Víkurfréttir - 21.03.1989, Blaðsíða 20
mun
jtiUii
Þriðjudagur 21. mars 1989
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717.
Tvær í
öruggum vexti.
Sparisjóðurinn
- fyrir þig og þína
Klárar Jón Kr. dæmið?
- Þriðji leikur IBK og KR verður
á miðvikudagskvöld í Keflavík
„Við ætlum okkur að klára dæmið og vinna þriðja leikinn. Það fór
ýmislegt úrskeiðis hjá okkur í kvöld en ég er bjartsýnn og við ætlum
okkur ekkert annað en sigur“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálfari ÍBK,
eftir tap gegn KR í gærkvöldi í Hagaskóla, 85:92. í leikhléi höfðu
KR-ingar tveggja stiga forskot, 44:42.
Keflvíkingar byrjuðu vel og
höfðu yfirhöndina til að byrja
með. KR-ingar komu síðan
meira inn í myndina þegar líða
tók á leikinn og höfðu tvö stig
yfir þegar flautað var til leik-
hlés. Guðjón Skúlason, sem
lék með Keflvíkingum þrátt
fyrir meiðsli, fór hamförum
síðustu mínúturnar og skoraði
9 af 11 síðustu stigum liðsins
fyrir leikhlé.
KR-ingar byrjuðu seinni
hálfleikinn mjög vel og þegar
hann var hálfnaður höfðu þeir
náð 12 stiga forystu, 70:58, og
þann mun tókst Keflvíkingum
aldrei að brúa til fulls.
„Slök vítahittni tók okkur
út úr leiknum. Eins voru dóm-
ararnir slakir. Þeir dæmdu öll
vafaatriði KR-ingum í hag. En
það skiptir ekki máli. Við
munum ekki hugsa um dóm-
ara í seinni leiknum. Við mun-
um leika til sigurs og ná Is-
landsmeistaratitlinum í fyrsta
sinn“ sagði Axel Nikulásson,
einn reyndasti og besti maður
ÍBK.
„Við lékum betri sókn en í
fyrri leiknum en þetta var erf-
itt. Eg vona að síðasti leikur-
inn verði góður, þó svo að úr-
slitaleikir séu yfirleitt aldrei
mjög góðir körfuboltalega séð.
ÍBK er mjög gott lið. Það hef-
ur alla burði sem gott lið þarf
að hafa og er ekki staðnað í
einu leikkerfi. En við KR-ing-
ar ætlum okkur auðvitað að
sigra. Það eru 10 ársíðan liðið
vann Islandsmeistaratitilinn
síðast, svo það er jafn mikið
keppikefli fyrir strákana eins
og ykkur Keflvíkinga að
vinna“ sagði Lazlo Nemeth,
hinn júgóslavneski þjálfari
KR-inga en hann er jafnframt
landsliðsþjálfari.
Það vakti athygli að miða-
verð á leikinn var uppsprengt,
vægast sagt. KR-ingar seldu
miðann á 700 kr. og stór hluti
barna og unglinga þurfti að
greiða sama gjald, þar sem að
barnamiðar seldust upp á und-
an. „Þetta er löglegt en sið-
laust" sagði Gunnar Jóhanns-
son, formaður körfuknatt-
leiksráðs IBK, „ég vona bara
að stuðningsmenn okkar fjöl-
menni og hreinlega fylli húsið
heima og veiti strákunum
þann stuðning sem þarf til að
tryggja titilinn heim í fyrsta
skipti".
Það var mikil óánægja með
að leikurinn skyldi fara fram
í Hagaskóla sem tekur aðeins
rúmlega 300 manns í sæti og
þurftu á milli 50 og 100 manns
frá að hverfa en fengu þó sjón-
varpsskermi fyrir utan Haga-
skóla, þar sem þeir gátu fylgst
Jón Kr. Gíslason, þjáll'uri og leikmaður IBK, ú fullri ferð í fyrri lciknum
gegn Klt. Jón Kr. hefur staðið sig mjög vcl eins og reyndar allir strákarnir,
en þeir munu annað kvöld lcika sinn mikilvægasta leik á ferlinum, sem getur
Iryggt þeim Islandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti. Ljósm.: mad.
með leiknum með aðstoð Rík-
issjónvarpsins.
Hvort lið hefur nú unnið
einn leik. Keflvíkingar unnu
fyrri leikinn í Keflavík, 77:74,
og því þarf þriðja leikinn til að
skera úr um hvort liðið hlýtur
íslandsmeistaratitilinn. Við
hvetjum alla Suðurnesjamenn
sem vettlingi geta valdið til að
mæta og hvetja Keflvíkinga til
sigurs en leikurinn við KR
verður í Iþróttahúsi Keflavík-
ur á miðvikudagskvöld og
hefst kl. 20.
I
6,5 millj. kr. skuld við DS felld niður?
Stjórn SSS samþykkti á
fundi sínum á fimmtudag, að
ósk Keflavíkurbæjar, eftir-
farandi tiilögu:
„Stjórn SSS samþykkir að
framlag til nýiramkvæmda
hjá D.S. vegna ársins 1988,
verði fellt út hjá eignaraðit-
um þar sem um framkvæmd-
ir var ekki að ræða á s.l. ári.
Reiknaðir vextir v/fjárfest-
inga verði felldir út hjá þeim
sveitarfélögum sem um það
voru krafin. Sveitarfélög
sem greiddu til framkvæmda
fái endurgreitt og reiknaðirá
það sömu vextir og beitt er
við vattskil sveitarfélaganna
við sameiginlega reknar
stofnanir."
Var tillaga þessi samþykkt
með 5 atkvæðum, Vilhjálm-
ur Grímsson, fulltrúi Vatns-
Ieysustrandarhrepps, sat hjá
og Bjarni Andrésson, fulltrúi
Grindvíkinga, þar sem
Grindavík er ekki eignarað-
ili að DS. i
Verði tillaga þessi sam-
þykkt í stjórn DS ug hjá öll-
um aðildarsveitarfélögum
SSS munu þær 6,5 milljónír,
sem reiknaðar höfðu veriðtil
skuldar hjá Keflavíkurbæ,
verða felldár niður.
Jafnframt þessu var eftir-
TRÉ-X
HOBBY EFNI úr furu.
Borðplötur, borðfætur, skápahurðir, hilluefni,
hornbekkir o.fl.
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR
Iðavöllum 7 - Keflavík - Sími 14700
farandi tillaga samþykkt ein-
róma:
„Stjórn SSS samþykkir að
beina þeim tilmælum til sam-
eiginlega rekinna stofnana
að framkvæmdaljárlög verði
ekki innheimt fyrr en tjllaga
bæjarstjórnar Keflavíkur
varðandi fjárfestingarfram-
lög hefur verið afgreidd af
fjárha^snefnd, stjórn SSS og
sveitarstjórnum."
Nýting strompgufunnar
i Svartsengi:
Varmaskipt-
arnir eru
komnir
Þrír' varmaskiptar, hver
um sig 40 tonn að þyngt, eru
nú komnir til landsins fyrir
Ormat vélarnar sem settar
verða upp í Svartsengi. Urn
miðjan maí eru síðan hverfl-
arnir eða túrbínurnar, eins
og þeir eru oftast nefndir,
yæntanlegir til landsins frá
ísrael.
Er því þess að vænta að
með hausti hefjist nýting á
strompgufunni í Svartsengi.
Mun því gufa sú, sem nú
kemur úrorkuveri Hitaveitu
Suðurnesja þar á staðnum,
minnka til mikilla muna.
V'oru varmaskiptarnirþrír
að tölu fluttir upp í Svarts-
engi í morgun, en þeir flutn-
ingar höfðu tafist um einn
dag sökum tækpibilunar.
Lögregluembættin á
Suðurnesjum:
Úttekt
lokið
Nefnd sú, sem skipuð var í
vetur til að gera úttekt á lög-
regluembættunum tveimurá
Suðurnesjum, það er því á
Keflavíkurvíkurflugvelli og
hinu sem er í sveitarfélögun-
urn, iiefur nú lokið verki
sínu. Er skýrsla nefndarinn-
ar komin til Fjárlaga- og
hagsýslustofnunar svo og ut-
anríkisráðuneytisins.
Að sögn Þorsteinslngólfs-
sonar, skrifstofustjóra Varn-
armáladeildar, er nú unnið
þar á bæ eins hratt og hægt er
úr skýrslunnDen hann sagð-
ist þó ekki sjá fyrir endan á
þeirri vinnu er blaðið liafði
samband við hann á föstu-
dag. Er því ekki hægt á þessu
stigi að birta niðurstöður úr
úttekt þessari.
Var þetta eitthvert KR(ónu)-
dæmi, að fá þriðja leikinn . .. ?