Víkurfréttir - 21.03.1989, Blaðsíða 6
6 Þriðjudagur 21. mars 1989
ATVINNA
Starfsmaður óskast til starfa við
filmuframköllun.
Verzlunin Hljómval
Suðurnesjabúar athugið
Tek aftur til starfa á tannlæknastofu
minni að Suðurgötu 24 í byrjun apríl.
Þorleifur Matthíasson
tannlæknir.
FJÓRFALDUR
GETRAUNApottur
ÞREFALDUR
LOTTÓpottur
íþróttavallarhúsið við Hringbraut í Kefla-
vík er opið fimmtudag (skírdag) kl. 13-21
og laugardag kl. 10-20:15.
Góð aðstaða fyrir tippara - sérfræðingar
ÍBK veita ráðgjöf og aðstoð.
Komið tímanlega - það er betra!
r
Munið að getraunanúmer IBK er 230
Með því að versla við ÍBK
styrkið þið íþrótta- og æsku-
lýðsstarfsemi í Keflavík.
Kannski verður þú næsti
MILLJÓNERI!
\>iKur<
molar Grín - Gagnrýni - Vangaveltur Umsjón: Emil Pá/l
Gott framtak Það er skammt stórra högga á milli hjá Knatt- borðsstofu Suðurnesja. Næsta verkefni stofunnar er umfangsmesta snókermót sem haldið hefur verið hér á landi og nefnist „Ásamót- ið“. Það mun fara fram sam- tímis á 24 stofum víðsvegar um landið. Sigurvegararnir á hverjum stað leika í úrslitum á Knattborðsstofu Suður- nesja 1. apríl nk. en úrslita- leikurinn síðan sýndur í beinni útsendingu í ríkis- sjónvarpinu 8. apríl. Allur ágóði af mótinu mun renna beint til SÁÁ... ...síðan handboltinn , Hinir hugmyndaríku starfsmenn Knattborðsstofu Suðurnesja munu, að loknu SÁÁ-mótinu, halda annað styrktarmót, og var Hand- knattleikssamband íslands næst fyrir valinu. Það mót verður með svipuðu sniði og Ásamótið en með örlítið meira „kryddi“ ef svo má segja, því landsliðsmennim- ir munu dreifa sér á stofurn- ar þegar mótið fer fram og vera gestaþátuajcendur á hverjum stað. Úrslitaleikur- inn fer svo fram í sjónvarps- útsendingu hjá Stöð 2.... Góðar vinningslíkur í Öldunni Áður hefur verið sagt frá góðum vinningum sem feng- list hafa út á skafmiða og skyndihappdrattismiða, keypta í Öldunni í Sand- gerði. Nú hefur sami leikur- inn endurtekið sig, því bæði Lancia bíll og utanlandsferð komu á miða kcypta þar nú 1 fyrir skemmstu. Var i báðum tilfellum um skafmiða áð ræða, annars vegar frá SÁÁ og hins vegar Fjarkinn. Gallinn horfinn Tískuvöruverslunin Gall- inn, sem var til húsa að Hafnargötu 26 í Keflavík, er nú horfin af sjónarsviðinu en í staðinn er kominn þar leik- tækjasalur í eigu sama aðila og átti Gallann, þ.e. Friðriks Smára Friðrikssonar, sem einnig á hluta í Ungó og verslunina Ný-ung. Bjórinn vinnur með löggunni Hver hefði trúað því að með tilkomu bjórsins hefði lögrcglan gengið í gegnum tímabil þar sem afskipti af ölvuðu fólki minnkaði snar- lega? Það er þó raunin á. a.m.k. varðandi lögregluna í Keflavík, sem nú þrátt fyrir hrakspár fyrir B-daginn, skilur ckki neitt í neinu. Brói með - Brói móti Gárungarnir í Njarðvík vísa rnargir á það hvað lífið tekur stundum á sig ein- kennilegar myndir. Tökum sem dæmi stöðu Guðmund- ar Sigurðssonar (Bróa) í bæj- arráði Njarðvíkur. Algengt er að hann sé þar sammála öðrurn bæjarráðsmönnum. Síðan kemur málið fyrir í bæjarstjórn og þá er liann sammála flokksbræðrum sínurn og greiðir þvt stund- um atkvæði gegn fyrri sam- þykkt sinni. Þetta kalla gár- ungarnir að fara í hringi. Fjölgað í vatnsveitunni? Nú berást fréttir um að svo geti farið að fjölgað verði úr 5 í 7 í stjórn Vatnsveitu Suður- nesja. Með því móti gætu’ meirihlutamenn í Keflavík og Njarðvik haldið meiri- hluta sinum í stjórninni, þó svo fari að minnihlutinn fái einnig mann kjörinn. Einkaréttur á rafvirkjavinnu Fregnir hafa borist af því að nú sé það rætt alvarlega hvort ekki væri rétt að ráða rafvirkja til starfa hjá Njarð- víkurbæ. Ástæðan mun vera sú að ýmsum ráðamönnum finnst kostnaður þess aðila, sem þjónar bæjarstofnunum í þessari iðngrein í henni Njarðvík, vera all háir. Eins eru margir sem telja það ekki viðeigandi að einn bæjarfull- trúa hafi einkarétt á þessari þjónustu við bæjarfélagið. „Bílakringla“ Grófin í Keflavík verður brátt nokkurs konar „bíla- kringla“ Suðurnesja, því nú um mánaðamótin mun Birg- ir Guðnason opna bíiasölu með nánast öllum þeim teg- undum bifreiða sem ekki hafa umboð hér á Suðurnesj- um, s.s. Honda, Daihatsu, Volvo, Nizzan, Subaru, Peu: geot, Chrysler og fleiri. í fralnhaldi af því ætlar Birgir að opna varahlutaverslun þarna í Grófinni, við hlið bílasölunnar, sem verður nokkurs konar pöntunar- verslun með lítinn lager, og felst aðallega í því að við- skiptavinurinrí kemur og pantar vöruna og fær liana afgreidda síðar um daginn eða morguninn eftir. Húsið. sem hýsir fyrir m.a. Bílasölu Suðurnesja, sem er með um- boð lyrir Bílaborg-Svein Eg- ilsson hf„ fær nafnið B.G. húsið og verður eins og fyrr greinir n.k. bílakringla Suð- urnesja...
Afmælishátíð Keflavíkurbæjar:
Fjölbreytt dagskrá
Hátíðarfundur bæjarstjórn-
ar Keflavíkur á Flug Hóteli,
laugardaginn l.aprílkl. 10.00.
Meðal fundarefnis: heiðurs-
borgari kjörinn.
Afmælishátíð laugardaginn
1. apríl í íþróttahúsinu við
Sunnubraut. Heiðursgestur
frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands. Hátíðin hefst
kl. 14.00 við listaverkið af
Stjána bláa við Hafnargötu og
verður listaverkið afhjúpað.
KI. 15.00 hefjast hátíðarhöldin
í íþróttahúsinu. Allir bæjarbú-
ar boðnir velkomnir.
Dagskrá:
Setning forseta bæjarstjórn-
ar Keflavíkur, Önnu Margrét-
ar Guðmundsdóttur.
Ávarp forseta Islands, frú
Vigdísar Finnbogadóttur.
Ávarp félagsmálaráðherra,
Jóhönnu Sigurðardóttur.
Ávarp bæjarstjórans í
Keflavík, Guðfinns Sigurvins-
sonar.
Leikþáttur barna úr Myllu-
bakkaskóla.
Söngur: Einar Júlíusson og
Olöf Einarsdóttir.
Atriði úr Gömlu Keflavík í
umsjá Leikfélags Keflavíkur.
Söngur Karlakórs Keflavík-
ur.
Fimleikasýning hjá Fim-
leikafélagi Keflavíkur.
Danssýning í umsjá Dans-
skóla Auðar Haralds.
Veitingar verða í nýja
íþróttasalnum eftir dag-
skrána.
Júdómót á vegum Júdó-
deildar UMFK sunnudaginn
2. apríl í íþróttahúsinu í Kefla-
vík kl. 10.00. i
Tónlistarhátíð í íþróttahús-
inu í Keflavík, laugardaginn 8.
apríl kl. 16.00. Keflvískir tón-
listarmenn flytja. M.a. koma
fram: Hljómar, Pandóra,
Sing-Sing, María Baldursdótt-
ir, Rut Reginalds, Gunnar
Þórðarson, Rúnar Júlíusson,
Jóhann Helgason, Einar Júl-
íusson, Magnús Kjartansson,
Finnbogi Kjartansson, Þor-
steinn Eggertsson, Mummi og
Bubbi.
Sýning Brúðuleikhússins
sunnudaginn 2. apríl í Félags-
bíói. Sýningar verða tvær, kl.
14.00 og 16.00.
Einsöngstónleikar Hlífar
Káradóttur sópran á vegum
Tónlistarfélags Keflavíkur í
Félagsbíói 5. apríl 1989 kl.
20.30. Undirleikari Lára
Rafnsdóttir.
Leikfélag Keflavíkur sýnir
revíuna „Við kynntumst fyrst í
Keflavík." Sýningar eru í Fél-
agsbíói.
Frumsýning föstudaginn 7.
apríl kl. 21.00.
2. sýning laugardaginn 8.
ápríl kl. 21.00.
3. sýning sunnudaginn 9.
apríl kl. 17.00.
4. sýning sunnudaginn 9.
apríl kl. 21.00.
5. sýning þriðjudaginn 11.
apríl kl. 21.00. Öldruðum
Keflvíkingum boðið sérstak-
lega á 5. sýningu.
Innanfélagsmót Fimleika-
félags Keflavíkur sunnudag-
inn 9. apríl i íþróttahúsi Kefla-
víkur. Stendur frá 10.00 til
17.00.
Kennaratónleikar Tónlist-
arskóla Keflavíkur mánudag-
inn 10. apríl kl. 20.30 í Tónlist-
arskólanum við Austurgötu.