Morgunblaðið - 12.03.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016
ÚR BÆJARLÍFINU
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnes
Aðalfundur Grímshúsfélagins
verður haldinn á morgun, sunnudag,
13. mars kl. 17.00 í Alþýðuhúsinu.
Grímshús í Brákarey var byggt 1944
sem útgerðaraðstaða fyrir Eldborg-
ina, sem var síldveiðiskip og flutti
mikinn fisk út til Englands á stríðs-
árunum. Í húsinu var fyrsta „bæj-
arskrifstofan“ í Borgarnesi. Gríms-
húsfélagar hafa nú þegar klætt um
helming af húsinu, skipt um þak og
glugga að hluta. Í sumar á að ljúka
við þessa vinnu og steypa gólf, en í
framhaldinu verður vonandi þessu
merka húsi fundið hlutverk sem
hæfir sögu þess og staðsetningu.
Allt áhugafólk um endurbyggingu
hússins er hvatt til að mæta á fund-
inn.
Margir vilja vera sveitarstjórar í
Borgarbyggð. Eins og kunnugt er
slitnaði upp úr samstarfi Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks í febr-
úar sl. og var myndaður nýr meiri-
hluti Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar. Kolfinna Jóhann-
esdóttir lét af störfum sem sveit-
arstjóri og hefur nú verið auglýst
eftir nýjum. Umsóknarfresturinn er
útrunninn en alls sóttu 26 ein-
staklingar um starfið, 19 karlar og 7
konur. Hagvangur hefur umsjón
með ráðningarferlinu. Megi sá hæf-
asti hljóta starfið.
Michelle Bird heldur áfram að
leggja sitt af mörkum til að efla listir
og menningu í Borgarnesi. Nú
stendur yfir sýningin „Ástkæra
Borgarnes“ en þar má sjá hvernig
Michelle upplifir og túlkar mannlíf
og umhverfi Borgarness. Viðfangs-
efnið er náttúrufegurð staðarins og
sterk tengsl íbúa við umhverfið.
Ennfremur er sýnd stuttmynd,
byggð á örviðtölum við nokkra
Borgnesinga. Að auki býður Mic-
helle upp á teiknismiðju tvisvar í
viku; á þriðjudögum og fimmtudög-
um, fyrir alla aldurshópa á meðan á
sýningunni stendur. Sýningin er op-
in virka daga frá 13.00-18.00 til 8.
apríl.
Nemendur í Grunnskólanum
standa sig vel í hreysti og heilsu en
þeir urðu í þriðja sæti í grunn-
skólakeppni Lífshlaupsins í ár. 71%
nemenda tóku þátt í keppninni sem
er heilsu- og hvatningarkerfi
Íþrótta- og Ólympíusambands Ís-
lands. Grunnskólakeppnin er fyrir
15 ára og yngri og stóð yfir í tvær
vikur í febrúar. Samkvæmt ráðlegg-
ingum Embættis landlæknis um
hreyfingu er börnum og unglingum
ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60
mínútur á dag og fullorðnum í
minnst 30 mínútur á dag. Að auki
tóku nemendur þátt og kepptu í
Skólahreysti í liðinni viku og urðu í
fjórða sæti af 11 grunnskólum á
Vesturlandi og Vestfjörðum. Skóla-
hreysti er liðakeppni milli grunn-
skóla landsins og samanstendur
hvert lið af tveimur strákum og
tveimur stelpum sem öll þurfa að
vera nemendur í 9. og/eða 10. bekk
síns skóla. Skólahreysti er við-
urkennd og nýtur opinbers stuðn-
ings menntamálaráðuneytis, heil-
brigðisráðuneytis, norrænu
ráðherranefndarinnar, Íþrótta& Ól-
ympíusambands Íslands og sveitar-
félaga.
Nemendur standa sig
vel í hreysti og heilsu
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Grímshúsið í Brákarey Húsið var byggt 1944. Unnið er að endurbyggingu
þess. Skipt hefur verið um þak og búið er að klæða um helming hússins.
„Ég kom hingað í fjárhúsin um
klukkan átta í morgun og þá tók
þetta á móti mér,“ sagði Guð-
mundur Emil Sæmundsson, íbúi í
Vík, í samtali við mbl.is síðdegis í
gær, en hann kom að illa bitinni
og dauðri kind í gærmorgun. Við
hlið hennar lágu einnig tvö dauð,
óborin lömb.
„Þetta er augljóslega eftir hund
– ég get fullyrt það. Refur fer
ekki svona í fé auk þess sem hann
fer sjaldnast heim í fjárhús,“ segir
Guðmundur Emil og heldur áfram:
„Hundur fer alltaf aftan í þær og í
kviðinn en tófan í snoppuna og
hausinn.“
Guðmundur Emil segist hafa
kallað til lögreglu sem mætti á
staðinn og tók skýrslu. „Vonandi
finna þeir út úr þessu. Það er allt-
af leitt að koma að svona og vona
ég að þetta verði fólki til umhugs-
unar.“
Dýrbítur í fjárhúsum í Mýrdal
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ljót aðkoma Guðmundur við fjárhúsin.
Bæjarráð Akra-
ness samþykkti á
fundi hinn 10.
mars sl. að
dekkjakurl á
sparkvöllum við
Grundaskóla og
Brekkubæj-
arskóla yrði fjar-
lægt á þessu ári.
Á Akranesi
eru þrír spark-
vellir með svokölluðu gervigrasi.
Gúmmíkurlið, þ.e.a.s. endurunnið
dekkjakurl, er á tveimur vallanna,
það er við Grundaskóla og Brekku-
bæjarskóla. Þeir vellir voru lagðir
fyrir u.þ.b. 10 árum. Í Akraneshöll
er hinsvegar grátt, endurunnið
þvottavélargúmmí.
Á fundinum var skipulags- og
umhverfisráði falið að gera tillögu
að breytingu í framkvæmda- og
fjárfestingaráætlun með tilliti til
þess.
Dekkjakurlið fjar-
lægt á Akranesi í ár
Dekkjakurlið burt á
Skaganum.
Sjö framboð bárust til fimm stjórn-
arsæta í tryggingafélaginu VÍS.
Kosið verður í stjórnina á aðalfundi
16. mars næstkomandi. Allir núver-
andi stjórnarmenn, að Bjarna
Brynjólfssyni undanskildum, bjóða
áfram fram krafta sína. Það á við
um Herdísi Dröfn Fjeldsted, núver-
andi stjórnarformann, Jostein Sør-
voll, varaformann stjórnar, Guð-
mund Þórðarson og Helgu
Jónsdóttur. Þá hafa einnig gefið
kost á sér þau Helga Hlín Há-
konardóttir, Guðný Hansdóttir og
Jóhann Halldórsson.
Vegna laga um kynjakvóta í
stjórnum fyrirtækja er ljóst að sú
kvennanna sem fær fæst atkvæðin
mun ekki ná kjöri, óháð því hvernig
atkvæði skiptast að öðru leyti.
Sjö sækjast eftir
sæti í stjórn VÍS
Íslandsstofa og Hönnunarmiðstöð Íslands boða til fundar
um hönnun og vörumerkjauppbyggingu (branding)
til að auka verðmæti íslenskra matvæla í sölu á erlendum
mörkuðum og til erlendra ferðamanna á Íslandi.
• Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunar-
miðstöðvar Íslands fjallar um gildi hönnunar
• Brynhildur Pálsdóttir og Kristín María Sigþórsdóttir,
hönnuðir flytja erindi um stefnur og strauma í matar-
og upplifunarhönnun
• Jakob S. Bjarnason, framkvæmdastjóri Foss Distillery
segir frá því hvernig fyrirtækið hefur mótað sér sýn
og unnið með hönnun í starfi sínu
Á fundinum verða einnig kynntar vinnustofur fyrir
matvælafyrirtæki um sama málefni, sem Íslandsstofa
mun halda í apríl og maí.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Íslandsstofu,
www.islandsstofa.is eða í síma 511 4000.
Fundur fimmtudaginn 17. mars
kl. 9 -10.30 á Bryggjunni brugghúsi,
Grandagarði 8
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
vilja leggja Sæbraut og Geirsgötu í
umferðarstokk. Tillaga þess efnis
verður lögð fram á fundi borgar-
stjórnar Reykjavíkur næstkomandi
þriðjudag. Telur flokkurinn að nú sé
tækifæri til að hrinda slíku sam-
göngumannvirki í framkvæmd að
höfðu samráði við lóðarhafa.
„Verði Sæbraut og Geirsgata
lagðar í stokk skapast tækifæri til
þess að móta torg og fleira þar sem
göturnar liggja nú og þannig má
auka umhverfisgæði og skapa fjöl-
breytilegan og eftirsóknarverðan
miðborgarbrag,“ segir í tillögunni.
Lagt er til að Reykjavíkurborg
óski eftir viðræðum við innanríkis-
ráðherra um tillöguna.
Njóta miðborgar í heild
Fyrirhuguð er mikil uppbygging í
miðborginni og telja borgarfull-
trúarnir að gólffletir nýbygginga
muni margfalda þann fermetrafjölda
sem fyrir er í Kvosinni. Umferðar-
þungi og álag aukist í kjölfarið.
Sæbraut, sem breytist í Geirsgötu
við gatnamót Lækjargötu, kljúfi
nyrðri hluta svæðisins og komi í veg
fyrir að það geti orðið að einni heild.
Nýbyggingarnar á svæðinu eru að
mestu á frumstigi fyrir utan tónlist-
arhúsið Hörpu. Klofið svæði komi í
veg fyrir að fólk fái notið bæði nýrri
og eldri hluta miðborgarinnar
óhindrað.
Opna fundi fastanefnda
Á fundi borgarstjórnar verður
einnig rætt um óviðunandi viðhald
gatna, að beiðni Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknar og flugvallarvina.
Þá leggja sjálfstæðismenn einnig
fram tillögu um að heimilt verði að
opna fundi ráða og nefnda
og hefja beinar útsendingar frá
þeim. laufey@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í stokk Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja leggja Sæbraut og Geirs-
götu í umferðarstokk. Tillagan verður lögð fram þriðjudaginn nk.
Vilja setja Sæbraut
og Geirsgötu í stokk
Móta torg þar sem göturnar eru nú