Víkurfréttir - 21.03.1989, Blaðsíða 1
Vúam
Þjóturinn fékk samviskubit:
Grindavík:
Tilraunaeldi á
sæsnigli gefur
góða raun
I tilraunastöð Hafrann-
sóknarstofnunar í Grindavík
hefur að undanförnu staðið yf-
ir tilraunaeldi á sæsniglum í
samráði við tvo Bandaríkja-
menn. Sæsnigill þessi er lítið
dýr sem kann best við sig í
skyggðu umhverfi og er nefnt
sæeyra. Er það aðeins um 150
grömm að þyngd og nærist á
þara. Þarf 1Ó kg af þara til að
búa til 1 kíló af sæeyrum.
Er hér um mjög verðmæta
framleiðslu að ræða og er talið
að fyrir hvert dýr megi fá um
tvo bandaríkjadali. Banda-
ríkjamennirnir, sem hér hafa
verið vegna eldisins, eru yfir
sig hrifnir af niðurstöðum
rannsóknarinnar hér, að því er
fram kom í fréttum Stöðvar 2
nú nýverið. Hér vex dýrið bet-
ur en í stöð þeirra í Kaliforníu.
Nú er því allt útlit fyrir að
Bandaríkjamennirnir stofni
með íslenskum fyrirtækjum
stóra eldisstöð hér á landi og
hefji framleiðslu á dýrunum til
útflutnings. Hafa mörg sterk
fyrirtæki sýnt málinu mikinn
áhuga varðandi þátttöku í
slíkum rekstri. Komu fulltrú-
ar um 40 fyrirtækja á fund með
Bandaríkjamönnunum tveim-
ur, sem haldinn var í síðustu
viku.
Hefur verið rætt um að
koma á stofn eldisstöð sem
framleiði um milljón dýr á
mánuði eða 12 milljónirdýraá
ári, sem gæfi um 1200 milljón-
ir króna á ársgrundvelli, að því
er fram kom í umræddum
fréttatíma.
Hitaveitan:
Skaðabóta-
skyldu hafnað
Stjórn Hitaveitu Suður-
nesja hefur tekið þá ákvörð-
un að hafna óskum húseig-
enda um greiðslu á tjóni
vegna tæringar í miðstöðvar-
ofnum. En eins og fram kom
í síðasta tölublaði hefur
fjöldi húseigenda skrifað
undir þá ósk að Hitaveitan
gerist ábyrg fyrir tjóni þessu
og þar af sendu nokkrir
þeirra reikninga til stuðnings
máli sínu. .
A síðu 15 í blaðinu í dag
birtist greinargerð frá Al-
berti Albertssyni, fram-
kvæmdastjóra tæknisviðs
hjá Hitaveitu Suðurnesja,
þar sem hann gerir grein
fyrir stöðu málsins af hálfu
fyrirtækisins og hvers vegna
skaðabótaskyldu er hafnað.
Skilaði þýfinu
Þjófurinn sem braust inn í
nýbyggingu Kaupfélags Suð-
urnesja í Grindavík nýverið,
og við greindum frá fyrir
skömmu, hefur greinilega
fengið samviskubit vegna
gerða sinna, því kl. fimm að-
faranótt síðasta laugardags,
þegar lögregluþjónar á lög-
reglustöðinni í Grindavík
voru að fara í eftirlitsferð,
fundu þeir pakka utan við
lögreglustöðina, sem í voru
verkfæri þau er tekin höfðu
verið úr nýbyggingunni.
Að sögn Sigurðar Ágústs-
sonar, aðalvarðstjóra, þá
skildi þjófurinn einnig eftir
bréf þar sem hann lýsti því
yfir að eftir lestur fréttarinn-
ar í Víkurfréttum, þá hefði
hann iðrast gjörða sinna og
vildi að birt yrði í blaðinu
hvað af þýfinu vantaði, svo
hann gæti sent greiðslu fyrir
því.
Sagði Sigurður að aðeins
nokkrar kýttistúpur vantaði
af þýfinu, annars væri allt
annað komið til skila.
Fengu páskaegg og sparibauka
Börnin á leikskólanum
Gimli í Njarðvík fengu sann-
arlega óvæntan glaðning í
síðustu viku, þegar Unnar
Ragnarsson í Fíabúð kom í
heimsókn og færði börnun-
um páskaegg að gjöf. Einnig
kom Þórarinn Eyþórsson,
bankastjóri Landsbanka ís-
lands í Leifsstöð, og færði
börnunum sparibauka með
Tinna, Tobba og Kolbeini
kapteini að gjöf.
Er það orðinn árlegur við-
burður hjá Unnari að fara á
leikskólana í Njarðvik og
færa börnunum páskaegg,
sem þau kunna svo sannar-
lega að meta, enda sungu
börnin þakkarsöng fyrir þá
Unnar og Þórarinn í kveðju-
skyni í síðustu viku.
Kaup SBK
á „Steindóri"
undirrituð
Búið er að skrifa undir
kaup Sérleyfisbifreiða Kefla-
víkur á fyrirtæki Steindórs
Sigurðssonar. Gerðist það á
mánudag og var skrifað und-
ir með fyrirvara um sam-
þykki bæjarstjórnar Kefla-
víkur.
Mun Steindór afhenda
bílafiota sinn með viðhöfn á
sjálfan afmælisdag Keflavík-
ur þann 1. apríl. En einnig er
gert ráð fyrir því í samningn-
um að hann starfi hjá SBK
sjálfur fram til 1. júlí nk.
Lagning hitaveituæðar til Leifsstöðvar:
FRAMKVÆMDIR HAFNAR
Hafnar eru framkvæmdir
við lagningu hitaveituæðar
til fiugstöðvarsvæðisins frá
Fitjum. Mun með tilkomu
æðar þessarar verða mikil
bót fyrir Leifsstöð og næsta
nágrenni hennar. Hófust
framkvæmdirnar með form-
legum hætti kl. 11 að morgni
síðasta iaugardags.
Viðstaddir voru Júlíus
Jónsson, framkvæmdastjóri'
fjármálasviðs, Björn Stef-
ánsson, skrifstofustjóri, og
Finnbogi Björnsson, stjórn-
arformaður, af hálfu hita-
veitunnar, Guðmundur
Björnsson frá Verkfræði-
stofu Suðurnesja og fulltrúi
verktaka, en verkið er í
höndum verk^akafyrirtækis-
ins Gunnars og Guðmundar
s.f.
Að sögn Júlíusar Jónsson-
ar hljóðar tilboð verktakans
upp á tæpar 20 milljónir
króna. Miðast tímalengd við
að þann 15. júlí ísumarverði
vatni hleypt á og öllum frá-
gangi verði lokið 15. ágúst.
Umræddur verktaki var á
sínum tíma með þeim stór-
tækustu er hitaveitan var
lögð um Suðurnesjasvæðið.
Frá upphafi framkvæmdanna á Fitjum. Ljósm.: epj.