Víkurfréttir - 14.04.1992, Page 1
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM
landsb'okasaf:
SAFNAHOSINU
HVERFISGÖTU
101 REYKJAV:
16. tölublað 13. árgangur
Priðjudagur 14. apríl 1992
HITAVEITA SUÐURNESJA:
300 MILUÓNA GRÓDI
Aðalfundur Hitaveitu Suðumesja var hald-
inn nýlega og þar kont fram nt.a. að
rekstrarhagnaður fyrirtækisins á síðasta
ári nam 299.193.339.-. Er hér urn beinan hagn-
að að ræða, þar sem gengisbreytingar og aðrar
verðlagsbreytingar á árinu voru litlar og því
ekki um gengishagnað að ræða.
Rekstrartekjur námu 1.581.920.690.- á árinu,
þar af var vatnssala upp á rúmar 984 milljónir
og raforkusala upp á rúmar 579 milljónir.
Rekstargjöld námu rúmum 1204 milljónum, þar
af var rekstur orkuvers upp á rúmar 172 millj-
ónir, aðveitu- og dreifikerfi órkuvera kostuðu
rúmar 84 milljónir. raforkukaup voru upp á
rúmar 237 milljónir, aðveitu- og dreifikerfi raf-
veitna voru upp á um 118 milljónirog skrifstofu
og stjómunarkostnaður nam rúmum 70 millj-
ónunt króna.
Ekki náðist í forráðamenn fyrirtækisins til að
fá nánari skýringar á hagnaði þessurn, né hvers
vegna orkuverð væri ekki lækkað, fyrst fyr-
irtækið gengi þetta vel.
Hitaveita Suðumesja er sameignarfyrirtæki
sveitarfélaganna á Suðurnesjum og Ríkissjóðs
en eignarhlutur þeirra hvers fyrir sig er
svohljóðandi:
Ríkissjóður 20%, Keflavíkurkaupstaður
38,66%, Njarðvfkurkaupstaður 12,68%,
Grindavíkurkaupstaður 11,17%, Sandgerðis-
bær 6,99%, Gerðahreppur 6,97%, Vatns-
leysustrandarhreppur 3,57% og Hafnahreppur
0,69%.
Njarövíkurbær:
Kemur til
móts við at-
vinnulausa
Bæjarstjórn Njarðvíkur hefur
ákveðið að koma til móts við þá
bæjarbúa sem misst hafa at-
vinnu sína á undanförnum vik-
um og mánuðum. Gerist það
með þeim hætti að gefa þeim
kost á að sækja um frestun á
greiðslu fasteignagjalda af eigin
íbúð, sem álögð eru á árinu
1992.
Bjóða bæjaryfirvöld fast-
eignaeigendum sem þannig er
ástatt fyrir að greiða gjöldin frá
júlí 1992 til janúar 1993, með
sjö jöfnum greiðslum, en drátt-
arvextir falla niður til þess tíma
sem greiðslur hefjast.
Nær þetta til þeirra sem hafa
verið alvinnulausir í a.m.k. 12
vikur á tímabilinu nóvember
1991 til marsloka 1992. Annars
staðar í blaðinu í dag birtist
auglýsing frá Njarðvíkurbæ,
þar sem málið er skýrt nánar.
Nýtt fiskiskip
keypt frá
Færeyjum
Færeyskir aðilar gengu í
síðustu viku að kauptilboði
feðganna Karls og Oskars
Ingiberssonar, Keflavík, í
fiskiskip sem hleypt var af
stokkunum 1988. Að sögn
Karls Oskarssonar, var kaup-
samningurinn gerður með
fyrirvara um fjármögnun og
leyfi íslenskra stjórnvalda, en
kaupverðið er talið mjög
gott.
Um er að ræða heilfrysti-
skip 350- 400 tonn að stærð
sérstaklega útbúið til línu-
veiða. Er skrokkur skipsins
byggður í Noregi, en frá-
genginn í Færeyjum, eins og
var með Gunnjón GK, á sín-
um tíma, sem innréttaður var
í Njarðvík. Líkist skipið ntjög
Gunnjóni, sem nú heitir Stef-
án Þór RE., nema hvað þetta
skip er stærra.
Verði að kaupunum
hyggst úrgerðin hér heima
selja Albert Ólafsson KE 39
kvótalausan og notast við
eldri úreldingu sem þeir hafa
keypt. Hyggst útgerðin flytja
aflakvótann af Albert Ólafs-
syni yfir á hið nýja skip, auk
þess sem veiddar verða afla-
tegundir sern eru utan kvóta,
en Albert Ólafssyni hefur
verið lagt í 3 mánuði ári til
að kvótinn dugi út árið.
Verði að kaupunum gæti
hið nýja skip komið hingað
að sögn Karls eftir einn til
tvo mánuði. Liggur það nú
við bryggju í Færeyjum þar
sem útgerð þess varð gjald-
þrota m.a. vegna kvóta-
skorts.
Bæjarstjórn
Keflavíkur:
Aðstoð
við
kvóta*
kaup?
Atvinnumál voru mikið til
umræðu á fundi bæjarstjómar
Keflavíkur í síðustu viku. M.a.
var staða sjávarútvegsins mikið
rædd svo og hvort bæjarsjóður
gæti stutt eitthvað við bakið á
útgerð og fiskvinnslu í bæj-
arfélaginu.
Voru bæjarfulltrúar á því að
finna þyrfti út einhverja leið,
svo útgerð Itéldi áfram frá
Keflavík. Ein þeirra leiða gæti
hugsanlega verið aðstoð við
kvótakaup. Engin ákvörðun var
þó tekin í málinu.
AUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA w 14717,15717 • FAX ® 12777