Víkurfréttir - 27.04.1989, Síða 20
\)iKun
20 Fimmtudagur 27. apríl 1989
Sendum öllum launþegum
á Suðurnesjum hamingju-
óskir í tilefni hátíðisdags
verkalýðsins, 1. maí.
HITAVEITA
S UÐ URNESJA
Munið Lottó og
Getraunir ÍBK
Verslunarfólk á Suðurnesjum
Orlofshús
Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í
orlofshúsum V.S. á skrifstofu félagsins að
Hafnargötu 28, Keflavík frá og með þriðju-
deginum 2. maí kl. 20.00.
Um er að ræða orlofshús í Svignaskarði,
Ölfusborgum og Miðhúsum við Egilsstaði
og íbúð á Akureyri. Vikuleigan kr. 6.000.-
greiðist við pöntun.
Ath. Þeir sem ekki hafa fengið orlofshús
síðustu 5 ár hafa forgang til 10. maí.
Vinnuslys á
trésmíða-
verkstæði
Vinnuslys varð á trésmíða-
verkstæði við Iðavelli í Kefla-
vík nýverið. Voru menn
að færa til vélar er einn
meiddist á baki og varð að
kalla til sjúkrabíl. Var mað-
urinn fluttur á sjúkrahúsið í
Keflavík, en fékk að fara
heim að skoðun lokinni.
Innbrot í
Nýja Bíó
Brotist var inn í Nýja bíó í
Keflavík aðfaranótt föstu-
dagsins og stolið þaðan ein-
hverju af sælgæti svo og
skiptimynt. Er málið í rann-
sókn lögreglunnar.
Tveir smá-
brunar í
l-Njarðvík
Slökk viliði Brunavarna
Suðurnesja og lögreglunni í
Keflavík var fyrir skömmu
tilkynnt um eld í kofa-
byggingu nálægt róluvelli við
Kirkjubraut í Innri-Njarð-
vík. Tók slökkvistarfið
skamma stund.
Aðeins tveimur kvöldum
áður voru sömu aðilar kall-
aðir til vegna elds í rusli í
þessu sama hverfi í Innri-
Njarðvík. Þá var eldurinn
einnig fljótt slökktur eins og
nú.
ORLOFSHÚS VSFK
Dvalaríeyfi
Frá og með þriðjudeginum 2. maí n.k. liggja um-
sóknareyðublöð frammi á skrifstofu verkalýðs-
félagsins að Hafnargötu 80, um dvalarleyfi í orlofs-
húsum félagsins, sem eru sem hér segir:
• í Ölfusborgum • í Hraunborgum
• í Svignaskarði • í Húsafelli
Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á
tímabilinu frá 15. maí til 15. september sitja fyrir
dvalarleyfum til 15. maí n.k.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
jutU%
Tveir úreldingarbátanna í Njarðvíkurslipp.
Ureldingarbátum
safnað í Njarðvík
Nokkur vandkvæði eru því
fylgjandi að farga gömlum
fiskibátum sem teknir hafa
verið í úreldingu. Hafa opin-
ber yfirvöld nánast eingöngu
samþykkt að eftir að búið er að
hirða allt nýtilegt úr bátunum
skuli þeim sökkt 70 sjómílur út
af Reykjanesi.
Kostar það skip til að draga
þá á þennan stað en ferðin er
talin taka um 30 klukkustund-
ir frá höfnum á Suðurnesjum.
M.a. af þeirri ástæðu hafa bát-
ar sem þessir safnast upp í hin-
um ýmsu höfnum. I Sandgerði
hefur verið gerð tilraun til að
draga einn bát út en hætta varð
við. Grindvíkingum hefurhins
vegar tekist betur og drógu
fyrir skemmstu Þorbjörn GK
540 út og sökktu honum.
Þeir hjá Skipasmíðastöð
Njarðvíkur hafa hins vegar
heimild yfirvalda til að taka
við þessum bátum og brenna á
áramótabrennum. Að sögn
Stefáns Sigurðssonar, fram-
kvæmdastjóra Skipasmíða-
stöðvarinnar, eru nú komnir
til þeirra þrír bátar og sá fjórði
er væntanlegur fljótlega en
hann kemur úr Dráttarbraut
Keflavíkur. Bátar þessir eru
Hraunsvík GK, Sandafell HF,
Rán BA og Þórkatla GK.
Hjá Dráttarbraut Keflavík-
ur eða þrotabúi þess fyrirtækis
verður áfram Hafnarey frá
Hornafírði, sem fyrirtækið
keypti á sínum tíma til að end-
urbyggja og koma aftur á
skipaskrá. En fyrirséð er að
svo verður ekki og er því óvíst
hvað verður um þann bát.
Við bryggju í Njarðvíkurhöfn
bíður sá þriðji. Ljósm.: epj.
Orlofshús
Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í
orlofshúsum félagsins á eftirtöldum stöð-
um, til 8. maí nk.:
• Hús í Húsafelli
• Hús í Þrastarskógi
• íbúð á Akureyri
• Skipalæk vjð Egilsstaði. 2 vikur
10.-23. júlí.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu félagsins, Tjarnargötu 7, Keflavík.
Vikuleiga greiðist við úthlutun eða í síðasta
lagi 31. maí. Eftir það verða ógreiddar um-
sóknir ekki í gildi.
Orlofsnefnd ISFS