Morgunblaðið - 11.03.2016, Qupperneq 32
V
arla hefur farið framhjá les-
endum að plastmengun í hafi er
vaxandi vandamál. Berast
reglulega fréttir af plast-
breiðum sem hafstraumar í Kyrrahafinu
hafa myndað og eflaust hafa margir séð
á Facebook-veggnum sínum átakanlegar
myndir af fuglum sem hafa drepist, með
magann fullan af plasti.
Sigríður Kristinsdóttir, sérfræðingur í
haf- og vatnsstreymi hjá Umhverf-
isstofnun, segir plastmengun alvarlegan
vanda sem valdi óskunda í lífríkinu. Þá
geti plastið mögulega borist upp fæðu-
keðjuna í okkur mannfólkið. „Talið er að
um þrjú hundruð þúsund tonn af plasti
séu í sjónum. Þetta er gríðarlegt magn
og virðist ekki ætla að minnka. Plastið
kemur bæði frá skipum og frá landi og
brotnar mjög hægt niður í smærri agnir,
en leysist ekki upp.“
Fullir magar af plasti
Einn versti skaðvaldurinn er örplast,
sem verður til þegar plastruslið hefur
brotnað niður í örsmár agnir. „Dýrin
gleypa þessar agnir, halda að þær séu
eitthvað ætilegt. Plastið tekur pláss í
maganum og gefur falska seddutilfinn-
ingu en enga næringu svo að dýrin vesl-
ast upp. Er talið að plastið geti einnig
farið út í vefi dýranna og þannig safnast
upp eftir því sem farið er ofar í fæðu-
keðjunni. Til að gera málið enn verra þá
vilja ýmis þrávirk efni loða við plastið,
s.s. PCP, sem berast
því með plastögn-
unum yfir í fæðuna
okkar.“
Er nú í fyrsta sinn
unnið að mælingum á
plastmagni á íslenska
hafsvæðinu og til
stendur að gera próf-
anir til að athuga
plastmagn í þorski.
Verður áhugavert að
skoða niðurstöðurnar en nú þegar er
ljóst að töluvert má finna af plasti á mið-
unum. „Umhverfisstofnun hefur átt í
samstarfi við ýmis sveitarfélög um
hreinsun strandlengjunnar. Var t.d.
gengið um Hornstrandir í fyrrasumar og
verulegt magn af plasti hreinsað upp í
því verkefni.“
Plastið berst í hafið úr ýmsum áttum.
Þannig er stór hluti plastmengunarinnar
vegna neta sem af einhverjum ástæðum
glatast við veiðar.
Mörg tonn af
norskum hjólbörðum
Þá berst líka töluvert af plastögnum út í
sjó með skolpi. „Í Noregi var gerð rann-
sókn til að greina uppruna örplasts í
sjónum og kom í ljós að þar í landi berast
um 2.250 tonn út í hafið vegna slits á hjól-
börðum. Við akstur á vegum slitna
örsmáar agnir af hjólbörðunum og ber-
ast smám saman út í skolpið, og út í sjó ef
Plastið á ekki
heima í sjónum
Haugur Gestir virða fyrir sér
sýningu svissneska lista-
mannsins Roman Aebersold.
Er verkinu ætlað að minna á
umfang plastmengunar í sjó.
Plast brotnar niður í örsmáar agnir sem geta valdið
óskunda í lífríkinu. Þrávirk efni loða við plastið og
geta borist upp fæðukeðjuna
Sigríður
Kristinsdóttir
32 MORGUNBLAÐIÐ
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður | Sími 560 4300 | saltkaup.is
Salt - Umbúðir - Íbætiefni
Salt - Umbúðir - Íbætiefni
Ný he
imasí
ða
Hornstoðir
Plastpokar
Coex
Pokar
SaltfiskgámarSaltfiskumbúðirTrétunnur
Salt
Plasttunnur
Fötur
Strekkifilmur
Bindiborðar
Límbönd
Kassar
Tröllakassar