Víkurfréttir - 21.03.1989, Blaðsíða 7
muK
jutUi
Þriðjudagur 21. mars 1989
Hertar innheimtuaðgerðir
Gjaldheimtu Suðurnesja:
Fyrirtæki
innsigluð
vegna
vanskila
Tvö fyrirtæki í Keflavík
voru innsigluð af fulltrúa
lögreglustjórans í Keflavík á
fimmtudag. Var þetta gert að
kröfu Gjaldheimtu Suður-
nesja vegna þess að viðkom-
andi fyrirtæki skulduðu orð-
ið meira en eina milljón í
staðgreiðslugjöld.
Þau fyrirtæki, sem innsigl-
að var hjá og öllum starfs-
mönnum vísað út, voru
Dráttarbraut Keílavíkur og
Utvegsmiðstöðin. Nokkur
önnur fyrirtæki fengu einnig
slíka heimsókn en tókst að
semja um skuldina eða
greiða hana á annan hátt og
sluppu þar með með skrekk-
inn.
Að sögn Asgeirs Jónsson-
ar gjaldheimtustjóra var
Innsigluð úti-
hurð í Útvegs-
miðstöðinni á
föstudagsmorg-
un. A minni
myndinni sést
hver^ig innsigl-
unarinerkin líta
út.
Ljósm.: hbb.
byrjað á slíkum aðgerðum í
Keflavík en síðan var farið í
hin byggðarlögin og þessu
beitt við þau fyrirtæki sem
skulda meira en eina milljón
staðgreiðslugjöld. A næst-
unni verður beitt slíkum að-
gerðum á fyrirtæki sem
skulda lægri upphæðir.
Varðandi Dráttarbraut-
ina, þá hófust þessar aðgerð-
ir þar um kl. 10 að morgni en
áður en þeim degi var lokið
höfðu samningar tekist milli
aðila og því gat eðlileg starf-
semi hafist þar á ný að
morgni föstudags.
Þrír nýirlögreglu-
bílar á leiðinni
Lögreglubílafloti Suður-
nesja mun styrkjast mikið á
þessu ári, því von er á þrem-
ur nýjum lögreglubílum til
lögregluembættisins í Kefla-
vík, Njarðvík, Grindavík og
Gullbringusýslu. Er búið að
ganga frá pöntun á bílunum,
en óvíst er hvenær þeir muni
koma.
Að sögn Þóris Marons-
sonar, yfirlögregluþjóns, er
hér um að ræða nýja bifreið
af Volvo gerð í stað þeirrar
sem fyrir er; BMW, sem mun
koma í stað Mözdunnar og
nýr Ford Econoline, sem
ætlaður er lögreglunni í
Grindavík.
Sigurður Agústsson, aðal-
varðstjóri Grindavíkurlög-
reglunnar, sagði að stærri
bifreið þeirra væri orðin
nokkuð lúin eftir níu ára
notkun. Væri bilanatíðnin
mikil og mikill rekstrar-
kostnaður og því myndi nýr
bíll koma sér vel, eða eins og
Sigurður sagði að lokum:
,,Við erum með lífíð í lúkun-
um yfir því hvenær bíllinn
hrynur endanlega.“
Allt í páskamatinn
Fermingargjafir í úrvali
OPIÐ SEM HÉR SEGIR:
Miðvikudag 22. mars kl. 10-20
Laugardag 25. mars kl. 10-14
Gleðilega páska!
FRÁBÆRIR
STEFFENS
JOGGING- og KRUMP-
GALLAR í NEON-LITUM.
Stærðir: 1-16.
ATHs Opið skírdag,
laugardag og 2. í pásk-
um frá kl. 10-23.
MSm
LL
Sandgerði
Munið fermingarskeyti Víkverja
Sölustaður að Holtsgötu 58 - Opið skírdag og
2. apríl kl. 10-18 og 2. í páskum kl. 10-16.
Nú er hægt að hringja og greiða með visa og euro.
Skátafélagið Víkverjar, Njarðvík
Lfkamsrækt ÖNNU LEll og BRÓA
NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 29. MARS
Það verður rosa gaman - dúndur stuð og allir í sólskinsskapi
Hinn eldhressi
MARK WILSON
verður gestakenn-
ari hjá okkur 6. maí.
Arshátíð verður í apríl.
Allir mœta í furðufötum
og með hatt!
Sjáumst hress, bless! - Anna Lea, Auður og Brói.
Til hamingju, Elva Hrund!