Víkurfréttir - 27.10.1988, Page 10
míkuk
Fimmtudagur 27. október 1988
jutU*
3.flokks mót ísnóker
(BYRJENDAMÓT)
3. flokks mót
í snóker,
byrjendamót,
verður um
helgina 29.-30.
október.
Skráning í
síma 13822 til
kl. 20 föstud.
Opið alla daga
frá 11:30-23:30
Knattborðsstofa
Suðurnesja
Gerum föst tilboð
,iin iii i fiiiirffrrn _
í allar réttingar
BÍLARÉTTING
Grófin 20A - Sími 13844 • Hs. 11868
ASKORUN
til greiðenda fasteignagjalda
í Gerðahreppi
Hér með er skorað á alla þá sem eigi
hafa lokið greiðslu fasteignagjalda til
Gerðahrepps fyrir árið 1988 að gera
skil innan 30 daga frá birtingu áskor-
unar þessarar.
Að þeim tíma liðnum verður krafist
nauðungaruppboðs á fasteignum
þeirra sem eigi hafa þá gert full skil
sbr. heimild í lögum nr. 49/1951.
Sveitarstjórinn í Gerðahreppi
Frá stofnfundi LEO-klúbbsins Sigga. Formaður LEO-nefndar Lionsklúbbsins Garðs, Rafn Guð-
bergsson, í ræðustól. Ljósm.: hbt
Leoklúbburinn Siggi stofnaður:
Garðmenn stofna
Lionsklúbb barna
Til nokkurs nýstárlegs fé-
lagsskapar var stofnað í Garð-
inum á sunnudaginn, þegar
fyrsti LEO-klúbburinn var
stofnaður á íslandi. LEO-
klúbburinn er æskulýðsklúbb-
ur innan Lionshreyfingarinn-
ar og tilgangurinn með stofn-
un klúbbsins er að ungling-
arnir starfi og vinni á heil-
brigðum vettvangi að líknar-
málum og félagslegum áhuga-
málum.
Formaður LEO-klúbbsins
Sigga er Unnur Linda Guð-
mundsdóttir, varaformaður
Helgi Már Sigurgeirsson,
ritari Ingibjörg Finndís Sig-
urðardóttir, gjaldkeri Jens Óli
Jensson og meðstjórnendur
Sæmundur Sæmundsson,
Björg Kristinsdóttir og Þóra
K. Hafsteinsdóttir.
Vararitari klúbbsins er Elín
Halldóra Friðriksdóttir, vara-
gjaldkeri Elín Rafnsdóttir,
stallari Karl Júlíusson, vara-
stallari Bjarni Rúnar Rafns-
son, siðameistari Auðunn
Pálsson og varasiðameistari
Arni Arnason.
Stofnfélagar eru þrjátíu og
fjórir 14 til 16 ára unglingar
en 53 einstaklingum á þessum
aldri var sent bréf, þar sem
stofnun þessa klúbbs var
kynnt.
Nafnið á klúbbnum, LEO-
klúbburinn Siggi, var fengið
með samþykki Sigurðar Ing-
varssonar og fjölskyldu í
Garði, til minningar um fatl-
aðan son þeirra, Sigurð Sig-
urðsson, sem lést fyrir tveim-
ur árum síðan. Fjölskylda Sig-
urðar Ingvarssonar gaf LEO-
klúbbnum 30.000 krónur til
minningar um drenginn, á
stofnfundinum.
Formaður LEO-nefndar
Lionsklúbbsins Garðs er Rafn
Guðbergsson, ritari Friðrik
Valgeirsson og aðrir í nefnd-
inni eru Jörgen Bent Pet ersen
og Richard D. Woodhead.
Fjárgirðingin í Grindavík:
Búið að loka hólfinu
Beitarhólfi því sem er í
Grindavík og smali okkar
Suðurnesjamanna, Theodór
Guðlaugsson, kvartaði yfir að
væri opið, í síðasta blaði, hefur
nú verið lokað. Var í síðustu
viku girt áfram yfir kambinn
og vonast menn því að hólf
þetta sé orðið fjárhelt.
Varðandi fjárgirðingarnar á
Vatnsleysuströnd hafa enn
engin viðbrögð borist, nema
livað mál þessi hafa mikið ver-
ið rædd síðan Theodór kom
hér í viðtal.
N auðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni
Heiðarhraun 32a, Grindavík,
þingl. eigandi Stígandi hf., fer
fram á eigninni sjálfri, mið-
vikudaginn 2. nóvember 1988
kl. 15:30. Uppboðsbeiðendur
eru: Reynir Karlsson hdl., Bæj-
arsjóður Grindavíkur og Ingi
H. Sigurðsson hdl.
þriðja og síðasta á fasteigninni
Sólvallagata 42, 2. hæð, Kefla-
vík, talinn eigandi Sigvarður
Halldórsson, fer fram á eign-
inni sjálfri, miðvikudaginn 2.
nóvember 1988 kl. 10:00. Upp-
boðsbeiðendur eru: Bæjarsjóð-
ur Keflavíkur, Veðdeild
Landsbanka Islands, Bruna-
bótafélag Islands og Bæjar-
sjóður Keflavíkur.
þriðja og síðasta á fasteigninni
Túngata 2, efri hæð, Sandgerði,
þingl. eigandi Ernir h.f., fer
fram á eigninni sjálfri, mið-
vikudaginn 2. nóvember 1988
kl. 11:00. Uppboðsbeiðandi er
Veðdeild Landsbanka íslands.
þiiðja og síðasta á fasteigninni
Víkurbraut 48, efri hæð,
Grindavík, þingl. eigandi
Bjarni G. Agústsson, ferfram á
eigninni sjálfri, miðvikudaginn
2. nóvember 1988 kl. 15:00.
Uppboðsbeiðendur eru: JónG.
Briem hdl., Tryggingastofnun
Ríkisins, Björn Ölafur Hall-
grímsson hdl., Innheimtumað-
ur ríkissjóðs, Róbert Arni
Hreiðarsson hdl., Ævar Guð-
mundsson hdl. og Brunabóta-
félag íslands.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavik og Njarðvík.
Sýslumaðurinn
í Gullbringusýslu.
\
Nýja viðbótin á beitarhólfinu á nesinu neðan Hóps í Grindavík.
Ljósm.: hpé/Grindavík
Afmæli
I gær átti Guðrún Árnadótt-
ir merkisafmæli. Hún hefur
náð þeim aldri, þar sem tölur
skipta ekki lengur máli.
Við óskum henni innilega til
hamingju með daginn.
„Nefndin'*