Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ 1989 „Þegar ég byrjaði var allt fryst, allir frystar landsins fullir og það tók einhverjar vikur að koma fiskinum á markað.“ 2016 „Hjá okkur er ekki framleitt eitt einasta flak sem ekki er búið að panta. Fiskurinn er kominn til neytanda í Boston 36 tímum eftir löndun.“ A ðaltogararall Hafrann- sóknastofnunar stendur nú yfir og keppast fjögur skip við að vitja nærri 600 veiðistaða hringinn í kringum landið. Er að- eins veitt í um klukkustund á hverjum stað áður en siglt er að næsta hniti. Þorsteinn Sig- urðsson er for- stöðumaður nytjastofnasviðs Hafró og segir hann tog- ararallið hafa gengið vel að þessu sinni en þeg- ar er búið að vitja um 75% af veiðistöðvunum. Hafró stendur fyrir togararalli tvisvar á ári. Alltaf eins, rúmlega 30 ár „Fyrra rallið fer fram í mars og er umfangsmeira. Þar er veitt allt niður að 500 metra dýpi sem er útbreiðslusvæði helstu bol- fiska. Á haustin einblínum við á tegundir á borð við djúpkarfa og grálúðu og er þá veitt niður á allt að 1.200 til 1.300 metra dýpi,“ út- skýrir Þorsteinn. Saga togararallsins nær allt aftur til ársins 1985 „Veiðistöðv- arnar 600 voru valdar bæði út frá hugmyndum skipstjóra og eins af handahófi til að reyna að fá sem gleggsta mynd af þróun stofn- stærðar helstu nytjastofna. Mælt er á nákvæmlega sömu stöðum ár hvert, með sömu veiðarfærunum og á sama tíma árs,“ segir Þor- steinn. „Í upphafi voru fimm tog- arar sem komu að verkefninu, allir eins og smíðaðir í Japan á árunum 1972-73, oft kallaðir Jap- anstogarar í daglegu tali. Í dag erum við enn með tvo af þessum togurum í notkun, Bjart frá Nes- kaupstað og Ljósafell frá Fá- skrúðsfirði, en nýtum líka rann- sóknarskipin okkar tvö, Bjarna Sæmundsson RE og Árna Frið- riksson RE.“ Skiptir miklu að nota sams konar veiðarfæri í hvert skipti sem togararallið fer fram. „Árið 1985 var ákveðið að velja það Togararall í fullum gangi Starfsmenn Hafró fá litla hvíld á meðan tog- ararallið stendur yfir. Mælingarnar spanna núna 32 ár og gefa verð- mætar upplýsingar um ástand stofna. Hlykkjótt Myndin er fengin af heimasíðu Hafró og sýnir hvernig skipin fjögur, hvert merkt með sínum lit, hafa þrætt veiðistöðvarnar. Þorsteinn Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.