Morgunblaðið - 12.03.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Erlendum ferðamönnum sem heim-
sækja Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inn hefur fjölgað
verulega á und-
anförnum árum.
Á síðasta ári
voru þeir um 12
þúsund og er það
tvöföldun á að-
eins þremur ár-
um. Tómas Ó.
Guðjónsson, for-
stöðumaður
garðsins, segir
þessa þróun hafa
haldið áfram það sem af er árinu.
Að sögn Tómasar er ekki svo
mikið um barna- og fjölskyldufólk
meðal erlendra ferðamanna heldur
er þetta meira fullorðið fólk sem
vill fræðast um íslensk húsdýr og
finna sér afþreyingu í höfuðborg-
inni. Að langstærstum hluta eru
gestir garðsins Íslendingar.
„Veturinn er lágannatími hjá
okkur og við fáum kannski um
fimm þúsund gesti til okkar á mán-
uði. Þegar mest lætur á sumrin
koma hingað yfir 40 þúsund manns
á mánuði,“ segir Tómas.
Um 30 ár eru liðin síðan Reykja-
víkurborg ákvað að setja á stofn
húsdýragarð í Laugardalnum. Árið
1990 var garðurinn síðan tekinn í
notkun. Meðal bygginga sem þá
voru teknar í notkun var Hafrafell,
hús Örlygs Sigurðssonar listmál-
ara.
Því var breytt í skrifstofur garðs-
ins og vinnustofa Örlygs gerð að
kennslusal. Nú er húsið komið til
ára sinna og hætt að gegna hlut-
verki sínu sem skrifstofuhúsnæði.
Að sögn Tómasar stendur til að rífa
það en brýn þörf hefur verið á að
reisa nýja fræðslu- og starfs-
mannaaðstöðu. Hefur því ítrekað
verið slegið á frest vegna fjárskorts
hjá borginni.
Skáli í stað veitingatjalds
Hins vegar stendur til að reisa
garðskála í vor og sumar, við hlið
veitingahússins. Kemur skálinn í
stað veitingatjalds sem verið hefur
á þessum stað í garðinum. Að sögn
Tómasar verður verkið boðið út á
næstu vikum.
„Veitingatjaldið gaf sig undan
snjóþunga og í stað þess að endur-
nýja það í þriðja sinn var ákveðið
að finna varanlegri lausn,“ segir
Tómas . Í garðskálanum verður að-
staða fyrir gesti, fundaraðstaða og
fleira. Skálinn verður álíka stór og
veitingatjaldið, um 240 fermetrar.
12 þúsund erlendir ferðamenn sóttu Fjölskyldu- og húsdýragarðinn heim á
síðasta ári Tvöföldun á þremur árum Nýr garðskáli verður reistur í sumar
Ferðamenn sækja í garðinn
Morgunblaðið/Kristinn
Húsdýragarður Vinsælt er að fylgj-
ast með matartíma hjá selunum.
Tómas Ó.
Guðjónsson
„Þetta er fínasta listaverk,“ sagði Jón Björn Hreinsson,
bóndi á Ljósavatni í Ljósavatnsskarði, um sérkennilega
klakastrýtu sem myndaðist rétt ofan við bæinn hans.
Þau á Ljósavatni eru með heimarafstöð. Gúmmí-
pakkning á samskeytum á þrýstipípu að vatnsaflsstöð-
inni bilaði í desember sl. og úðaðist vatnið upp um smá
gat enda er 9,5 bara þrýstingur á vatninu. Vatnið fraus
jafnóðum í kuldanum og klakaborgin hlóðst upp. Jón
Björn sagði að strýtan stæði í halla og væri á að giska
8-10 metra há og 5-6 metra breið neðst.
Hann sagði að klakaborgin væri að mestu hol að inn-
an. Nú er sólin aðeins farin að vinna á klakanum og
nokkuð ljóst að þetta listaverk Vetrar konungs hverfur
með vorinu.
Hörður Jónasson, sem tók myndina, sagði að strýtan
væri orðin mjög áberandi við Ljósavatn.
Ljósmynd/Hörður Jónasson
Listaverk vetrar og vatns
Stór klakastrýta hlóðst upp við Ljósavatn í Ljósavatnsskarði
Veðurstofan hef-
ur sent frá sér
viðvörun vegna
vatnavár á Suð-
ur- og Vestur-
landi á morgun,
sunnudag. Var-
að er við miklum
vatnavöxtum í
ám á Snæfells-
nesi, á Hvítársvæðinu (bæði vestur
og suður af Langjökli), á vatna-
sviði Norðurár í Borgarfirði,
kringum Eyjafjalla- og Mýr-
dalsjökul og við sunnanverðan
Vatnajökul.
Á sunnudag um hádegisbil er
spáð mikilli rigningu á sunnan- og
vestanverðu landinu samhliða
hlýnandi veðri. Þetta verður
fyrsta asahláka ársins
Ferðalangar eru beðnir að at-
huga um ástand vega hjá Vega-
gerðinni. Þar sem rigning verður
mest er íbúum ráðlagt að fylgjast
með niðurföllum og gæta þess að
lausum munum sé komið í var ef
bætir verulega í vindinn.
Vara við vatna-
vöxtum í asahláku
Alicante 18.–29. mars
Flogið með Icelandair
Síðustu sætin í
páskasólina
*Verð án Vildarpunkta frá 49.900 kr.
Verð frá
og 12.500 Vildarpunktar
39.900 kr.*
Flugsæti fram og til baka
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra telur tímabært að
ræða staðsetningu nýs Landspítala
með formlegum hætti. Sigmundur
segir að bygging nýs Landspítala hafi
alloft verið rædd á Alþingi. Síðast hafi
verið tekist á um hvort binda ætti
spítalann við ákveðna staðsetningu
eða ekki.
Málið hafi verið skilið eftir opið í
stjórnarsáttmálanum varðandi fram-
tíðarlausn. Nú sé komin upp ný staða.
Framkvæmanlegt og æskilegt
að fjárfesta í þessu verkefni
„Staða ríkissjóðs er að þróast
þannig til langs tíma, og eins vegna
skammtímaáhrifa af hagnaði banka í
ríkiseigu og annarra efnahagslegra
aðgerða, að það fer að verða mjög
framkvæmanlegt og æskilegt að fjár-
festa í þessu verkefni.
Hitt er að fulltrúar Garðabæjar
hafa komið fram og sagt að bæjar-
félagið sé til í að fara í þessa vinnu
með ríkinu,“ sagði Sigmundur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Hann
sagði að borgaryfirvöld í Reykjavík
hefðu ekki verið reiðubúin að endur-
skoða staðarval Landspítalans innan
borgarinnar.
Sigmundur Davíð sagði að sér
þætti það geta verið skemmtileg leið
ef hægt yrði að leiða staðarvalið til
lykta með þjóðaratkvæðagreiðslu.
Talsmenn staðsetningarkosta gætu
þá lagt fram rök og faglegt mat með
og á móti.
„Mér finnst að minnsta kosti rétt
að gera upp á milli þessara kosta, Víf-
ilsstaða og Hringbrautar, hvort sem
er á Alþingi eða í þjóðaratkvæða-
greiðslu,“ sagði forsætisráðherra.
Hann birti í gær grein á heimasíðu
sinni og skrifaði m.a. að ekki væri
annað hægt en að bregðast við tilboði
Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra í
Garðabæ, og athuga með að reisa nýj-
an spítala við Vífilsstaði.
Þjóðaratkvæði
um staðarval?
Forsætisráðherra vill skoða það að
byggja Landspítala við Vífilsstaði
MEndurskoða þarf … »10-11