Fréttablaðið - 13.01.2017, Side 10
Bandaríkin James Mattis, fyrr-
verandi hershöfðingi landgöngu-
liða og val Donalds Trump í emb-
ætti varnar málaráðherra, styður
hugmyndir um varanlega viðveru
Bandaríkjahers í Eystrasaltslönd-
unum til að vinna að öryggi þeirra
gegn Rússum.
Þetta sagði Mattis í yfirheyrslu á
fundi þingnefndar sem hefur það
hlutverk að staðfesta eða hafna til-
nefningum í ráðherraembætti.
Mattis sagðist jafnframt hafa
áhyggjur af framgangi Rússa á
nokkrum vígstöðvum, meðal ann-
ars í sýrlensku borginni Aleppo og
í Úkraínu.
„Frá því á leiðtogafundinum í
Jalta árið 1945 höfum við reynt sam-
starf við Rússa án árangurs. Það sem
er mikilvægast þessa stundina er að
gera sér grein fyrir því að Vladimír
Pútín [Rússlandsforseti] er að reyna
að eyðileggja Atlantshafsbanda-
lagið. Við eigum að taka nauðsynleg
skref til þess að verja okkur,“ sagði
Mattis.
Hann sagði heimskerfið ekki hafa
sætt jafn miklum árásum frá því í
síðari heimsstyrjöld. Það væri vegna
Rússa, aðgerða Kínverja í Suður-
Kínahafi og hryðjuverkasamtaka.
Varnir væru því mikilvægar og þær
þörfnuðust sterks hers.
Formaður nefndarinnar og fyrr-
verandi forsetaframbjóðandinn John
McCain spurði þá hvort herinn væri
nægilega sterkur í núverandi mynd.
Svar Mattis var einfalt: „Nei, herra.“
Mattis sagðist mikill stuðnings-
maður Atlantshafsbandalagsins
(NATO). „NATO er miðlægt í varnar-
málum okkar. Það byggir undir
stöðugleika í Evrópu og er varnar-
bandalag sem hjálpar okkur að við-
halda okkar gildum,“ sagði Mattis.
„Sé litið til sögunnar er hún mjög
skýr. Ríki sem eiga sterka banda-
menn þrífast en ríki án þeirra
veslast upp,“ sagði hann að auki, en
Mattis er sagnfræðingur að mennt.
Kirsten Gillibrand, einn nefndar-
manna, spurði Mattis þá út í hvort
opnun fyrir herþjónustu hinsegin
fólks hefði veikt herinn.
Mattis hefur miklar áhyggjur
af aðgerðum Rússa og Kínverja
Varnarmálaráðherraefni Donalds Trump hefur áhyggjur af aðgerðum Rússa og Kínverja. Hann er þekktur
fyrir fleyg ummæli og er virtur af landgönguliðum. Þá segir hann kynferði og kynhneigð engu máli skipta í
herþjónustu, einungis ástand. Undanþágu þyrfti frá lögum til þess að Mattis yrði varnarmálaráðherra.
James Mattis þegar hann mætti fyrir nefnd í þinghúsi Bandaríkjanna í gær. Nordicphotos/AFp
Orðheppin „költ“-hetja
James Mattis er fyrrverandi hers-
höfðingi bandarískra landgöngu-
liða. Hann fæddist í Washington-ríki
árið 1950.
Á meðal þeirra viður-
nefna sem hann hefur
fengið í hernum eru
Chaos, Warrior Monk
og Mad Dog. Chaos
var dulnefni hans
í hernum en það
viðurnefni sem helst
hefur fest við hann
er Mad Dog eða óði
hundur.
Mattis er sagður „költ“-
hetja landgönguliða og hafa fjöl-
mörg ummæli hans vakið lukku.
Sum eru þó umdeildari. Frétta-
blaðið tók nokkur þeirra saman.
„Ef þú þarft að drepa saklausan
mann til þess að drepa óvin þinn,
slepptu því að skjóta. Ekki eignast
fleiri óvini en þú myndir drepa
með því að gerast sekur um slíkan
siðferðisbrest,“ hefur Mattis sagt
þegar hann hefur talað um siðferði
landgönguliða þegar barist er
við óvinveitt öfl.
„Ég kem í friði. Ég tók
ekkert stórskotalið
með mér. En ég grát-
bið ykkur. Ekki abb-
ast upp á mig, því þá
mun ég drepa ykkur
alla,“ sagði Mattis. Í
upphafi Íraksstríðsins
skildi Mattis skriðdreka
og stórskotalið eftir
þegar hann átti fund með
höfðingjum írakskra ættbálka.
„Landgönguliðar vita ekki
hvernig orðið ósigur er skrifað,“
hafa landgönguliðar eftir Mattis en
hann er einn virtasti landgönguliði
sinnar kynslóðar.
„Mér hefur alltaf verið sama um
með hverjum tveir samþykkir, full-
orðnir aðilar fara í rúmið. Það skipt-
ir engu máli. Það eina sem skiptir
máli í þessu samhengi er að viðkom-
andi séu í fullnægjandi ástandi til að
þjóna í hernum,“ svaraði Mattis.
Lög eru í Bandaríkjunum um að
stjórn yfir hernum verði ávallt í
höndum almennra borgara en ekki
hermanna sjálfra. Því mega varnar-
málaráðherrar ekki hafa unnið fyrir
herinn í sjö ár áður en þeir taka við
embætti. Mattis vantar hins vegar
fjögur ár upp á það skilyrði. Því mun
hann þurfa undanþágu. Fyrrgreind
nefnd mun skera úr um hvort hann
fái hana.
Sjálfur sagði Mattis löggjöfina
mikilvæga. „Stjórn almennra
borgara yfir hernum er grunngildi
bandaríska hersins. Ef báðar deildir
þingsins samþykkja undanþáguna
mun ég stýra aðgerðum hersins
sem almennur borgari,“ sagði hann.
thorgnyr@frettabladid.is
Viðskipti Hagar hafa undirritað
nýjan leigusamning við Reiti um
verslun Hagkaupa í Kringlunni.
Verslunin mun verða á einni hæð, í
stað tveggja hæða áður og mun því
minnka um 3.500 fermetra.
Efri hæð verslunarinnar verður
lokað í febrúar og mun ný verslun
verða opnuð á neðri hæð Kringl-
unnar á haustmánuðum. Þetta
kemur fram í árshlutauppgjöri Haga
sem birt var í gær.
Í árshlutareikningnum, sem er
fyrir tímabilið 1. mars 2016 til 30.
nóvember, kemur fram að hagn-
aður félagsins nam 3 milljörðum á
tímabilinu, eða 5,1 prósenti af veltu.
Það er um 200 milljónum meira en
hagnaðurinn árið á undan. Vörusal-
an nam 59,7 milljörðum og EBITDA
nam 4,58 milljörðum.
Hagar eru stærsta fyrirtækið á
matvörumarkaði, en auk Hagkaupa
rekur fyrirtækið Bónus. – jhh
Hagar minnka við sig í Kringlunni
rrými hagkaupa minnkar þegar verslunin fer á eina hæð. FréttABlAðið/ANtoN
Ferðaþjónusta Snorri Ingason,
varaformaður Félags leiðsögu-
manna, segir að það þurfi að efla
gæslu á vinsælum ferðamanna-
stöðum. Ferðamenn klifri yfir grind-
verk til að komast nær Gullfossi og
átti sig ekki á hættunni. Hann segir
að það verði slys á staðnum ef ekki
verður gripið inn í og vonast til að
nýr ráðherra bregðist við.
Undanfarið hefur verið fjallað um
hættuna í Reynisfjöru en þýsk kona
lét lífið á dögunum eftir að hún fór í
sjóinn. Ferðamenn virðast ekki fara
eftir fyrirmælum á staðnum og virða
hættuskilti að vettugi. Kallað hefur
verið eftir landvörslu á svæðinu.
Svipaða sögu er að segja af fleiri
stöðum en varaformaður Félags
leiðsögumanna segir leiðsögumenn
á landinu marga hverja sammála
um að það þurfi að efla gæslu á vin-
sælum ferðamannastöðum. Til að
mynda við Dettifoss og við hverina
við Námaskarð sé fólk að fara yfir
keðjur og reipi.
Um nokkurt skeið hafi það tíðk-
ast að ferðamenn virði ekki lokanir
göngustígs við Gullfoss til að komast
nær fossinum. Þá ganga sumir svo
langt að fara yfir keðjur og grind-
verk í nokkurra metra fjarlægð frá
fossinum.
„Hættan er náttúrulega að fólk
falli fram af brúninni. Síðan er það
grjóthrun. Það getur hrunið úr
brúninni á annan sem er að labba
niður eftir. Svo náttúrulega þegar
það er hávetur er þetta allt í ís og
fólk getur runnið ofan í fossinn.
Við höfum miklar áhyggjur af þessu.
Þetta virðist vera hjarðhegðun. Það
er einn sem fer yfir og þá vilja hinir
fara líka því þessi er að fara,“ segir
Snorri.
Snorri býst við slysum ef fólk
heldur áfram að ganga yfir hliðið.
„Við bindum vonir við nýjan ráð-
herra að það verði gerð gangskör
að því að koma upp einhvers konar
landvarðakerfi,“ segir hann – ngy
Óttast að ferðamenn fari sér að voða við Gullfoss
Fjöldi ferðamanna kemur að Gullfossi á hverjum degi. FréttABlAðið/pJetur
danMÖrk Fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu í Dan-
mörku, Jesper Zwisler, segir emb ættis-
menn fjármálaráðuneytisins hafa
gríðarleg pólitísk völd og skipta sér
af smáatriðum í öðrum ráðuneytum.
Í viðtali við danska ríkisútvarpið
segir Zwisler að þetta hafi meðal ann-
ars haft þær afleiðingar að embættis-
menn í félagsmálaráðuneytinu hafi
ekki borið upp góðar hugmyndir við
ráðherra sinn þar sem þeir hafi þóst
vera vissir um að fjármálaráðuneytið
myndi ekki samþykkja þær.
Fyrrverandi menningarmálaráð-
herra Danmerkur, Bertel Haarder,
hefur einnig gagnrýnt fjármálaráðu-
neytið fyrir afskiptasemi. – ibs
Togstreita milli
ráðuneyta
Í Kristjánsborgarhöll eru helstu valda-
stofnanirnar. Nordicphotos/GettY
sVíþjóð Dómsmálaráðherra Sví-
þjóðar, Morgan Johansson, opnar á
breytingu á lögum til að hægt verði
að dæma fleiri sem hafa í vörslu sinni
barnaklám, horfa á það og dreifa því.
Samkvæmt lögum er slíkt bannað í
Svíþjóð.
Rannsókn Sænska Dagblaðsins og
Aftonbladet leiddi í ljós að lögreglan
hafði vitneskju um að 15 þúsund Svíar
hefðu hlaðið niður efni með kyn-
ferðis brotum gegn börnum undan-
farið ár. Að mati lögreglunnar er það
einungis toppurinn á ísjakanum.
Árið 2015 voru aðeins 119 Svíar
dæmdir vegna barnakláms. – ibs
Fleiri verði
dæmdir
skagaFjÖrður Byggðarráð Skaga-
fjarðar vill að sveitarstjórinn fái fund
með Isavia til að fara yfir nauðsyn-
legan búnað og umgjörð sem þarf á
flugvellinum á Sauðárkróki til þess
að tryggja öruggt sjúkraflug.
Þá skorar byggðarráðið á ný
stjórnvöld að tryggja íbúum lands-
byggðarinnar örugga aðkomu að
eina hátæknisjúkrahúsi landsins
með opnun neyðarbrautarinnar í
Vatnsmýrinni.
„Ljóst er að með nauðsynlegri
uppbyggingu hátæknisjúkrahúss
í Reykjavík hlýtur það að vera ein-
boðið að sjúkraflugið lendi í sem
mestri nálægð við sjúkrahúsið,“ segir
byggðarráðið. – gar
Vilja öruggt flug
með sjúklinga
sauðákrókur. FréttABlAðið/GVA
1 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö s t u d a g u r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
F
-5
0
2
0
1
B
E
F
-4
E
E
4
1
B
E
F
-4
D
A
8
1
B
E
F
-4
C
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K