Víkurfréttir - 18.05.1989, Síða 13
\iiKun
jUOU
Fimmtudagur 18. maí 1989 13
Sorpeyðingarstöðin:
Rifíst um brotajárnið
Nú stendur fyrir dyrum
útboð á akstri brotajárns-
hauganna sem eru á lóð
Sorpeyðigarstöðvar Suður-
nesja við Hafnaveg. Miðast
útboðið við akstur annað
hvort á lóð íslenska stálfél-
agsins eða til Sindrastáls, en
báðir þessir aðilar sækja það
stíft að fá niálminn.
Að sögn Jóns Norðfjörðs
úr framkvæmdastjórn SS
standa yfir þreifingar vegna
hugsanlegs kostnaðar við
akstur á brotajárninu en
miðað er við að hann taki um
fjóra mánuði.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja við Hafnaveg. Ef myndin prentast
vel má sjá ruslahauga hægra megin við stööina, en þeireru nánast
að kalfxra stöðina og er járnarusl uppistaðan. <•/>/.
Halldór Leví
varalands-
forseti JC
Halldór Leví Björnsson,
JC Suðurnes, var um síðustu
helgi kosinn einn af þremur
varalandsforsetum JC hreyf-
ingarinnar á íslandi. Gerðist
þetta á þingi samtakanna
sem fram fór á Akrtrevri.
Er þetta í fyrsta sinn í ára-
tug sem þetta virkt embætti
hjá JC hreyfingunni kemur í
hlut Spðurnesjamanns, eða
síðan' Árni Ragnar Árnason
var landsforseti JC ísland.
Yfirmanns-
skipti hjá
Varnarliðinu
Yfirmannaskipti fóru
fram hjá varnarliðinu nú á
þriðjudag við hátíðlega at-
höfn á Keflavíkurflugvelli.
Var það Thomas F. Hall,
flotaforingi, sem leysti Eric
A.' McVadon, flotaforingja,
af hólmi eftir tveggja og hálfs
árs starf.
Landgræðsluátak á Suðurnesjum:
Skólafólk sáir
og gróðursetur
Annað árið í röð hafa skól-
arnir hér á Suðurnesjum tekið
sig saman um landgræðslu-
átak í maímánuði, sem Rallað
er Vordagar Vigdísar til heið-
urs forseta Islands. Land-
græðsluátak skólafólks sl. vor
tókst einkar vel í alla staði.
Að sögn Ásgeirs Beinteins-
sonar, yfirkennara grunnskól-
ans í Sandgerði, þá hefur
reynslan sýnt að heppilegustu
verkefnin hér á Suðurnesjum,
fyrst í stað, eru sáning á áburði
og grasfræi, gróðursetning
lúpínuhausa og að hlúð sé að
skógarlundum sem komnir
eru af stað á svæðinu.
Landgræðsluátak þetta hef-
ur tvíþættan tilgang. í fyrsta
lagi að klæða landið og í öðru
lagi að koma inn skilningi og
áhuga fyrir landgræðslu og
gróðurvernd meðal unglinga á
svæðinu.
Gerðaskóli mun vera með
handsáningu á áburði oggras-
fræi og gróðursetningu lúpínu-
hausa, Holtaskóli verður með
gróðursetningu á lúpínuhaus-
um. Myllubakkaskóli í Kefla-
vík og grunnskólarnir í Sand-
gerði og Vogum munu sá gras-
fræi og áburði. Þá mun vinnu-
skólinn í Grindavík sjá um
dreifingu á grasfræi og áburði
og vinna að grisjun á Selskógi.
Að hausti munu nemendur 8.
bekkjar grunnskólans í
Grindavík safna lúpínu og
birkifræi, ásamt víðisgræðling-
um umhverfis Grindavík.
SKÓSUÐ, félag skóla-
stjórnenda á Suðurnesjum
sótti um styrk til Keflavíkur-
bæjar til kaupa á lúpínuplönt-
um og hefur bæjarráð Kefla-
víkur samþykkt styrk til
kaupa á 2-3000 plöntum.
Sumarerobikk
byrjar 22. maí - HRAÐIR,
HRESSIR TÍMAR 3svar í viku
í íþróttahúsinu í Njarðvík.
Hringið strax í síma 16133
eða 14098.
Hittumst hress - Anna Lea og Brói
Grindvíkingar athugið
Oskum eftir að taka á leigu einbýlishús í
Grindavík í skiptum fyrir leigu á einbýlis-
húsi í Keflavík. Góðri umgengni heitið.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn í síma
12804 og 68255.
Suðurnesjamenn, athugið!
Framvegis verður afgreiðsla blaðsins opin
sem hér segir:
Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 9-17
Föstudaga frá kl. 9-15
Ef þið þurfið að hafa samband við afgreiðsl-
una á öðrum tímum, er bent á heimasíma
ritstjóranna.
mun
Útiker.
Áburður fyrir
garða og
inniplöntur.
Garðverk-
færi í
úrvali.
Veitingar
um helgar.
OPIÐ frá 10-22 i
yjy alla daga,
Þurrskreytingar og lifandi skreytingar. um helgar og á kvöldin. Ný sending af gjafa- vörum.
Garðhúsgögn úr tré. Ávextir VÍKUR BLÓM Þeir sem kaupa garð- verkfærin hjá okkur fá í
og grænmeti. ' GRÓÐURHÚSIÐ í Njarðvík Simi16188 bónus vinnu- vettlinga.
Pottablóm.
Afskorin blóm.
Sjálfvökvun-
arker.
Pottamold.
Vikur.
Hjá okkur
fáið þið
einnig ýmsa
smavoru