Víkurfréttir - 21.03.1989, Síða 18
viKun
18 Þriðjudagur 21. mars 1989
lljörg hampar íslandsbikarnum. Meistaralið I15K. Ljósmyndir: mad.
„Ætlum að vinna bikarinn lfka“
- Glæsilegur sigur kvennaliðs ÍBK í 1. deild körfuboltans
„Við ætlum okkur að vinna
bikarinn líka“ sögðu þær
Anna María Sveinsdóttir og
Björg Hafsteinsdóttir, þegar
þær hömpuðu Islandsmeist-
arabikarnum, sem þær fengu
íslandsmeistarar 4. II. ÍBK á-
samt þjláfara sínum, Frey
Sverrissyni. í minni myndinni
er Sunna Sigurðardóttir með
Islandsbikarinn, sæl og glöð.
Ljósm.: pkct.
25 ára
langri bið
lokið
4
4. flokkur
ÍBK fslands-
meistari í
handbolta
afhentan í leikhléi hjá ÍBK og
KR í Keflavík á laugardag.
Þær eru tvejr af burðarásum
kvennaliðs IBK í körfubolta,
sem sigraði annað árið í röð í
1. deild kvenna. „Þetta hefur
gengið vel í vetur. Við töpuð-
um aðeins tveimur leikjum en
deildin var ekki eins jöfn nú og
í fyrra. Það sem háir okkur
helst er aðstöðuleysi. Við höf-
um aðeins æft l-2svar í viku í
allan vetur en þetta lagast
vonandi með nýja salnum“
jft^. _ 1
I® I €«
Þær grétu gleðitárum, stúlk-
urnar í 4. flokki ÍBK í hand-
bolta, þegar þær höfðu tryggt
sér íslandsmeistaratitilinn eft-
ir sigur á Breiðabliki i úrslita-
leiknum, sem fram fór í Kefla-
vík á sunnudag. Ekki dugði
venjulegur leiktimi því þá
höfðu bæði lið skorað 6 mörk
en Blikastúlkurnarsýndu mik-
ið harðfylgi með því að skora
þrjú síðustu mörkin.
En Keflavíkurstúlkurnar
voru ákveðnari í framlenging-
unni þrátt fyrir að UBK hafi
skorað fyrsta markið og skor-
uðu 3 mörk gegn 2 og sigruðu
því samanlagt 9:8.
„Það er erfiðara að vera
þjálfari i svona spennuleikj-
um“ sagði Freyr Sverrisson,
þjálfari stúlknanna, í leikslok
og var að vonum kampakátur.
Hann hefur einnig þjálfað þær
í knattspyrnu, þar sem þær
sögðu þær stöilur að lokum en
þess má einnig geta að ÍBK
Íiðið er það yngsta í 1. deild-
inni með meðalaldur 17-18 ár.
Þannig að Keflvíkingar þurfa
ekki að kvíða framtíðinni.
hafa tvívegis orðið íslands-
meistarar. Þær Asdís Þorgils-
dóttir og Sunna Sigurðardótt-
ir markvörður voru bestar í
góðu ÍBK-liði i úrslitakeppn-
inni, sem fram fór í Keflavík
um s.l. helgi. Þar unnu Kefla-
víkurstúlkurnar alla sína leiki
nokku örugglega. Fyrst lögðu
þær ÍBV 8:7, því næst ÍR 13:6,
KR unnu þær 7:2, Selfoss 8:6
og síðan UBK 9:8, eins og áður
er getið. 1 úrslitaleiknum áttu
jutUt
Ásamótið í snóker:
Stærsta
snókermót
sem haldið
hefur verið
hér á landi
Laugardaginn 25. þ.m. fer
fram umfangsmesta snóker-
mót sem haldið hefur verið hér
á landi, „Asamótið í snóker“.
Verður mótið haldið samtímis
um allt land og það á 24 stof-
um af þeirn 28 sem á landinu
eru.
Fyrirkomulag mótsins er
útsláttur og eru spilaðir „þrír
rammar", þ.e.a.s. sá vinnur
sem er fyrr til að vinna 2
ramma. Þeir 24 spilarar sem
vinna hver sitt heimamót
munu síðan leiða saman hesta
sína á Knattborðsstofu Suður-
nesja í Keflavík laugardaginn
1. apríl kl. 10:00. Þar verður
mótinu síðan haldið áfram þar
til tveir menn standa eftir og
munu þeir að lokum leika til
úrslita í beinni sjónvarpsút-
sendirtgu RUV laugardaginn
8. apríl.
Reikna má með að um 20
spilarar taki þátt í undanrás-
um mótsins á þeim stofum sem
taka þátt, en það þýðir að
heildarfjöldi keppenda gæti
orðið um 480 manns, sem er að
sjálfsögðu algjört met. Þátt-
tökugjaid í mótið er kr. 1500
fyrir fullorðna en kr. 1000 fyr-
ir unglinga 16 ára og yngri, og
rennur sú upphæð óskipt til
SÁÁ.
Skorað er á alla sem áhuga
hafa á íþróttinni að vera nú
með, þar sem um mjög góðan
málstað er að ræða. Jafnvel
geta þeir sem vilja leggja góðu
máli lið skráð sig í mótið án
þess að spila með, og rennur þá
þeirra styrkur til SÁÁ. Frest-
ur til að skrá sig til þátttöku
rennur út kl. 22:00 fimmtu-
daginn 23. þ.m.
þær Ásdís og Sunna sannkall-
aðan glansleik, þó svo að Ás-
dís hafi verið tekin úr umferð
megnið af leiktímanum.
Sunna lokaði nánast markinu í
seinni hálfleik og varði víti á
örlagastundu.
Þessi Islandsmeistaratitill er
sá fyrsti í 25 ársem Keflvíking-
ar eignast í handbolta og er
óhætt að segja að það hafi ver-
ið kominn tími til.
BIKARKEPPNI HSÍ -16 LIÐA ÚRSLIT M.FL. KARLA:
gegn íslands- og bikarmeisturum
VALS
fimmtudaginn 23. mars (skírdag) kl. 17.00 í íþróttahúsi Keflavíkur.
Keflvíkingar - Suðurnesjamenn!
Komið og hvetjið ykkar menn gegn
landsliðsmönnum VALS.
Sparisjóðurinn í Keflavík
- fyrir þig og þína