Víkurfréttir - 27.04.1989, Side 24
V/Klfft
j/Uttlt
Fimmtudágur 27. apríl 1989
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717.
Sima íH^nki
SIMI15828
Frystihúsið
í Höfnum
í gang á ný
Einar Kristinsson hefur
tekið á leigu hjá Byggða-
stofnun eignir þær er áður
tilheyrðu frystihúsi Hafna
h.f. í Höfnum. Að sögn Þór-
arins St. Sigurðssonar, sveit-
arstjóra í Höfnum, ráðgerir
Einar að hefja rekstur frysti-
húss og alhliða fiskverkunar
nú þegar og þ.á.m. útflutn-
ing á ferskum fiski.
Sagði Þórarinn að til að
byrja með myndu starfa
þarna 8-12 manns, sem væri
kærkomið fyrir atvinnulífið
á staðnum. En frystihúsið
var áður aðalatvinnurekand-
inn í Höfnum eða þar til því
var kippt út úr rekstri og síð-
an gert gjaldþrota.
Gjaldheimtan:
Þórður
Ragnarsson
skrifstofustjóri
Stjórn Gjaldheimtu Suð-
urnesja kom saman til fund-
ar á föstudag og ákvað þar
að ráða Þórð Ragnarsson,
Blönduósi, í stöðu skrif-
stofustjóra. Að sögn Odds
Einarssonar, stjórnarfor-
manns G.S., er Þórður ráð-
inn úr hópi 16 umsækjenda
um starfið en einn umsækj-
andi, sá sautjándi, hafði
dregið umsókn sína til baka.
Þórður Ragnarsson er
Keflvíkingur þó hann búi nú
á Blönduósi. Er þess vænst
að hann komi til starfa um
mánaðamótin maí-júní nk.
Næsta blað
kemur út
föstudag
5. maí
Skilafrestur auglýsinga
rennur út á miðviku-
dagsmorgun.
Þorri ÞH 315 kominn að bryggju í Keflavík.
Ljósm.: epj.
Bjargað frá strandi
á Vatnsnesinu
Fimm tonna, dekkuðum
plastbáti úr Sandgerði var
bjargað á síðustu stundu frá
því aðrekauppíVatnsnesiðí
Keflavík á fimmtudags-
kvöldið. Bátur þessi, er ber
nafnið Þorri ÞH 315, hafði
orðið fyrir gírbilun er hann
var staddur þarna út af.
Urðu menn í landi þess
varir að hér væri hætta á
ferðum upp úr kl. 22 um
kvöldið. Að ósk lögreglunn-
ar í Keílavík var lóðsbátur-
inn í Keflavík kallaður út, en
áður en hann kom á staðinn
kom trillubáturinn Elín KE
27 þarna að og komu menn
taug milli bátanna. VarÞorri
dreginn til hafnar í Keflavík.
Var báturinn nánast kom-
inn upp í tjöru við Vatnsnes-
ið er hjálpin barst. Einn mað-
ur var um borð en hann sak-
aði ekki.
100 tonna bát
rak í strand
Aðfaranótt sunnudagsins
leystu einhverjir óþokkar
Sandgerðisbátinn Jón
Gunnlaugs GK 444 frá
bryggju í Sandgerðishöfn.
Rak bátinn síðan út höfnina
og hafnaði uppi á eyrinni fyr-
ir utan hafnarmynnið.
Er tveir litlir bátar voru að
fara í róður urðu skipverjar
þeirra varir við hvað var á
ferðinni, en þá var báturinn,
sem er rúmlega 100 tonna
stálbátur, farinn að lemjast
utan í klettana. Gátu skip-
verjar bátanna tveggja, Sól-
eyjar KE 15 og Kristjáns KE
21, komiðtaugíhinn strand-
aða bát og komu þeir með
hann að bryggju um kl. 8 að
morgni sunnudagsins.
Að sögn John Hills, lög-
reglufulltrúa rannsóknar-
lögreglunnar, er ljóst að Jón
Gunnlaugs hafði verið bund-
inn við bryggju með fimm
böndum og höfðu þau öll
verið leyst frá. Hefði veður
verið verra hefði því getað
farið mjög illa, en engu að
síður er hér um stóralvarlegt
mál að ræða og því skorum
við á alla þá er einhverjar
upplýsingar geta gefið um
málið að koma þeim til lög-
reglunnar hið fyrsta.
Ragnar formaður S.S.?
Stjórn Sorpeyðingar-
stöðvar Suðurnesja mun
koma saman í dag, fimmtu-
dag, og skipta með sér verk-
um. Ekki er talið ósennilegt,
að sögn Guðjóns Guð-
mundssonar, framkvæmda-
stjóra Sambands sveitarfél-
aga á Suðurnesjum, að
Ragnar Þorgrímsson, núver-
andi varaformaður Sorpeyð-
ingarstöðvarinnar, verði
næsti formaður samkvæmt
þeim reglum sem notaðar
hafa verið undanfarin ár.
Glæfraakstur
ungmenna
Nú, þegar vorar í lofti, virð-
ist einhver stórhættulegur fiðr-
ingur fara um marga unga
ökumenn. A.m.k. þurfti lög-
reglan í Keflavík að hafa
nokkur afskipti af hraðaakstri
ökumannaá 18. áriumsíðustu
helgi.
Fyrst voru það tveir öku-
menn, piltur og stúlka, sem
voru í kappakstri á Hafnar-
götunni í Keflavík. Var stúlk-
an með 4ra mánaða gamalt
próf en strákurinn 4ra daga
gamalt. Urðu þau bæði aðsjáá
eftir ökuskírteinum sínum að
leik þessum loknum.
Þá varð á föstudag þriggja
bíla árekstur á Hafnargötu,
við Skólaveg. Fyrst voru það
tveir bílar í kappakstri sem or-
sökuðu aftanákeyrslu, sem
aftur varð til þess að annar bíl-
anna kastaðist á þriðja bílinn
sem hafði verið kyrrstæður.
Játuðu ökumenn bifreiðanna
tveggja að hafa ekið á 80 km
hraða. Þeir eru báðir 17 ára
gamlir.
Aðfaranótt sunnudagsins
ók unglingur á jeppabifreið á
kyrrstæða bifreið á gatnamót-
um Faxabrautar og Sólvalla-
götu í Keflavík og velti síðan
bíl sínum. Þar var talið að of
hraður akstur væri orsökin en
ökumaðurinn var, eins og í
hinum tilfellunum, í hópi þess-
ara ungu ökumanna.
Virðist því hér vera um mjög
mikla alvöru á ferðinni, þó
þessir ungu ökumenn hafi
verið svo heppnir að enginn
skyldi slasast í þessum gáleys-
islega leik. Vonandi tekst því
að hemja þennan fiðring áður
en verra hlýst af, eins og einn
lögreglumannanna orðaði það
við blaðamann.
i í i '’íí IIIL.
TRÉ
TRÉ-X ROYAL ÞILJUR
TRÉ-X byggingavörur - Iðavöllum 7 - Keflavík - Sími 14700
Ölvaður byssu-
maður í
Grindavík
Lögreglan í Grindavík af-
vopnaði fyrir helgina byssu-
mann sem var á gangi um
byggðarlagið. Það var um
klukkan 18 á föstudeginum
að lögregluþjónar á eftirlits-
ferð urðu varir við mann sem
bar haglabyssu um öxl. Var
byssumaðurinn þegar af-
vopnaður en hann reyndist
vera ölvaður. Ásamt því að
taka byssuna af manninum
fann lögreglan tvo pakka af
haglaskotum í fórum
mannsins.
Ef þetta er ekki stóll til að
rífast yftr, - hvað þá?