Víkurfréttir - 14.04.1992, Síða 5
Víkurfréttir
14. apríl 1992
• ísaður Búrinn settur
hjá flökurunum
Búri unninn
hjá Tros
í Sandgeröi:
Gætum selt óhemju magn
Hjá fiskvinnslufyrirtækinu
TROS í Sandgerði var verið að
flaka Búra þegar blaðamaður
kom þar við á fimmtudag. Búri
er fisktegund sem Islendingar
eru tiltölulega nýfarnir að nýta.
enda lítið vitað um hegðun
þessa físks og fáir skipstjórar
komnir upp á lag með að þekkja
réttu veiðisvæðin.
Tros í Sandgerði hafði fengið
tuttugu kör af þessum risavaxna
karfa af Klakk VE, en hjá fyr-
irtækinu hafa áður verið unnin
um 30 tonn sem komu af Breka
frá Vestmannaeyjum. Þess má
til gamans geta að Suð-
umesjamenn eru við stjóm-
völinn á báðum þessum tog-
urum. Sævar Brynjólfsson er
skipstjóri á Breka en Hermann
Kristjánsson á Klakk.
Logi Þomióðsson hjá TROS
sagði í samtali við blaðamann
að Búrinn væri flakaður og
sendur ferskur, roðlaus og
beinlaus, á markaði í Banda-
ríkjunum og til Evrópu. „Það er
mikill markaður fyrir Búra bæði
frosinn og ferskan. Fiskurinn
sem er unninn hér fer til veit-
ingahúsa og í súpermarkaði,'*
sagði Logi.
Þeir voru tjórir vanir flakarar
sem stóðu við borðin í TROS og
flökuðu Búrann. Logi sagði
nýtinguna vera svipaða og um
karfa væri að ræða, þ.e. 25-
30%. Búrann má veiða utan
kvóta og þetta er verðmætur
fiskur. Afurðimar eru sendar
ferskar með flugi út og þar fást
allt að 570 krónur fyrir kílóið.
Búrinn sent var flakaður í
TROS á fimmtudag fór í flug á
föstudagsmorgni og fyrstu
kassarnir úr sendingunni voru
seldir á laugardag.
„Við gætum selt óhemju
niagn af þessum fiski í viku
hverri ef fiskurinn fengist
reglulega í hús til vinnslu.
Vandamálið er hins vegar það
að menn þekkja ekki nógu vel
veiðislóðir og hegðun fisksins.
Tilraunaveiðar hafa kostað
mikið af veiðafærum og sjó-
mennimir halda veiði-
svæðunum leyndum sem um
hernaðarleyndarmál væri að
ræða,“ sagði Logi.
Strákarnir á Breka og Klakk
hafa verið að veiða Búrann á
6-700 föðmum. Til glöggvunar
fyrir fólk um verðmæti Búrans,
þá myndu 30.000 tonn af þess-
um djúpsjávarfiski skila söntu
uppliæð í þjóðarbúið og öll síð-
asta loðnuvertíð, en þá kornu
um 600.000 tonn af loðnu á
land.
• Logi Þormóðsson flakar búrann. Ljósmyndirthbh
• Hér er Búrinn tilhúinn til
útllutnings
STÓRMARKAÐUR
Keflavíkur
Alltí
páskamatinn
í Stórmarkaðnum
Glæsilegt páskakjötborð
- Om Garðarsson,
landsliðskokkur
við stjórnvölinn.
Páskaeggin eru komin
Munið heita matinn í hádeginu
- vel útilátinn oggóður!
Við eigum ýmislegt í ferðalagið
eða sumarbústaðinn
Opið 10-19
nema föstudaginn
langa
og páskadag
STÓRMARKAÐUR
Keflavíkur
- í páskaskapi!