Víkurfréttir - 14.04.1992, Side 4
4
Ljósmyndun
i-----------
Vikurfréttir
14. apríl 1992
FRÁ ÖÐRIISJÓNARHORNI
Þessar tvær myndir tók Ijósmyndari blaðsins. I lilmar Bragi úr körfu í 32 metra hæð á laug-
ardag. Var það krani frá Skipaafgreiðslu Suðurnesja sem notaður var til að hífa hann upp í þessa
hæð. Nánar er fjallað um það ævintýri á blaðsíðu 18 í blaðinu í dag.
Á stærri myndinni sést norður Hringbraut í Keflavík. Á þeirri götu verða í sumar unnar miklar
endurbætur, frá Skólavegi og norður að Vesturgötu. Verður bæði slitlag og gangstéttir lagfærðar.
Á minni myndinni sjáum við „Fokkuna" næst okkur síðan Brekkubrautina og hverfið þar austan
við.
Hjólkoppum stolið
Ung stúlka varð fyrir þeirri
reynslu að stolið var hjól-
koppum af bíl hennar, sem er
rauður Escort. Stóð bíllinn fyrir
utan Heiðarholt 18, Keflavík er
þjófnaðurinn var framinn á
sunnudag og sást til þjófanna,
en þeir komust undan.
Þar sem hér er um til-
finnanlegt tjón fyrir bíl-
eigandann, skorum við á þá
sem eru með þá undir höndum
að koma þeim þangað sem þeir
voru teknir. Einnig má koma
þeim á skrifstofu Víkurfrétta.
Aðalfundur
i
i
i
Kveðjo fró Howaii
Byggingafélags
aldraðra
verður haldinn í Hornbjargi
21. apríl kl. 17.
Stjórnin
Hawaii 4/3/92
Hæ. hæ, allir heima á Fróni,
mér fannst alveg tilvalið að
skrifa ykkur svona rétt áður en
ég kem heirn.
Eg ligg núna í sólinni á
Hawaii og er þetta paradís á
jörð. Ég verð héma í viku með
bekknum mínum úr Ferða-
málaskólanum sem ég er í.
Þessi Hawaiiferð, sem við
skipulögðum sjálf, er hluti af
náminu. Við skoðum hótel og
aðra ferðamannastaði og sjáum
hvernig öllu er stjómað. En svo
auðvitað fáum við líka tíma
fyrir okkur.
Eins og ég sagði áður, þá er
ég í námi í skóla sem heitir
Mid-state-college og er í
Auburn Maine. Þetta er frekar
lítill einkaskóli og erum við öll
eins og stór fjölskylda. Fólkið
hér upp í Maine er alveg meiri-
háttar og er Maine eitt af fal-
legustu fylkikjörnunum, hér í
Bandaríkjunum.
Að endingu langar mig til að
þakka öllum sem hafa staðið í
ströngu við að skrifa mér og
þakka pabba og „litla“ bróður
honum Ola Jóni fyrir allan
stuðninginn, og síðast en ekki
síst Víkurfréttum fyrir að senda
mér nýjar fréttir í hverri viku.
Sjáumst öll í sumar.
Aloha!
Sigurbjörg
Sigga Sigurðardóttir
3 Forest Dr.
Topsham, ME 04086
U.S.A.
STMSRSIVtFKÉTm-OGAUG^i'SINGABI^ÐIÐÁSUÐURNE^UM
VíkmtreBB
Útgefandi: Víkurfréttir hf. ■ ■ ■ —■ ■ ' ....................——— —■
Afgreiösla, ritstjórn «g uuglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717. 15717. Box 125, 230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. -
Ritstjórn: Emil Páll Jónsson, heimas. 12677, bílas. 985-25917. Páll Ketilsson, heimas. 13707. bílas. 985- 33717. - Frétta-
deild: Emil Páll Jónsson og Hilmar Bragi Bárðarson. íþróttir: Margeir Vilhjálmsson. - Auglysingadeild: Páll Ketilsson.
-Prófarkarlestur: Garðar Vilhjálmsson - Upplag: 6100 eintök sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Aðili að Samtökum
bæja- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun. hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er
óheimilt nema heimildar sé getið. Umbrot, fílmuvinna og prentun: GRÁGÁS hf. Keflavík.