Víkurfréttir - 13.04.1989, Qupperneq 2
V/KUR
KENNARATÓNLEIKAR
Síðastliðið mánuda!>skvöld voru haldnir kennaratónleikar í l'ónlistarskólanum í Keflavik, þarsem allir
kennarar skólans komu Iram on léku Iö!> úr ýmsum áttum, fyrir nemendur skólans og hajarhúa. I lús-
fyllir var á tónleikunum, sem tókust með eindarnum vel og er hugmyndin að gera þá að árvissum
atburði. Meðl'ylgjandi mynd var tekin við uppliaf tónleikanna, en þá söngStcinar Guðmundsson, pianó-
kennari við 'I'K, afmikilli innlilun, við undirleik Kagnlieiðar Skúladótlur píanóleikara. Steinarstundar
söngnám í Keykjavík og kaus l'rekar að spreyta sig á söngnum, frekar en að spila.
I-jósm.: hhb.
£ NÝKOMINN STEFFENS BARNA- OG UNGLINGAFATNAÐUR
í NEON-LITUNUM %
(3)
C=) 0 ^ Sandgeröi - Sími 37415 UlnaSSj OPIÐ ÖLL KVÖLD niiinn til kl. 23:00
| jtdttU
Keflavík:
Fimm milljónir
í snjómokstur
Þorsteinn Árnason, vara-
bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins í Keflavík, sat síð-
asta bæjarstjórnarfund og
kom með fyrirspurn varð-
andi snjómokstur í Keflavík
í vetur. Spurði hann um það
hvað mokstur þessi hefði
kostað, hvaða verktakar
hefðu unnið verkið og hvað
þeim var greitt og hvort allir
vinnuvélaeigendur hefðu set-
ið við sama borð að þessu
leyti.
Guðfinnur Sigurvinsson,
bæjarstjóri, upplýsti að
heildarkostnaður væri ein-
hvers staðar í kringum 5
milljónir króna. En þar sem
spurning þessi hefði komið
svo óvænt gæti hann ekki
gefið nánari upplýsingar um
málið, nema hvað að það
hefði ráðið ferðinni við val
verktaka, að þeir fengju
vinnu sem minnsta vinnuna
hefðu fengið hjá bæjarfélag-
inu á síðasta ári. Með því
móti væri verið að reyna að
jafna verktakavinnunni milli
aðila í bæjarfélaginu.
Sundmiðstöðin:
Áframhaldið
verði boðið út
Húsanes s.f. hel'ur sent
bæjarráði Keflavíkur bréf,
þar scm boðið er -upp á
áframhaldandi samstarf við
sundmiðstöðina í Keflavík.
Hefur bæjarráð samþykkt að
eiga fund með viðkomandi
aðilum.
Er fundargerð um mál
þetta kom til afgreiðslu á
fundi bæjarstjórnar Kella-
víkur nú á þriðjudagóskuðu
þau Drífa_ Sigfúsdóttir og
Þorsteinn Árnason eftir svo-
hljóðandi bókun:
„Ef haldið verður ál'ram
með byggingu Sundmið-
stöðvar eins og fyrirhugað
er, þá leggjum við til að verk-
ið verði boðið út."
Nokkrar umræður urðu
um bókun þessa og töldu
suniir, s.s. Jón Ólafur, að
hún væri ekki tímabær. Aðr-
ir töldu ekkert því til fyrir-
stöðu að ræða við viðkom-
andi fyrirtæki. Tóku flestir
bæjarfulltrúar undir þá
skoðun.
TIL SOLU
BRAGAVELLIR 15
KEFLAVÍK
Stœrð: Jarðhæð 152 m2
Ris 55 m2
Bílskúr 50 m2
Til greina koma skipti á
ódýrari eign. ————-I
Upplýsingar
í síma 14744 j
og hjáfast-
eignasölum
í Keflavík. '
SL0KKV1L©. |
KKtcun 8 ;
__ — '— .
STCF*
Skólaakstur í Keflavík:
Ekki
boðinn út
„Stjórn SSS samþykkir að
leggja til að samgöngunefnd
SSS hafi forgöngu um og
undirbúi sameiginlegt út-
boð alls skólaaksturs á Suð-
urnesjum fyrir næsta skóla-
ár.
Verkinu verði hraðað sem
kostur er, og stefnt að útboði
eigi síðar en í maí n.k."
Ofangreind tillaga var ný-
lega samþykkt í stjórn Sam-
bands sveitarfélaga á Suður-
nesjum. Er málið kom til
umræðu í bæjarstjórn Kefla-
víkur nú á þriðjudag, bentu
menn á að eins og hún væri
orðuð gæti hún allt eins átt
við skólaakstur í Keflavík.
Það gæti bæjarstjórn Kefla-
víkur ekki samþykkt, því úti-
lokað væri að bjóða út akst-
ur fyrir grunnskóla bæjarins
sem gæti virkað þannig að
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur,
sem einnig eru í eigu bæjar-
ins, gætu misst akstur þenn-
an.
Umrædd tillaga SSS var
því samþykkt með þeim
fyrirvara að þetta ætti ekki
við um skólaakstur grunn-
skólans í Keflavík.