Víkurfréttir - 21.03.1989, Blaðsíða 12
MlKUH
12 Þriðjudagur 21. mars 1989
i*am
Útvegsbanki íslands hf.
- þar scm þekking og þjónusta fara saman -
Staða skrifstofustjóra
í Útvegsbanka íslands h.f. í Keflavík er laus
til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamn-
ingum S.Í.B. og bankanna.
Umsóknir óskast sendar undirrituðum
fyrir 1. apríl n.k.
Eiríkur Alexandersson
útibússtjóri.
Ferð fyrir aldr-
aða til Mallorca
2.-23. maí
Ásthildur Pétursdóttir kynnir ferðina í
Keflavík, miðvikudaginn 29. mars kl. 18 að
Suðurgötu 12-14 og í Grindavík kl. 14-17.
Ferðanefndin
Ný tannsmíðastofa
Hef opnað tannsmíðastofu að Tjarnargötu
2, 3.H., Bústoðarhúsinu, Keílavík. Tek að
mér alla almenna tannsmíðavinnu.
Pétur Már Pétursson
tannsmiður
sími 92-15279
Vatnsleysustrandarhreppur:
13 tilboð bárust
í sjóvarnar-
garðana
Á föstudag voru opnuð til-
boð í framkvæmdir við gerð
brimvarnargarðs í Vogahöfn
og sjóvarnargarðs í Brunna-
staðarhverfi á Vatnsleysu-
strönd. Að sögn Vilhjálms
Grímssonar sveitarstjóra
xbárust alls 13 tilboð í verkið.
Það lægsta nam 73,91% af
kostnaðaráætlun eða tæpum
5,6 milljónum króna og var
frá Suðurverki h.f. á Hvols-
velli. Það næst lægsta var frá
Vinnuvélum Suðurnesja og
nam 77,05% af kostnaðar-
áætlun eða 5,8 milljónum
króna. Það hæsta var hins
vegar upp á 13,6 milljónir og
var frá Borgarvirki. Kostn-
aðaráætlunin nam 7,5 millj-
ónum króna.
Var reiknað með að fjallað
yrði um tilboð þessi í hafnar-
nefnd í gær (mánudag) og í
hreppsnefnd í dag (þriðju-
dag).
Sjóuirnargurður á Vatnsleysuströnd, sem lengdur verður í áttina að
byggðinni í Vogum. Ljósm.: hbb.
Dagný Gísladóttir, starfsstúlka í Tangó ásamt öðrum eigenda verslunarinnar, Fannýju Sif Gísla-
dóttur. Ljósm.: hbb
^^CTILKYNNING
FRÁ PÓSTI OG SÍMA
KEFLAVÍK - NJARÐVÍK
Fermingarskeytaþjónustan verður með sama hætti og
undanfarin ár.
Skírdag, 23. mars, kl. 10-18.
2. í páskum, 27. mars, kl. 14-18
og 2. apríl kl. 10-18.
Geymið auglýsinguna
og notið
þjónustuna.
Stöðvarstjóri Pósts og Síma
Keflavík-Njarðvík Sími 15000
TANGÓ
við
Tjarnargötu
Nýverið opnaði tískuvöru-
verslunin Tangó verslun að
Tjarnargötu 3 í Keflavík, þar
sem tískuverslunin Tipp
Topp var áður til húsa.
Er þetta þriðja verslunin
sem opnar undir þessu nafni
en tvær eru reknar í Reykja-
vík. Eigendur Tangó í Kefia-
vík eru þau Fanný Sif Gísla-
dóttir og Oskar Gíslason.
Sagði Fanný í samtali við
blaðið að á boðstólum væri
tískufatnaður á allt hresst
ungt fólk, en fatnaðurinn
kæmi aðallega frá Ítalíu og
Amsterdam í Hollandi.