Víkurfréttir - 21.03.1989, Side 2
2 Þriðjudagur 21. mars 1989
Fjögur um-
ferðarslys
í síðustu viku barst lög-
reglurtni í Keflavík fjórar til-
kynningar, þar sem slys urðu
á fólki í umferðaróhöppum.
Meiðsli voru þó ekki alvar-
leg en eignartjón á bifreiðum
ávallt mjög mikið,
Það fyrsta varð á þriðju-
dag á gatnamótum Reykja-
nesbrautar og Grindavíkur-
vegar. Þar var þrennt llutt á
sjúkrahús. Þá var aftursama
dag harður árekstur á gatna-
mótum Garðskagavegar og
Sandgerðisvcgar. Ökuniað-
ur annarar bifreiðarinnar
var barnshafandi og því
lluttur í öryggisskyni á
sjúkrahús.
Þá varð á föstudag þriggja
bíla árekstur á Reykjanes-
braut á móts við Ramma.
Ökutnaður einnar bifreiðar-
innar var lluttur ásjúkrahús.
Síðar sama dag var aftur
harður árckstur á Reykja-
nesbraut skammt frá hinum
en nú á gatnamótum Víkna-
vegar (Njarðarbrautar). Þar
var ökumaður annarar bif-
reiðarinnar fluttur á sjúkra-
hús.
Stolið úrólæst-
um bifreiöum,
báti og
sundmiðstöð
Á miðvikudag í síðustu
viku var brotist inn í Reyni
GK 177, þar sem hann lá í
Sandgerðishöfn. Var stolið
úr bátnunt myndbandstæki
og útvarpstæki.
Aðfaranótt föstudagsins
var farið inn í þrjár ólæstar
bifreiðar og stolið úr þeint
hljómtlutningstækjum. En
nokkuð er um þaðaðeigend-
ur bifreiða læsi þeim ekki og
bjóði því heim slíkum þjófn-
uðum.
Brotist var inn í sundmið-
stöðina í Sandgerði aðfara-
nótt sunnudagsins. Nokkrar
skemmdir voru unnar og um
4.700 krónurn stolið úr pen-
ingakassa.
Ágæt veiði
Keflavíkur-
báta
Veiði hjá Keflavíkurbát-
um var ájgæt í síðustu viku.
Albert Olafsson var með
40,9 tonn eftir þrjá róðra og
Barðinn átti góðan túr og
landaði 21,7 tonni af góðum
afla eftir einn róður.
Happasæll var efstur með-
al netabáta með 51,6 tonn
eftir sex róðra, en næstur
kom Geirfugl með 45,4 tonn
eftir tvo róðra og þá kom
Stafnes með 34,4 tonn eftir
fimm róðra. Skagaröst land-
aði 41 tonni afslægðum alla í
síðustu viku.
Ein loðnulöndun var í
Njarðvík í síðustu viku,
Harpa landaði 550 tonnurn
til hrognatöku.
Þetta málverk sem sýnir háta í Dráttarbraut Keflavíkur í forgrunn, var fyrsta verkið sem bærinn eign
aðist. Það var Lionsklúbbur Keflavíkur sem gaf það á 25 ára afmæli bæjarins. Ljósmyndir: hbb
1IJ r ^ afÍbiiSílÍfÍíl
II 4 'T"T» 1 «
i iir^'ig Wjl . | I i|
&oiZINHtah|^ SÆ
40 ára afmæli Keflavíkur:
Fjölsótt listsýning
í Fjölbraut
Margt manna var viðstatt
opnun listaverkasýningar
Listasafnsnefndar Keflavík-
ur á sunnudag, þar sem sýnt
er úrval úr listaverkaeign
Keflavíkurbæjar, sem telur
á milli 70 og 80 verk. Auk
þess sýna á listaverkasýning-
unni 19 Keflvíkingar og er
þetta jafnframt sölusýning.
Myndverk eftir börn úr
Myllubakkaskóla setja
nokkurn svip á sýninguna en
þar er að finna mörg glæsileg
verk, meðal annars af bygg-
ingum og hlutum í byggðar-
laginu.
Forseti bæjarstjórnar
Keflavíkur, Anna Margrét
Guðmundsdóttir, ávarpaði
sýningargesti og setti sýning-
una. Hlíf Káradóttir söng
einsöng við undirleik Ragn-
heiðar Skúladóttur og
Gunnar Eyjólfsson leikari
las úr bókmenntum. Þá var
börnum úr Myllubakka-
skóla veittar viðurkenning-
ar fyrir myndverk sín á sýn-
ingunni.
Sýningin á listaverkunum
verður opin til 26. mars en
mun loka frá 27. til 31. mars
og síðan verða opin á afmæl-
isdaginn 1. apríl. Virka daga
er sýningin opin frá 20-22 og
um helgar frá 14-22.
Anna Margrét Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Keflavikur,
ávarpaði gesti sýningarinnar og setti hana.
I'jöldi gesta var viðstaddur opnun listsýningarinnar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
Eldur í
Jöfri KE
Eldur kom upp í rækjutog-
aranum Jöfri KE 17 snemma
á laugardagsmorgun þar sem
hann var til viðgérðar í slippn-
um í Reykjavík. Lagði mikinn
reyk frá skipinu en er slökkvi-
liðið í Reykjavík kom á vett-
vang var eldur ekki mikill og
gekk því greiðlega að ráða
niðurlögum hans.
Er talið að rekja megi elds-
upptökin til þess að verið var
aft logsjóða í kælivélarúminu
og fyrir ntistök var logsuðu-
tækinu beint að olíuröri.
f
Loðnu-
veiðar á
Breiðafirði
Fyrsta loðnan, sem veiddist
á þessari loðnuvertíð fyrir
norðan Garðskaga, fékkst að-
faranótt laugardagsins á
Breiðaflrði, út af Öndverðar-
nesi. Voru það þrír Suður-
nesjabátar sem fylltu sig þar
og lönduðu loðnunni í heima-
höfnum.
Voru þetta Grindavíkur-
bátarnir Háberg og Sunnu-
berg og Sandgerðisbáturinn
Dagfari. Var loðna þessi í
vinnsluhæfu ástandi og fór því
hluti hennar í frystingu.
Albert Alberts-
son oddamað-
ur stjórnar
Vatnsveitunnar
Albert Albertsson, fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs
Hitaveitu Suðurncsja, hefur
verið skipaður oddamaður í
stjórn Vatnsveitu Suðurnesja
s.f. Þá hefur stjórnin sam-
þykkt að Oddur Einarsson
verði formaður og Guðfinnur
Siguninsson ritari.
Einnig hafa komið upp hug-
myndir um að fjölga stjórnar-
mönnum úr 5 í 7. Nánar er
fjallað um það i Molum og á
bls. 14.
Studeo-
þjófnaðurinn
upplýstur
Um síðustu helgi upplýst-
ist þjófnaður, sem framinn
var í versluninni Studeo 19.
febrúar s.l. Þar var stolið
tveimur geislaspilurum og
15-20 geisladiskum. Erþýfið
nú allt komið í ieitirnar en
búið var að selja það út á
land.