Fréttablaðið - 13.01.2017, Qupperneq 23
Skrifstofan
13. janúar 2017
Kynningarblað
„Múlalundur selur ekki bara möpp-
ur heldur allt fyrir skrifstofuna,“
segir Sigurður Viktor Úlfarsson,
framkvæmdastjóri Múlalundar.
Sigurður segir starfsemi Múla-
lundar standa og falla með stuðn-
ingi samfélagsins og því að ein-
staklingar, fyrirtæki og stofnan-
ir kaupi vörur af Múlalundi, þar
með talið almennar skrifstofu-
vörur. „Við erum almennt sam-
keppnishæf og stundum ódýrari
en aðrir á markaðnum. Við selj-
um eigin framleiðsluvörur, eins
og gatapoka, plastvasa, sýnapoka,
gyllingar og fleira en einnig vörur
sem við kaupum annars staðar frá
því þær eru líka mikilvægur fjár-
hagslegur styrkur fyrir starfsem-
ina. Viðskiptavinir okkar eiga al-
mennt ekki að þurfa að fara annað
eftir almennum skrifstofuvörum.“
Á Múlalundi er sífellt leitað
nýrra verkefna til að skjóta fleiri
og styrkari stoðum undir rekstur-
inn. „Við erum til að mynda opin
fyrir því að taka að okkur hluta úr
framleiðslu fyrirtækja og ýmis legt
sem kallar á mikla handavinnu. Þá
tökum við að okkur fjölbreytt verk-
efni til lengri og skemmri tíma,“
segir Sigurður og nefnir dæmi.
„Framhaldsskólar og háskólar láta
okkur framleiða fallegar kápur
utan um prófskírteini útskriftar-
nema sem gera gögnin eigulegri
og útskriftina að meiri viðburði. Þá
hefur ferðaþjónustan komið sterkt
inn með framleiðslu á upplýsinga-
möppum fyrir hótelherbergi, flott-
um kápum utan um matseðla þar
sem merki veitingastaðarins er
gjarnan þrykkt í kápuna og fleira.
Bókaforlög láta einnig framleiða
plastkápur utan um ferðabækur
og ferðakort til að auka endingu
þeirra. Öllum þessum verkefnum,
merkingum, gyllingum og meiru
til er sinnt af starfsfólki Múla-
lundar.“
Sigurður segir langtímaverk-
efni mjög mikilvæg fyrir starf-
semina. „Múlalundur framleiðir til
dæmis um hundrað þúsund sýna-
poka fyrir Landspítalann á hverju
ári. Hver sýnapoki skapar vinnu
fyrir sex starfsmenn áður en hann
fer úr húsi og er því búinn að gera
mikið mikið gagn áður en byrjað er
að nota hann á spítalanum. Annað
dæmi eru fylgigögn með greiðslu-
kortum Landsbankans sem Múla-
lundur hefur raðað í umbúðir í
mörg ár.“
Öllum mikilvægt að vinna
Á síðasta ári greiddi Múlalundur
um 100 milljónir í laun og skap-
aði vinnu fyrir rúmlega þrjá-
tíu manns með skerta starfsorku
auk þess sem aðrir fjörutíu fengu
tækifæri til að spreyta sig í fjög-
urra vikna vinnuprufum sem
hjálpar fólki að komast af stað
eftir langvarandi veru frá vinnu-
markaði.
„Múlalundur stendur sjálf-
ur undir stærstum hluta sinna
tekna sem er allt að því eins-
dæmi á vinnustofum fyrir fólk
með skerta starfsorku. Starfsem-
in stendur því og fellur með við-
skiptavinum okkar,“ segir Sigurð-
ur. „Í dag standa mörg fyrirtæki
sig vel á sviði samfélagslegrar
ábyrgðar. Einföld leið til að flétta
samfélagslega ábyrgð við dag-
lega starfsemi er að kaupa skrif-
stofuvörur og fleira af Múlalundi.
Frá árinu 1959 hefur Múlalundur
verið rekinn af SÍBS með stuðn-
ingi Happdrættis SÍBS. Þúsund-
ir hafa fengið annað tækifæri og
öðlast aukið sjálfstraust og starfs-
orku eftir störf hjá Múlalundi.
Góð samvinna er á milli Múla-
lundar og Reykjalundar, sem er
einnig rekinn af SÍBS. Þá er Múla-
lundur í samvinnu við Vinnumála-
stofnun og ræður fólk til vinnu af
biðlistum, en umsækjendur geta
þurft að bíða lengi á biðlista áður
en þeir komast að. Öll aðstaða er
til staðar til að taka á móti mun
fleira starfsfólki en aukin við-
skipti og verkefni eru forsenda
fjölgunar starfa,“ segir Sigurð-
ur og bætir við að markmið sé
að koma sem flestum áfram út á
vinnumarkaðinn.
Hjá Vinnumálastofnun eru til
staðar úrræði sem styðja fyrir-
tæki í að taka við fólki með fötlun
út á vinnumarkaðinn eftir starfs-
endurhæfingu hjá Múlalundi.
Störf á Múlalundi gefa mörgum,
sem annars væru heima aðgerða-
lausir, tækifæri til að spreyta sig
og taka þátt í að skapa verðmæti.
Virkir á vinnumarkaði
„Fólki er mjög mikilvægt að fá
að mæta til vinnu og vera virkt í
samfélaginu. Bakgrunnur starfs-
fólks Múlalundar er margvísleg-
ur og margir þurfa að takast á við
krefjandi veikindi eða fötlun, and-
lega eða líkamlega, í kjölfar slyss
eða veikinda. Máltækið „Það þarf
þorp til að ala upp barn“ á vel við
um Múlalund en starfsemin stend-
ur og fellur með viðskiptavinum
okkar þar sem hver króna skipt-
ir máli.“ Sigurður segir ánægju-
legt að hitta einstaklinga sem hafa
byggt sig upp á Múlalundi eftir
erfið veikindi eða slys og eru í
dag úti á almennum vinnumark-
aði. „Nú eru þeir fullvirkir ein-
staklingar á vinnumarkaði sem
er sameiginlegur árangur þeirra
sjálfra, Múlalundar og viðskipta-
vina.“
Sjá nánar á mulalundur.is
Ekki bara möppur á Múlalundi
Múlalundur, vinnustofa SÍBS, framleiðir og selur allt fyrir skrifstofuna. Á Múlalundi fær fólk með skerta starfsorku tækifæri til að leggja
sitt af mörkum til atvinnulífsins og skiptir stuðningur viðskiptavina þar sköpum. Múlalundur veitti rúmlega 70 manns vinnu á síðasta ári.
Múlalundur Vinnustofa SÍBS
Reykjalundur 270 Mosfellsbær Sími 562 8500
mulalundur@mulalundur.is www.mulalundur.is
Takk fyrir að versla við Múlalund
Vinnustofa SÍBS
Láttu gott af þér leiða þegar þú kaupir skrifstofuvörur
Vörur frá Múlalundi skapa störf fyrir fólk með skerta starfsorku
Allt fyrir skrifstofuna
Þú pantar og færð vörurnar sendar daginn eftir
„Máltækið „Það þarf þorp til að ala upp barn“ á við um Múlalund en starfsemin stendur og fellur með viðskiptavinum okkar,“
segir Sigurður Viktor. MynD/anTOn brinK
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
E
F
-5
E
F
0
1
B
E
F
-5
D
B
4
1
B
E
F
-5
C
7
8
1
B
E
F
-5
B
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K