Morgunblaðið - 12.03.2016, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.03.2016, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Ég ætla að nota ferðina til að hugsa. Hugsa um það hvað ég geri á næsta ári og hvort ég muni keppa aftur í heimsbikarnum.“ segir skíðakappinn Ivica Kostelic sem gjarnan er nefnd- ur í hópi tengdasona Íslands en hann er giftur Elínu Kostelic, áður Arnars- dóttur. Kostelic hyggst koma til Íslands síðar í mánuðinum og fara á göngu- skíðum þvert yfir landið frá norð- austri til suðvesturs, alls tæplega 500 kílómetra leið. Að sögn hans verður lagt af stað frá Melrakkasléttu, um 16 km norður frá Kópaskeri, en hug- myndin er að ferðinni ljúki fyrir utan Dómkirkjuna í Reykjavík. „Þegar ég kom til Íslands í fyrsta skipti þá tók ég eftir öllu þessu rými og landslagi sem er ólíkt öllu öðru sem ég hef séð. Þegar ég var á gangi í Reykjavík og á flugi yfir landið til Akureyrar, þá var ég heillaður af þessu landslagi og var í raun sífellt að hugsa um það hve mig langaði til að ganga um þetta svæði, sérstaklega að vetri til,“ segir Koste- lic. Hann hefur um árabil verið einn af fremstu skíðamönnum heims. Koste- lic varð heimsbikarmeistari í sam- anlagðri keppni karla í alpagreinum á skíðum 2010/2011 auk þess að vinna heimsmeistarakeppni í svigi í St.Mo- ritz 2003. Á Ólympíuleikunum í Tor- ino 2006, Vancouver 2010 og Sochi 2014 var hann silfurverðlaunahafi bæði í svigi og alpatvíkeppni. Hann hefur unnið 24 sigra í heimsbikarn- um, og var kjörinn besti skíðamaður heims af íþróttafréttamönnum 2011. Óhætt er að segja að hann sé stór- stjarna í Króatíu. Hann hefur einu sinni keppt hér á landi og það var árið 2012 þegar hann tók þátt í alþjóðlegu skíðamóti á vegum KR í Skálafelli. Ekki þekktur úti á götu Kostelic kveðst ekki hafa orðið var við það að fólk þekki hann úti á götu hér á landi og það sé ágæt tilbreyting frá hans daglega lífi í Króatíu. Hann segir að ákvörðunin um að fara í ferðina á þessum tíma árs sé engin tilviljun. Daginn er tekið að lengja en ekki er orðið svo hlýtt að frost sé farið úr jörðu svo erfiðara verði að komast yfir þær ár sem verða á vegi þeirra. Með Kostelic í för verða tveir aðrir, slóvenskur vinur hans og Þorsteinn Jakobsson sem margir þekkja af gönguafrekum hans til að vekja athygli á málstað Ljóss- ins. Veit að allra veðra er von Spurður segir Kostelic að helsti óvissuþáttur ferðarinnar sé veðrið. Gangan muni taka 30 daga, plús eða mínus fimm daga til eða frá. Fer það eftir veðri. „Ef við náum þessu á 30 dögum þá förum við 25 kílómetra á dag. Það er vel gerlegt í góðum að- stæðum. Við erum búnir að koma okkur upp heimskautabúnaði og ég veit að allra veðra er von. En þegar allt kemur til alls þá snýst þetta um veðuraðstæður og við erum tilbúnir að bíða í dag eða tvo á stöku stað ef aðstæður krefjast þess,“ segir hann. Króatar áhugasamir Að sögn Kostelic hafa króatískir fjölmiðlar sýnt ferðinni mikinn áhuga Hann er orðinn 36 ára gamall og var hann fjarri sínu besta á síðasta keppnisári. „Ég er að gera það upp við mig núna hvort ég muni taka eitt tímabil í viðbót. Keppnin í heimsbik- arnum sem átti að fara fram í Króatíu féll niður í ár og mig langar til þess að keppa einu sinni enn á heimavelli,“ segir hann. Hvort sem ferli hans sem skíðamaður í fremstu röð er lokið eða ekki, þá býst Kostelic við því að hann muni takast á við fleiri áskoranir á borð við þessa ferð „Ég vonast til þess að þessi ferð verði eins konar æf- ing fyrir framtíðarævintýri,“ segir Kostelic. Hann hefur komið nokkrum sinn- um til Íslands en hann viðurkennir að þau Elín hafi ekki getað heimsótt Ís- land eins oft og þau vildu á síðustu ár- um vegna keppnisskíðamennsku hans. Hann segir þó að framtíð- arplanið sé að heimsækja Ísland í það minnsta einu sinni á ári. Mun nota ferðina til að hugsa  Ivica Kostelic hyggst fara þvert yfir Ísland á gönguskíðum  Notar ferðina til að hugsa um keppn- isskíðamennskuna  Stefnir að því að enda ferðina við Dómkirkjuna  Búinn undir veðrið Heimsbikar „Ég ætla að nota ferðina til að hugsa. Hugsa um það hvað ég geri á næsta ári og hvort ég muni keppa aftur í heimsbikarnum.“ segir skíðakappinn Ivica Kostelic sem hyggst fara þvert yfir Ísland á gönguskíðum. Skíðafólk Elín Kostelic ásamt eiginmanni sínum Ivica Kostelic og systur hans Junicu Kostelic á góðri stund. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is KSÍ hefur gert samning við Herragarðinn um að verslunin útvegi íslenska landsliðinu í knattspyrnu og fylgiliði þess sérsaumuð jakkaföt á Evrópumótið í fót- bolta. Landsliðið mun klæðast dökkbláum jakkafötum og hvítri skyrtu með rauðleitt bindi fyrir leiki í keppninni og við sérstök tækifæri. Samkomulagið gildir frá undirritun til loka árs 2017, með möguleika á framlengingu. Jakkafötin verða sérsaumuð og -sniðin á hvern leik- mann, þjálfara og aðstoðarmann. „Á stórmótum í knattspyrnu er vaninn að liðin mæti í sínu fínasta pússi og við fórum í samstarf við KSÍ um að Herra- garðurinn klæði alla landsliðsmenn og þá sem tengj- ast landsliðinu í sérsaumuð jakkaföt,“ segir Vil- hjálmur Svan Vilhjálmsson, verslunarstjóri Herragarðsins, en jakkafötin verða gerð persónuleg fyrir alla leikmenn með nafni og númeri að innan. Jakkafötin verða svo til sölu í Herragarðinum. „Herragarðurinn býður upp á þessa þjónustu, að sér- sauma jakkaföt, sem hefur mælst vel fyrir hér á Ís- landi. Ég er búinn að fá nokkra landsliðsmenn í mæl- ingu til mín og flýg út von bráðar að mæla atvinnumennina þegar landsliðið leikur við Dani,“ segir Vilhjálmur. Tískuspekingar heimsins spá mikið í jakkafötin sem liðin mæta í á stórmót en frægt er þegar England ákvað að mæta í ódýrum gráum jakkafötum frá Marks & Spencer á heimsmeistaramótið 2010 á með- an Ítalir mættu á sama mót í rándýrum Dolce & Gabbana-fötum. „Við viljum að þetta verði í lagi og landsliðið verði til sóma í handsaumuðum jakkafötum. Okkur fannst tilvalið að taka þátt í EM-verkefninu og þetta kostar KSÍ ekki neitt heldur er þetta okkar heiður,“ segir Vilhjálmur. Hver jakkaföt kosta um 110-140 þúsund krónur. Jakkafötin verða sérsaum- uð á íslenska landsliðið  Dökkblá jakkaföt, hvít skyrta og rauðleitt bindi Landsliðsfólk Klara Bjartmarz afhenti Vilhjálmi Svan Vilhjálmssyni, verslunarstjóra landsliðstreyju. Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Í tröllahöndum í Noregi Fararstjórar: Guðni Ölversson & Inga Erlingsdóttir Verð: 189.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! 25. - 30. júní Sumar 10 Gríptu einstakt tækifæri til að upplifa stórfenglegt landslag Noregs, þrönga firði, há fjöll með snæviþöktum tindum, fallega fossa og sveitabæi byggða í snarbröttum fjallshlíðum. Við siglum m.a. um Geirangursfjörðinn, ökum Tröllastíginn og kynnumst Þrándheimi. Ómissandi ferð til nágrannalandsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.