Víkurfréttir - 21.03.1989, Qupperneq 14
\>iKun
14 Þriðjudagur 21. mars 1989
(tam
Opnunartími
yfÍY páskahátíðina
SKIRDAGUR: LOKAÐ
FÖSTUDAGUR: LOKAÐ
LAUGARDAGUR: OPIÐ 11-22
PÁSKADAGUR: LOKAÐ
/ /
2. I PASKUM OPIÐ 11-22
Gleðilega páska!
Afleysinga-
manneskja
Afleysingamanneskja óskast tímabundið
til starfa við Tjarnarsel í Keflavík. Nánari
upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
12670. Eldri umsóknir óskast staðfestar.
Félagsmálastjóri
Oddur Einarsson, stjórnarformaður Vatnsveitu Suðurnesja:
Ályktanir
út f bláinn
Vegna frétta í blaðinu
Reykjanesi í síðustu viku óska
ég eftir að þér, ritstjóri góður,
birtið fyrir mig í næsta tölu-
blaði eftirfarandi.
Öllum Suðurnesjamönnum
er kunnugt um tilurð Vatns-
veitu Suðurnesja og ástæður
hennar. Eftir að mikið magn af
olíu fór niður úr tanki varnar-
liðsins var hafin allsherjar út-
tekt á grunnvatnsmálum hér í
Keflavík og Njarðvík. Rann-
sóknir leiddu í Ijós að grunn-
vatnið er mengað og mikil
hætta í því fólgin að hafa
vatnsból fyrir tíu þúsund
manna byggð við slíkar að-
stæður þótt mengunin sé enn
langt frá hættumörkum. Utan-
ríkisráðuneytið skipaði strax
starfshóp til að hafa yfirum-
sjón með þessum rannsóknum
og gera tillögur um úrbætur.
Þessi starfshópur starfaði
mjög mikið, hélt fjölda funda
og hafði hóp sérfræðinga í
vinnu um rúmlega eins árs
skeið við rannsóknir og síðan
við hönnun nýrrar vatnsveitu.
Þetta kostaði mikið fé sem
varnarliðið og íslenska ríkið
Smiðir, húsbyggjendur og fleiri
Nú gefst kostur á aðgangi að vélum og verkstæði til tímabundinna
verka, stórra og smárra. Hægt er að fá sérsmíðaða glugga, lausafög og
hvers konar útihurðir, vinnslu á efni í þakbrúnir, sólskýli, girðingar
og fleira.
Þarf að dytta að húsgögnum, lagfæra þetta eða hitt, en vantar að-
stöðu? Athugaðu málið. Þeir sem hafa hug á að byggja sumarhús,
garðhús, vinnuskúra eða eitthvað slíkt til flutnings, geta fengið að-
stöðu og aðstoð með aðgangi að vélum og verkstæði. Kynnið ykkur
aðstöðuna, og semjið ef henta þykir, á Iðavöllum 12A.
A.J.
F ermingarskey ti
KFUM og KFUK
Skeytasalan í Keflavík verður í KFUM og K húsinu, Hátúni 36,
fermingardagana, eins og undanfarin ár.
Húsið verður opið frá kl. 10-19 alla dagana. Fermingarbörn, sem ekki
verða heima á fermingardaginn, góðfúslega láti vita í KFUM og K
húsið, hvert senda á skeyti þeirra.
Fjölbreytt úrval skeytaeyðublaða er í boði. Til hagræðis er boðin
símaþjónusta í síma 14590 milli kl. 11 og 16.
Við vonumst eftir að bæjarbúar styrki starf okkar meðal æskunnar og
kaupi skeytin hjá okkur.
KFUM OG KFUK
Oddur Einarsson
hafa greitt að fullu. Af hálfu
okkar Suðurnesjamanna sátu í
þessum starfshópi auk mín
þeir Magnús H. Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Heilbrigð-
iseftirlits Suðurnesja og bæjar-
stjórinn í Keflavík, fyrst Vil-
hjálmur Ketilsson og síðan
Guðfinnur Sigurvinsson.
Niðurstaða þessarar vinnu
varð ljós skömmu fyrirsíðustu
jól og í framhaldi af því hófst
undirbúningur á tvennum víg-
stöðvum. Utanríkisráðuneytið
hóf undirbúning að samninga-
viðræðum við fulltrúa banda-
rískra yfirvalda um að þau
greiddu að fullu byggingar-
kostnað hinnar nýju vatns-
veitu og bættu með því fyrir
þann skaða sem hlotist hefur
af starfsemi varnarliðsins.
Hér heima hófst hins vegar
undirbúningur að stofnun fyr-
irtækis sem gæti tekið við því
verkefni að byggja vatnsveit-
una, en byggingarkostnaður
hennar er í dag áætlaður á
fjórða hundrað milljóna
króna. Vegna hinnar viðvar-
andi mengunar þótti og þykir
enn með öllu ófært annað en
að veitan verði byggð næsta
sumar og komist í gagnið fyrir
næstu áramót. Þess vegna ersá
tími sem til stefnu er svo
skammur að hver dagur getur
skipt sköpum um það hvort
þessi tímaáætlun stenst. Und-
irbúningi hér heima hefur ver-
ið hraðað svo sem kostur er til
að fyrirtækið gæti farið að
semja við hönnunaraðila og
panta efni, en afgreiðslufrest-
ur á efni er einn af mest tak-
markandi þáttum í málinu.
Fyrstu drög að stofnsamn-
ingi sameignarfélags milli
Keflavíkur og Njarðvíkur
urðu til í nóvemberlok á síð-
asta ári. Þau drög gerðu ráð
fyrir að félaginu yrði í fyrstu
skipuð eins konar bráða-
birgðaframkvæmdastjórn sem
hefði það meginmarkmið að
hafaumsjón meðframkvæmd-
um við veituna og í henni sætu
bæjarstjórarnir og bæjarverk-
fræðingarnir í Keflavík og
Njarðvík auk oddamanns.
Þessi drög tóku nokkrum
breytingum frá því þau fyrst
sáu dagsins ljós og þangað til í
lok janúar s.l., en ákvæðið um
skipan bráðabirgðafram-
kvæmdastjórnar var óbreytt
og engin athugasemd við það
gerð í bæjarstjórn Njarðvíkur.
Þá kom hins vegar í ljós að
bæjarstjórn Keflavíkur hafði
athugasemdir við ákvæðið og
óskaði eftir að í samningnum
yrði ekki ákveðið hverjir sætu í
þessari stjórn en bæjarstjór-
þessari stjórn en bæjarstjórn-
irnar tilnefndu í hana. Þessi at-
hugasemd frá bæjarstjórn
Keflavíkur kom eftir að bæjar-
stjórn Njarðvíkur hafði sam-
þykkt drögin fyrir sitt leyti og
falið bæjarráði endanlegan
frágang málsins. Því er full-
Ijóst að bæjarráð Njarðvíkur
hafði fullt umboð frá bæjar-
stjórn til að ganga frá samn-
ingi þessum. í bæjarráði var
enginn ágreiningur um hið
breytta ákvæði um stjórnar-
skipan og ekki heldur um til-
nefningu bæjarstjóra og for-
manns bæjarráðs í stjórnina.
Staðfestingar bæjarstjórnar
var því ekki þörf hvorki á
samningnum sjálfum né á til-
nefningu í stjórnina þar eð
bæjarráð hafði umboð til að
ganga frá samningnum og
bæði um hann og um tilnefn-
ingu í stjórnina var alger ein-
hugur í bæjarráði.
Ályktanir blaðsins Reykja-
ness um meint umboðsleysi
stjórnarmanna eru því út í
loftið og umræða þess um hlut-
fallskosningar á alls ekki við
því ósk um hlutfallskosningu
kom ekki fram fyrr en löngu
eftir að búið var að afgreiða
málið endanlega með fullu
samkomulagi við fulltrúa
minnihlutans.
Oddur Einarsson,
stjórnarformaður V.S.
Skuldir Knattspyrnuráðs ÍBK:
Hækka um hundruð
þúsunda á mánuði
Skilanefnd IBK hefur ósk-
að eftir bæjarábyrgð vegna
skulda knattspyrnuráðs. Hef-
ur bæjarstjórn Keflavíkur
hafnað erindi þessu. Er málið
var þar til afgreiðslu sátu þau
Drífa Sigfúsdóttir og Magnús
Haraldsson hjá.
Á fundi bæjarstjórnar
Keflavíkur, undir umræðu um
fundargerð íþróttaráðs, kom
fram að skuldabaggi knatt-
spyrnuráðs ÍBK hækkar um
200-300 þúsund krónur á
mánuði vegna vaxtakostnað-
ar.