Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ 23 Powermax 30 Air með innbyggðri loftpressu • Sker allt að 16 mm þykkt járn • Einfasa 120-240V – Aðeins 13,5 kg. • 3 ára ábyrgð Dalshrauni 14 • 220 Hafnarfjörður • Sími 555 2035 • jak.is Plasmaskurðarvélar A ð undanförnu hefur verið ágæt veiði hjá sjómönnum á rækjubátum sem gerðir eru út frá Húsavík. Veiðar á rækju á Skjálfandaflóa eru nú stundaðar í fyrsta sinn að einhverju ráði frá árinu 1999, þegar þótti rétt að friða svæðið. En nú er að rofa til og tveir bátar hafa sótt á miðin að undanförnu; Haförn ÞH og Árni á Eyri ÞH. Þekkt rækjumið Upphaflega voru leyfðar veiðar á 100 tonnum sem voru fljót að nást. Þá var 40 tonnum bætt við og nú má reikna með að aflaheimildir verði uppurnar fyrir páska, að sögn Jóns Hermanns Óskarssonar, skipstjóra á Árna á Eyri. Sá bátur er í eigu út- gerðarfélagsins Eyrarhóls ehf. Að því stendur meðal annars fólk sem tengist Flatey á Skjálfanda. Og það er skemmtileg tilviljun að Jón Her- mann skipstjóri og áhöfn hans voru einmitt á rækjumiðunum skammt frá Flatey þegar Morgunblaðið ræddi við hann í vikunni. „Já, við erum hér vestast á Skjálf- andanum, rétt við Flatey, í Pytt- inum sem svo er kallaður. Þetta voru þekkt rækjumið í gamla daga og það virðist ekkert hafa breyst. Hér höfum við verið að fá ágæta rækju og þokkalega stóra. Þetta hafa oft verið um 140 stykki í hverju kílói, sem er dágott,“ segir Jón Her- mann, sem hóf þennan veiðiskap í janúar. Janúar var góður mánuður „Janúar er oft góður mánuður í rækjunni og svo var einmitt nú. Þetta hefur verið virkilega góð ver- tíð. Við höfum sjaldan farið í land eftir daginn með minna en eitt tonn og þetta hefur líka farið upp í fimm tonn þegar best lætur,“ segir skip- stjórinn. Þess má svo geta að aflinn er seldur til Ramma hf. á Siglufirði, en þar er stór rækjuverksmiðja og afurðirnar fara á markaði víða um lönd. sbs@mbl.is Hjálmur Jón Hermann Óskarssonar skipstjóri hefur lengi verið til sjós. Híft Mannskapurinn kann handtökin við að hala kerunum úr bátnum. Rækjan er stór og góð Tveir rækjubátar á mið- unum á Skjálfanda. 140 tonn á vertíðinni. Aflinn allt að fimm tonn á dag. Selt til Ramma. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Löndun Árni á Eyri við bryggjuna á Húsavík. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.