Morgunblaðið - 12.03.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016
Samkvæmt nýrri skoðanakönnunhefur Samfylkingin í borgar-
stjórn misst mikið fylgi frá kosning-
unum 2014. Flokk-
urinn hefur hrunið
úr því að vera
stærsti flokkurinn
með tæplega 32%
fylgi í þriðja sætið
með innan við 20%
fylgi. Hinn samfylk-
ingarflokkurinn,
Björt framtíð, hefur
einnig hrunið og mælist nú með
innan við 4% fylgi en fékk nálægt
16% í kosningunum.
Þessi fylgisþróun er skiljanleg.Flokkarnir hafa verið í meiri-
hluta í borgarstjórn sem hefur stað-
ið sig afar illa á flesta ef ekki alla
mælikvarða. Síður skiljanlegt er að
Vinstri grænir, sem líkt og Björt
framtíð hafa hjálpað Samfylking-
unni að spilla málum í borginni,
hafa heldur þokast upp á við.
Þetta er þó ekkert á við fylgis-aukningu Pírata, sem þrátt
fyrir að hafa tekið að sér að vera
fimmta hjólið undir ónýtum vagni
Samfylkingarinnar í borginni, bæta
við sig miklu fylgi og mælast nú
stærstir með yfir 30%.
Hvernig má það vera að þráttfyrir aðild að jafn ómöguleg-
um borgarstjórnarmeirihluta, sem
býr við það að borgarbúar flýja
flokk borgarstjóra í stórum hópum,
skuli einn meirihlutaflokkanna
stórauka fylgi sitt?
Og hvernig stendur á því aðþetta fylgishrun samfylking-
arflokkanna fer ekki til flokkanna
sem eru í minnihluta, nema þá að
mjög takmörkuðu leyti?
Er það ekki nokkuð sem minni-hlutinn þarf að velta fyrir sér?
Dagur B.
Eggertsson
Hrun í flokki
borgarstjórans
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 11.3., kl. 18.00
Reykjavík 3 alskýjað
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 3 skýjað
Nuuk -8 snjókoma
Þórshöfn 6 alskýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Stokkhólmur 5 heiðskírt
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 8 skúrir
London 10 heiðskírt
París 10 heiðskírt
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 6 léttskýjað
Berlín 5 skýjað
Vín 7 alskýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 13 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 15 skýjað
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 1 alskýjað
New York 14 skýjað
Chicago 7 skýjað
Orlando 26 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:55 19:21
ÍSAFJÖRÐUR 8:02 19:24
SIGLUFJÖRÐUR 7:45 19:07
DJÚPIVOGUR 7:25 18:50
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Magnús Orri Schram, sem var þing-
maður Samfylkingarinnar í suðvest-
urkjördæmi 2009-2013, mun
snemma í dag tilkynna þá ákvörðun
sína að bjóða sig fram til formanns í
Samfylkingunni. Þetta hefur Morg-
unblaðið eftir áreiðanlegum heimild-
um.
Helgi Hjörvar, formaður þing-
flokks Samfylkingarinnar, sendi
flokksfólki bréf hinn 19. febrúar sl.
þar sem hann tilkynnti framboð sitt
til formanns flokksins.
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, hefur ekki enn gefið
það upp hvort hann mun sækjast eft-
ir endurkjöri.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Magnús Orri kannað
mögulegan stuðning samfylkingar-
fólks við formannsframboð sitt um
nokkra hríð. Sömu heimildir herma
að hann geti vænst góðs stuðnings.
Von er á tilkynningu frá Magnúsi
Orra um formannsframboð snemma
í dag.
Framkvæmdastjórn Samfylking-
arinnar samþykkti á fundi sínum síð-
astliðið miðvikudagskvöld svohljóð-
andi ályktun: „Stjórn og fram-
kvæmda stjórn Samfylkingarinnar,
aðal- og varamenn, samþykkja ein-
róma að leggja til að kjörið verði til
stjórnar og framkvæmdastjórnar á
landsfundi 3. og 4. júní nk.
Nú liggur fyrir að formaður
flokksins verði kjörinn í allsherjarat-
kvæðagreiðslu í aðdraganda lands-
fundar og að nýr varaformaður verði
kjörinn á landsfundinum. Við þær
aðstæður er æskilegt að tækifæri
gefist til að kjósa alla forystu flokks-
ins á sama tíma.“
Líkt og segir í ályktuninni verður
formaður kosinn í aðdraganda lands-
fundarins í allsherjaratkvæða-
greiðslu og verður kjöri formanns
svo lýst á landsfundinum. Að öðru
leyti verða varaformaður flokksins,
vara- og aðalmenn stjórnar og fram-
kvæmdastjórnar kosnir á landsfund-
inum.
Hvorki náðist í Magnús Orra
Schram né Árna Pál Árnason í gær.
Oddný íhugar framboð
Oddný G. Harðardóttir, alþingis-
maður og fyrrverandi fjármálaráð-
herra, íhugar framboð til formanns
Samfylkingarinnar. „Ég hef verið að
íhuga þetta lengi en ekki gert upp
hug minn,“ segir hún.
Ákvörðun muni ekki liggja fyrir
fyrr en eftir helgi að loknum flokks-
stjórnarfundi.
Magnús Orri
býður sig fram
„Útlendingastofnun er kunnugt um
að einhverjir íbúar á Kjalarnesi hafi
áhyggjur af nábýlinu við hælisleit-
endurna í Arnarholti. Í nokkur
skipti hefur verið haft samband við
stofnunina vegna þessa en að mati
þjónustuteymis Útlendingastofn-
unar hefur sambúðin í Arnarholti
gengið vel.“
Þetta kemur m.a. fram í svari Út-
lendingastofnunar við fyrirspurn
Morgunblaðsins í tilefni af þeim
áhyggjum sem íbúar á Kjalarnesi
hafa vegna Arnarholts en þar dvelja
nú um 50 hælisleitendur og 50 aðrir
íbúar í leiguhúsnæði. Hverfisráð
Kjalarness ályktaði nýverið um Arn-
arholt og lýsti einnig áhyggjum af
þjónustustiginu við íbúa Arnarholts.
Á fundi ráðsins sl. fimmtudag var
ákveðið að efna til opins íbúafundar
um Arnarholt og vonir eru bundnar
við að fundurinn fari fram í næstu
viku. Vonast hverfisráðið einnig eft-
ir viðræðum við borgaryfirvöld og
Útlendingastofnun.
„Stofnunin vill árétta að hælisleit-
endur eru upp til hópa ekki hættu-
legri en annað fólk og alla jafna er
ekki ástæða til sérstakrar varkárni í
nágrenni búsetuúrræða fyrir hæl-
isleitendur. Reynsla Útlendinga-
stofnunar er sú að almennt hafi
sambúð við hælisleitendur gengið
vel og ef upp hafa komið vandamál
hefur verið gripið til viðeigandi ráð-
stafana,“ segir í svarinu.
Stofnunin segist vera að vinna
stöðugt að því að efla þjónustu við
hælisleitendur í öllum búsetu-
úrræðum. Þannig sé hælisleit-
endum í Arnarholti boðið upp á dag-
legan akstur í næstu
strætóstoppistöð og tvisvar í viku
sé akstur fyrir hælisleitendur í mið-
bæjarkjarna Mosfellsbæjar svo
þeir geti verslað þar.
„Stofnunin er ávallt tilbúin að
ræða við íbúa í nærumhverfi þar
sem hælisleitendur búa á vegum
stofnunarinnar, sé eftir því kallað,“
segir ennfremur í svarinu.
„Hælisleitendur ekki hættulegri en aðrir“
Útlendingastofnun til í viðræður við íbúa á Kjalarnesi vegna Arnarholts
HÁDEGISTÓNLEIKAR
STÁSS MEÐ STRAUSS - ÁSTIN OG LISTIN
HANNA DÓRA STURLUDÓTTIRMEZZÓSÓPRAN
HLÍN PÉTURSDÓTTIR BEHRENS SÓPRAN
ÁSAMT GERRIT SCHUIL PÍANÓLEIKARA
Þriðjudag 15. mars · kl. 12.15 · Norðurljósasal Hörpu
Aðgangseyrir: 1500 kr.
Frítt inn fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn
Flutt verður tónlist úr
óperum Strauss;
Der Rosenkavalier,
Arabella og Ariadne
auf Naxos!