Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ 39 Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is INTERFLON Matvælavottaðar efnavörur Nýjar umbúðir, sömu gæða efnin Það sem af er þessu ári hefur vinnslan í fiskvinnslustöð Gullbergs ehf. á Seyð- isfirði gengið vel og hafa 725 tonn verið unnin til þessa. Í síðustu viku var unnið úr tæplega 100 tonnum af fiski sem komu frá Gullver NS, Vestmannaey VE, Bergey VE, Björgvin EA og Björgúlfi EA. Á þessu ári hefur mest verið unnið af þorski í fiskvinnslustöðinni en nú fer að líða að því að áhersla á ufsavinnslu muni aukast. Ufsaveiði hefur verið að glæðast að undanförnu úti fyrir Suður- landi. Frá þessu er greint á heimasíðu Síld- arvinnslunnar, en fyrirtækið festi í lok árs 2014 kaup á fiskvinnslustöðinni og togaranum Gullver NS. Síðan hafa um- svif starfseminnar aukist mikið. Á árinu 2015 tók fiskvinnslustöðin á móti tæp- lega 3.400 tonnum til vinnslu og var það aukning á mótteknu hráefni frá árinu áður um rúmlega Aukinn afli Gullver NS frá Seyðisfirði. Aukin umsvif hjá Gullbergi á Seyðisfirði Á undanförnum vikum hefur grá- sleppunefnd Landssambands smá- bátaeigenda fundað um vertíðina sem hefst 20. mars nk. Grá- sleppunefnd LS ákvað á fundi í gær að miða við að heildarveiði á vertíð- inni 2016 fari ekki umfram 10 þús- und tunnur. Í fyrra jafngilti veiðin 12.152 tunnum og er því hér um samdrátt að ræða, segir á heima- síðu LS. Helstu ástæður þess eru mark- aðslegs eðlis, að ekki sé full vissa fyrir að hægt verði að selja meira magn. Það er skoðun nefndarinnar að fari veiðin ekki umfram 10 þúsund tunnur geti grásleppukarlar vænst þess að stöðugleiki verði á mark- aðnum og verð lækki ekki frá því í fyrra. Heildarmagn sem nefndin hefur ákveðið er þó háð því að tillögur Haf- rannsóknastofnunar til ráðherra kveði ekki á um minni veiði en svarar til 10 þúsund tunna, en ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar er væntanleg í lok mánaðarins að loknu togararalli. „Grásleppunefnd LS ítrekar skila- boð til grásleppukarla um varkárni, það er að hefja ekki veiðar fyrr en þeir hafa trygga sölu og verð hafi verið ákveðið,“ segir á heimasíðu LS. Hvatt til varkárni í grásleppuveiðum Yfirvöld í Síle hafa opnað landamæri sín að nýju fyrir innflutningi á laxa- hrognum frá Íslandi. Þarlend yfir- völd lögðu á innflutningsbann eftir að VHS-veiran greindist í fyrsta sinn hér á landi sl. haust, segir í frétt á heimasíðu Matvælastofnunar. Út- flutningur hrogna hefst á nýjan leik hinn 12. mars nk. Veiran, sem valdið getur sjúk- dómnum veirublæði í yfir 80 teg- undum fiska, greindist í íslenskum hrognkelsum af villtum uppruna sem notuð eru til undaneldis og framleiðslu á „hreinsiseiðum“ til að éta lús af laxi í sjókvíum í Færeyjum og Skotlandi. Í kjölfar greiningarinnar lokuðu yfirvöld í Síle (Sernapesca) sam- stundis á allan innflutning á lifandi laxahrognum frá Íslandi, en slíkur innflutningur hefur átt sér stað frá 1996. Næstu vikur á eftir fram- kvæmdi Sernapesca í samstarfi við Matvælastofnun umfangsmikið áhættumat á smitdreifingu með áherslu á stöðu sjúkdómavarna hjá kynbótastöðvum Stofnfisks sem eitt fyrirtækja á heimsvísu hefur haft til- skilin leyfi til að flytja laxahrogn inn til Síle. Auk VHS-veirunnar tók end- urmatið einnig til allra hugsanlegra veirusjúkdóma í fiskeldi sem leiddi til umfangsmikillar rannsóknar- vinnu á mögulegri smithættu. Ítarleg skýrsla um málið var gerð opinber í Síle og send til umsagnar. Hinn 4. mars sl. kom formleg til- kynning frá Sernapesca um að ís- lenskar kynbótastöðvar stæðust öll skilyrði og hafið væri yfir allan vafa að útflutningur á laxahrognum frá Íslandi til klaks og áframeldis bæri með sér hverfandi líkur á smitdreif- ingu, segir á heimasíðu MAST. Síle heimilar innflutning á laxahrognum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.