Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 30

Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mörg áreru síðanbyrjað var að vara við því að nota dekk- jakurl á gervi- grasvöllum lands- ins. Sennilega má rekja það allt aftur til ársins 2010 þegar Þórarinn Guðna- son læknir skrifaði grein í Læknablaðið þar sem hann sagði að í dekkjakurlinu væri krabbameinsvaldandi efni og mæltist til þess að það yrði fjarlægt. Í vetur hefur umræðan verið mjög hávær. Hún hófst á félagsmiðlum í haust og var fjallað rækilega um málið í Sunnudagsblaði Morgun- blaðsins. Upp úr því voru stofnuð samtök að undirlagi foreldra undir yfirskriftinni Nýjan völl án tafar, dekkja- kurlið til grafar. Þessi hreyf- ing hefur haldið uppi stöðug- um þrýstingi á sveitarfélög og í vikunni kom fram að hann er farinn að skila sér. Á fimmtudag var lýst yfir því að bæjarráð Hafnarfjarð- ar hefði samþykkt að gúmmí- kurli yrði í sumar skipt út á öllum sparkvöllum við grunn- skóla bæjarins, samtals átta völlum. Á þriðjudag samþykkti bæjarstjórn Kópavogs ein- róma á fundi að endurnýjun sparkvalla við grunnskóla bæjarins yrði flýtt og lokið yrði við að skipta út gúmmí- kurli úr dekkjum á þeim á árinu. Daginn áður lýstu bæjar- yfirvöld á Seltjarnarnesi yfir því að fjarlægja ætti allt gúmmíkurl úr dekkjum við íþróttasvæði Seltirninga. Sveitarfélögin þrjú báru við áhyggjum af efnum í kurlinu. „Þótt ekki sé vís- indalega staðfest að kurl valdi heilsutjóni þá þykir rík ástæða til að láta alla þá sem nota vellina í frístundum, íþróttum og tómstundum njóta vafans,“ sagði í tilkynn- ingu frá Hafnarfjarðarbæ. Reykjavíkurborg setti á mánudag inn á vef sinn frá- sögn af samþykkt borgar- innar á tillögu Dags B. Egg- ertssonar borgarstjóra um endurnýjun á gervigrasvöll- um. Þar á bæ þykir málið greinilega ekki jafn brýnt og í nágrannasveitarfélögunum. Áætlunin er til fjögurra ára. Hafist verður handa á gervigrasvelli Víkings á þessu ári. Á næsta ári kemur röðin að gervigrasvöllum KR og Fylkis. Svo kemur Breið- holtið, gervigrasvöllur Leiknis 2018 og ÍR 2019. Rökstuðning- urinn fyrir því að ekkert liggi á að losna við dekkja- kurlið er sláandi. „Reykjavíkurborg hefur aflað upp- lýsinga um gúmmíkurl og gervigras- velli,“ segir í greinargerð með tillögu Dags um gervi- grasvelli í eigu Reykjavíkur- borgar. „Á grundvelli þeirra upplýsinga er ekki talin nauðsyn á að skipta því út. Engar óyggjandi sannanir liggja fyrir um það hvort gúmmíkurlið er hættulegt eða ekki.“ Þessi málflutningur minnir á varnarræður tóbaksfyrir- tækjanna á liðinni öld þegar þau þvertóku fyrir skaðsemi framleiðslu sinnar. Umhverfis- og samgöngu- nefnd Alþingis tók dekkja- kurlsmálið fyrir á fundi á miðvikudag. Fyrir nefndinni lá meðal annars greinargerð frá foreldrahópnum. „Ef ein- hvers staðar er hægt að tala um umhverfissóðaskap þá er hann á gervigrasvöllum barnanna okkar í dag,“ segir þar og síðar: „Loks er sett í dekkin sót sem lætur börnin okkar líta út eins og námu- graftrarmenn. Sótið gerir okkur kleift að sjá hversu mikil snerting barnanna er við dekkjakurlið og efnið sem úr því losnar.“ Síðan segir að sótið, sem sé tæp 35-40% af dekkjakurli, sé „talið krabba- meinsvaldandi af alþjóðlegu krabbameinsrannsóknar- stofnuninni International Agency for Research on Cancer“. Eftir fundinn sagði Hösk- uldur Þórhallsson, formaður nefndarinnar, að þar hefðu komið fram sláandi upplýs- ingar. „Okkur var bent á það með mjög sannfærandi rök- um að um verulega heilsu- spillandi efni er að ræða og að sönnunarbyrðin í þessum málum á að vera öfug,“ sagði hann við mbl.is. „Þeir sem taka ákvarðanir um að leggja þetta dekkjakurl á velli verða að sýna fram á að þetta sé ekki heilsuspillandi.“ Hann gagnrýndi sveitar- félög sem ekki hefðu tekið þetta mál alvarlega og beindi orðum sínum sérstaklega til borgarstjóra: „Við verðum að gera þær kröfur til borgar- innar að hún taki til eftir sig og ráðist strax í aðgerðir til að losna við þessa óværu af völlunum. Börnin eiga að njóta vafans.“ Það er erfitt að andmæla því. Málflutningur borg- arstjóra minnir á varnarræður tóbaks- fyrirtækjanna á lið- inni öld} Hver á að njóta vafans? Þ að styttist í forsetakjör og í byrjun ágústmánaðar mun nýr húsbóndi taka við lyklavöldum á Bessastöð- um, hinu fornfræga höfuðbóli sem Sigurður Jónsson, forstjóri, færði íslensku þjóðinni af rausnarskap sínum árið 1941, svo hægt væri að búa ríkisstjóranum virðulegan samastað. Frá því að Sveinn Björns- son var kjörinn forseti á Þingvöllum, 17. júní 1944 hafa forsetar þjóðarinnar haldið sitt op- inbera heimili þar. Enn hefur ekki fengist skýr mynd af því hverjir verði í framboði í kosningunum í júní en ljóst er að margir eru kallaðir. Flestir í kjölfar hvatningar frá stuðningsmönnum og aðrir af innri þrá til að vinna íslensku samfélagi gagn. Allt er það þakkarvert og sannarlega er það betra að margir vilji gegna embætti forseta en ef því væri öfugt farið. Það er oftast nær heppilegra að hafa úr mörgum kostum að velja en fáum. Nú þegar fleiri og fleiri stíga fram sem „komið hefur verið að máli við“, svo vísað sé til alþekktrar afsökunar sem áhugasamir um embættið bera fyrir sig þegar þeir eins og undirleitir unglingar viðurkenna áhuga sinn á hinu háa emb- ætti, velti ég fyrir mér þeirri fullyrðingu sem margir halda fram þess efnis að sá sem gegni forsetaembættinu verði að vera „sameiningartákn.“ Nú er það svo að starfslýsingu for- setans er að finna í sjálfri stjórnarskránni en þar er hann hvergi sagður sameiningartákn. Hann er reyndar lýstur ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum og að hann láti ráðherra framkvæma vald sitt. Honum er ætlað að skipa ráðherra og veita þeim lausn, hann skipar rík- isiráðið og veitir því forsæti og honum er einnig ætlað að veita önnur þau embætti sem kveðið er á um í lögum. Samkvæmt stjórnarskránni gerir forsetinn líka samninga við erlend ríki og hann stefnir Alþingi saman, eigi síðar en 10 vikum eftir almennar alþingiskosningar. Hann getur sömuleiðis frestað fundum Alþingis í allt að tvær vikur, einu sinni á ári. Þá getur hann líka synjað lögum staðfestingar og látið leggja fyrir Alþingi lög til staðfestingar. Þá hefur forsetinn vald til að fella niður saksókn gegn mönnum ef ríkar ástæður eru til. Hann getur náðað menn og veitt almenna uppgjöf saka. Hvergi í þessari upptalningu, sem reyndar gæti verið lengri og ítarlegri, eru talin upp verk- efni sem falið geta í sér þá kvöð eða skyldu að forsetinn sé sameiningartákn. Raunar virðist vera sem mörgum skyldum forsetans fylgi hættan á því að hann verði umdeildur um skemmri eða lengri tíma. Málskotsrétturinn, margumræddi, er kannski skýrasta dæmið um það. Þegar til þessa er litið, og reynslu okkar af þaulsætnasta forseta lýðveldisins, þá er tómt mál að tala um að sá sem tekur við embættinu af honum, geti orðið „sameiningar- tákn“ þjóðarinnar. Margt bendir reyndar til að ef forsetinn leggur of mikið á sig til að ná því froðukennda markmiði, geti hann þurft að skáka til hliðar þeim skyldum sem aug- ljóslega hvíla á honum stjórnarskránni samkvæmt. ses@mbl.is Stefán Einar Stefánsson Pistill Sameiningartákn í samtímanum? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Allt situr fast sem fyrr í ál-versdeilunni í Straumsvíkog hefur ekkert nýtt kom-ið fram á undanförnum dögum sem gæti greitt fyrir því að kjaraviðræður komist í gang. Verk- fallsaðgerðirnar um stöðvun útflutn- ings á áli hafa nú staðið yfir í vel á þriðju viku. Flutningaskip sem lagðist að bryggju í Straumsvík í byrjun vik- unnar er farið og ekkert skip í höfn- inni eins og stendur og engar að- gerðir því í gangi þessa dagana að sögn Kolbeins Gunnarssonar, for- manns Hlífar. Boðað hefur verið til sáttafundar á mánudaginn eins og lög gera ráð fyrir að gert sé með reglubundnu millibili í kjaradeilum, sem eru til sáttameðferðar. ,,Menn eru alltaf hver í sínum hópi að reyna að skoða og finna lausnir en það gengur hægt,“ segir Kolbeinn. Ekki sé komið að því að undirbúa frekari aðgerðir en yfirstandandi útflutn- ingsbann til að knýja á um lausn. „Menn eru alltaf frekar að föndra við að reyna að ná kjarasamningi.“ Úttekt tilbúin 24. mars Mikil umræða hefur orðið um þýðingu og áhrif af starfsemi álvers- ins og hversu alvarlegar afleiðingar það hefði ef kæmi til lokunar þess. Unnið hefur verið á undanförnum mánuðum að úttekt á vegum Hafn- arfjarðarbæjar á efnahagslegum áhrifum af starfsemi álversins á bæjarfélagið. Samkvæmt upplýs- ingum sem fengust hjá Hafnarfjarð- arbæ í gær verður úttektin ekki tilbúin fyrr en fimmtudaginn 24. mars. Til stendur að taka hana fyrir á bæjarráðsfundi þann sama dag. Ýmsar upplýsingar hafa þó legið fyrir frá því fyrr í vetur sem sýna svart á hvítu að lokun álversins hefði mikil og víðtæk þjóðhagsleg áhrif og enn meiri staðbundin áhrif. Þær komu fram kom í svari Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar- og við- skiptaráðherra í desember sl. við fyrirspurn frá Vigdísi Hauksdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins, um áhrif stóriðju og orkuverð. Þar kom m.a. fram að tekjur rík- issjóðs af starfsemi álversins næmu rúmum milljarði á ári í formi tekju- skatts og tryggingagjalds. Tekjur sveitarfélaga nema um 600 millj- ónum kr. vegna útsvars starfs- manna, 300 milljónum af fasteigna- gjöldum og tæplega 170 milljónum kr. af hafnargjöldum. Samtals nema tekjur hins opin- bera af starfsemi álversins því rúm- lega tveimur milljörðum kr. á árs- grundvelli. Útflutningstekjur fyrirtækisins á árinu 2014 voru 56 milljarðar og fram kom í svarinu að fyrir Hafn- arfjörð yrði beinn tekjumissir um 700 milljónir kr. á ári. Þá yrðu áhrif- in mjög mikil fyrir starfsmenn ál- versins og þau fyrirtæki og ein- staklinga sem þjónusta álverið. Í svarinu er byggt á grófu mati sem unnið var á vegum þriggja ráðuneyta á þjóðhagslegum og stað- bundnum áhrifum hugsanlegrar lok- unar álversins í Straumsvík. Þar var þó ekki lagt mat á hvaða afleiðingar lokun hefði t.d. á viðskiptahagsmuni Landsvirkjunar og Landsnets. Fram kom í svarinu að gróflega mætti áætla að á árinu 2014 hefði fyrirtækið flutt inn hráefni og að- föng fyrir um 30 milljarða kr. Vöru- skiptajöfnuður félagsins var þá já- kvæður um 26 milljarða kr. og þar af urðu 4 milljarðar kr. eftir í land- inu vegna launa í álverinu, 500 millj- ónir vegna fasteignaskatta og tæp- lega 170 millj. kr. vegna hafnargjalda. Úttekt að ljúka á áhrifum álversins Morgunblaðið/Golli Álversdeilan Stjórnendur álvers Rio Tinto Alcan í Straumsvík hafa séð um útskipun á áli frá því að ótímabundið útskipunarbannið hófst 24. febrúar sl. Áætlað hefur verið á vegum Vinnumálastofnunar að vinnu- afl í Hafnarfirði sé að meðaltali um 15.850 manns. Eins og fram hefur komið starfa að meðaltali rúmlega 400 manns í álverinu í Straumsvík. Fram kom í svari iðnaðarráðherra að af heild- arfjölda starfsmanna álversins séu að jafnaði 198 búsettir í Hafnarfirði, samkvæmt upp- lýsingum frá Hafnarfjarðarbæ. Það eru um 1,25% af heildar- vinnuafli sveitarfélagsins. Í lok janúar sl. voru 452 manns á at- vinnuleysisskrá í Hafnarfirði. Um 200 búa í Hafnarfirði YFIR 400 STARFSMENN Morgunblaðið/ÞÖK Álverið Boðað er til sáttafundar á mánudaginn næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.