabili. Um svipað leyti var farið að stofna félög í borgum og sveitum til að safna efni í sögu þeirra og til a_ð hlúa að fornum mannvirkjum. IEnglandi ogSkot- Iandi var nú fyrir alvöru farið að huga að gömlu köstulunum og þetta gaf skáldum yrkisefni. I Skotlandi sat sir Walter Scott og skrifaði riddarasögur sínar. Til dæmis söguna um ívar hlújárn. Söfnun þjóðsagna hófst og áhugi á tungumálum jókst að mun. En sagnfræðin sem ffæðigrein vai eldri, allt frá blómatímum Grikkja, fyrir fæðingu Krists. Á þeim tíma og fram á 18. öld voru það aðallega konungar og aðals- menn er kostuðu söfnun og skrán- ingu á sögu síns ríkis eða fusta- dæmis. Oft var furstadæmið að- eins lítil borg og næsta nágrenni hennar. Áhugi á sögu óx enn á 19. öld, er þjóðernisvakning var æöfl- ugri í Evrópu. Sagan var vopn í höndum smáríkja og þjóðernis- hópa í átt til meira sjálfstæðis. Meðal þessara landa var ísland. Söguleg rök um réttarstöðu ís- lands voru eitt helsta vopn Jóns forseta gegn Dönum. Áhugi ís- lendinga á sögu er jafngamall bú- setu norrænna manna á íslandi. Áhugi á sögu héraða og þéttbýlis- staða er yngri. Enda er þéttbýli ungt á íslandi. Fyrstu kaup- staðarsögurnar Fyrsta kaupstaðarsagan, sem skrifuð var á íslandi, var Saga Ak- ureyrar, sem Klemens Jónsson lauk við um 1910. Hann var sýslu- maður á Akureyri. Sagan spannar allt frá upphafi búsetu áAkureyri til 1905. Þessi bók kom ekki út fyrr en 1945. Síðar, er Klemens var fluttur til Reykjavíkur, skrifaði hann sögu Reykjavíkur, sem kom út í tveimur bindum 1929-30. Á sama tíma vann Jón Helgason biskup að ýmsum ritstörfum um Reykjavík. Höfuðrit hans, Árbæk- ur Reykjavíkur 1786-1936, kom út 1937. Ómetanlegt framlag Jóns til sögu Reykjavíkur eru málverk hans og teikningar, sem sýna þró- un byggðar í Reykjavík frá um 1790 til loka nítjándu aldar. Besta kaupstaðarsagan á þessu tímabili er Saga Hafnarfjarðar, sem út kom 1933. Sigurður Skúla- son tók hana saman. Verk þetta markaði tímamót í ritun héraðs- sagna. Þarna kom i fyrsta sinn fram sérmenntaður sagnfræðing- ur sem kannaði efnið út frá fræði- Iegum grunni. Og vann þaðá þann hátt að aðgengilegt er hverjum sem áhuga hefur á sögu. Merkasti kafl- inn í ritinu er án efa um þýsku versi- unina í Hafnarfirði. Þar sem versl- un er burðarásinn í hafnfirskri sögu, kannaði Sigurður bæði þýsk og dönsk söfn. Til dæmis í Ham- borg. Söfn, sem trúlega hafa eyði- lagst i stríðinu. Saga þýskrar versl- unar á Islandi er annars ókönnuð enn, en hún snertir m.a. mjögsögu Keflavíkur á 15. og 16. öld. Eftir stríðið óx áhugi á sögu ein- stakra héraða. Hreyfing komst á byggðasöfnin. Þeim fjölgaði smátt og smátt. Bækur Árna Óla um sögu Revkjavíkur hafa sérstöðu. Þær komu út 1950 til 1968, einar sjö eða átta. Þær teljast þó til svo- kallaðra alþýðlegra sagnaþátta. Er kemur fram undir 1970 er kominn nokkur skriður á ritun héraðssagna. Saga Sauðárkróks kom út 1969-1971 i þremur bind- um. Kristmundur á Sjávarborg vann þar merkilegt starf og bætti enn einni perlu í festi skagfirskra fræða. 1981 lauk hann við Sögu Dalvíkur í fjórum bindum. Góðri viðbót við svarfdælsk fræði. Um svipað leyti réðust Eskfirð- ingar í að gefa út Eskju, sögu Eski- fjarðar, sem Einar Bragi tók sam- an. Hann er fæddur og uppalinn á Eskifirði. En Kristmundur ættað- ur og uppalinn frammi í Skaga- firði. Þessi þrjú ofangreind ritverk eru ein hin bestu af íslenskum hér- aðssögum. Aðalþráðurinn í sögu Eskifjarðar er verslunin. Einar Bragi fór til Noregs og Danmerk- ur til að kanna heimildir. Eskjan er þó heldur fræðilegri fyrir almenn- an lesanda en bækur Kristmund- ar. En báðir sameina vandaða könnun heimilda oggóðafrásögn. Sagnfræði og alþýðufræðimennska Erlendis er byggðasaga sérgrein innan sagnfræðinnar. Hér hefur það ekki orðið vegna fámennis og vegna þess hve stutt er siðan menn fóru að fást sérstaklega við byggð- asögu. Á seinni árum hafa verið gefin út hér yfirlitsrit yfir heilar sýslur og héruð. Aðallega eru það búend- atöl á sveitabæjum og yfirlit yfir starf félaga. Ásamt stuttum ágrip- um af sögu kauptúna eða þorpa. En þetta er alls ekki fræðileg út- tekt á sögu viðkomandi héraða. Einungis almennt yfirlit. Af sama meiði eru hinir fjölmörgu sagna- þættir, sem komið hafa út á liðn- um áratugum. Misjafnir mjög að gæðum. Sumir slakir, aðrir sem perlur. Þar veldur sá er á heldur. Sagnfræði skiptist nefnilega í tvennt: A) í svokölluð alþýðu- fræði, B) I vísindalega sagnfræði. Þessu rugla margir saman. Eðlileg- ast eraðsveitarfélögfái menntaða og hæfa menn til að annast sagna- ritun sína. Menn, sem annað hvort eru gagnkunnugir efninu og stað- háttum og/eða hafa sérmenntun á sviði sagnfræði. Ólafsfirðingar gerðu t.d. slæm mistök í sambandi viðþetta. 1969- 70gáfu þeir út Mannlífvið múlann. tveggja binda verk, sem gamall skólastjóri úr Reykjavík tók sam- an. Er út kom þótti flestum ritið stórgallað. Það varð til þess að 1983 gáfu þeir aftur út sögu sína, Hundrað ár í horninu. endurskoð- aða og umskrifaða. Það verk var unnið af ungum Ólafsfirðingi, sem þá var að ljúka námi í sögu. Svona mistök eru dýr hverju sveitarfél- agi, sem greiða þarf höfundarlaun og annan útgáfukostnað. En hér gerðu Ólafsfirðingar merkilega - en sjáldgæfa - bragarbót. Skúli Magnússon Suðurnesjamenn og allir hinir í dýrtíð og stjórnarkreppu er gott að vita, að í Kili fást úr- valsvörur, sem lækka dýrtíðina. Til dæmis: Diskaþvottavélar fyrir 6 manns ......................... aðeins kr. 21.925,- Aristo þvottavélar, 20 prógrömm ........................ aðeins kr. 43.820.- Silecia 220 ltr. kæliskápar ............................ aðeins kr. 18.900.- Termor eldavélar, mjög fullkomnar ...................... aðeins kr. 40.605.- Ariston eldavélasamstæða, ofn og hella ................. aðeins kr. 36.380.- Condair rakatæki 1000 .................................. aðeins kr. 3.480.- Stigar upp á háaloft ................................... aðeins kr. 12.920.- Olíufylltir rafmagnsofnar, margar gerðir. Og svo allt hitt - og kjörin eins og best hentar fyrir þig. Líttu við eða hringdu í síma 12121. Kjölur s/f - Víkurbraut 13, Keflavík Fimmtudagur 15. september 1988 19 Smáauglýsingar íbúð óskast Unga stúlku bráðvantar 2ja herb. íbúð með sérinngangi frá 1. des. Vinsamlega hring- ið í síma 15982 eftir kl. 19:00. Til sölu Siemens þvottavél, 1 árs. Uppl. í síma 15580. Ronald. Tapað-fundið Stál-kvenmannsúr fannst fyrir ca. 3 vikum við Aðal- götu. Uppl. í síma 11672. Til sölu Rúm til sölu,, 1 árs gamalt. Selst ódýrt. Á sama stað er óskað eftir kojum. Uppl. i síma 13824 eftir kl. 19.00. Til leigu 2ja herb. íbúðtil leigu, aðeins eldra fólk kemur til greina. Uppl. í síma 13193. A sama stað er afruglari til sölu. Rarhús til leigu í Keflavík Góð aðstaða fyrir börn. Til- boð. Nánari uppl. í síma 13943. Til sölu vegna broltflutnings Sófasett 1-2-3 sæta og tvö borð. Gömul antikborðstofu- húsgögn, þ.e. buffetskápur, borð og 6 stólar. Y amaha raf- magnsorgel, tveggja borða með innbyggðum trommu- heila. 22” litstjónvarp, af- ruglari. rauð Electrolux eldavél með klukkuborði ásamt viftu. Eldhúsborð og 4 stólar. ísskápur, þvottavél, sláttuvél, hansahillur, ljós og fleira. Uppl. í síma 92- 14239. Barngóð kona óskast Óska eftir konu til að gæta tveggja drengja, 4ra og 6ára á föstudagskvöldum og laug- ardagskvöldum. Uppl. í vinnusíma 56225 og heima- síma 11206. Fríða. Tilboðs- og unisóknareyðublöð Þeim, sem svara auglýsing- um erbirtastí Víkurfréttum, er bent á að á afgreiðslu blaðsins liggja frammi eyðu- blöð, bæði fyrir atvinnuum- sóknir og til tilboðsgerðar. Eyðublöð þessi eru ókeypis fyrir þá sem eru að svara auglýsingum er birst hafa í blaðinu. s.o.s. Ég er einstæð móðir með 7 ára barn. Bráðvantar 2ja til 3ja herb. íbúð í Keflavík eða Njarðvík. Get ekki borgað fyrirframgreiðslu. Skilvís- um greiðslum heitið, er i góðri vinnu. Uppl. í síma 15919 eftir kl. 19.00 á kvöldin. Til sölu ameriskur isskápur. Nýr G.F. þurrkari 220 V. Uppl. í síma 11327 eftir kl. 18.00. Bíll til sölu Mazda picup 2000 árg. '84, ek- inn 78 þús. km. Skuldabréí eða skipti koma til greina. Uppl. í síma 12794 á kvöldin. Svefnsóli Til sölu góður tveggja manna svefnsófi. Uppl. í síma 16081. íbúð óskast Reglusamur maður óskar eítir lítilli íbúð eða góðu her- bergi sem fyrst. Uppl. í síma 91-84858 á kvöldin. Skrifslofubúsnæði til leigu Uppl. í síma 11121 eftir kl. 16.00. Bíll á góðu verði Ford Fiesta árg. 1986 „frúar- bílT' er til sölu. Ekinn 29 þús. km. Mjög góður bíll. Verð 225.000. Uppl. í síma 14100. Svalavagn óskast Ódýr svalavagn óskast. Uppl. í síma 13847. OPIÐ 13-22 mánud.-fóstud. 10-22 laugard. og sunnud. BLÓM OG / HAUST- / Ifffir GJAFA VÖRUR / LA UKARNIR / Mblóm VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI / eru komnir. / FitjUm - Njarðvík / / Sími 16188

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.