Fréttablaðið - 13.01.2017, Qupperneq 24
Útgefandi | 365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24 | s. 512 5000
Ábyrgðarmaður
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
umSjónarmaður auglýSinga
Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429
Skrifstofuaðstaða fyrirtækja er
af öllum stærðum og gerðum, allt
eftir stærð og eðli starfseminnar.
Mörg sprotafyrirtæki taka fyrstu
skrefin á svokölluðum frum
kvöðlasetrum þar sem hvert og
eitt fyrirtæki hefur yfirleitt litla
skrifstofu en deilir sameiginlegri
aðstöðu með öðrum smærri fyrir
tækjum, t.d. fundaraðstöðu, eld
húsi og opnu rými. Fyrir vikið
er andinn á slíkum setrum oft
léttur og skemmtilegur þar sem
fjöldi frjórra einstaklinga safn
ast saman.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
(NMÍ) rekur nokkur frumkvöðla
setur víða um land og er elsta
þeirra og það stærsta til húsa í
höfuð stöðvum hennar í Keldna
holti í Reykjavík. Meðal þeirra
fyrirtækja sem hafa haft skrif
stofuaðstöðu þar undanfarin ár
er tölvuleikjafyrirtækið Lumenox
ehf. en framkvæmdastjóri þess
er Burkni J. Óskarsson. Lum enox
vann tölvuleikjakeppnina Game
creator árið 2011 og meðal verð
launa var skrifstofuaðstaða hjá
NMÍ í fjóra mánuði. „Við höfum
verið með skrifstofu hjá þeim
síðan þá. Það var mikið heillaspor
fyrir fyrirtækið því starfsmenn
NMÍ hafa stutt mjög vel við fyrir
tækið frá upphafi.“
Spjallað við kaffivélina
Lumenox ehf. var stofnað í kring
um framleiðsluna á tölvuleikn
um Aaru’s Awakening. „Stofnend
ur fyrirtækisins settu sér háleit
markmið strax í upphafi en það
var að gefa út leikinn á PlayStat
ion, Xbox, Nintendo og Steam.
Til að gera langa sögu stutta var
Aaru’s Awakening gefinn út á
Play Station, Xbox og Steam vorið
2015 ásamt því að Lumenox fékk
stöðu útgefanda hjá PlayStation og
Xbox. Fyrirtækið fékk einnig út
gáfuheimild hjá Nintendo, en kaus
að gefa leikinn ekki út hjá þeim því
leikurinn hentaði ekki tölvunum
þeirra.“
Fyrirtækið er með um 30 m2
skrifstofu á Keldnaholti sem er
mjög góð aðstaða að sögn Burkna.
„Í dag erum við með fimm starfs
menn á skrifstofunni hér en einn
ig með einn starfsmann með aðset
ur í Kaupmannahöfn og þrjá verk
taka sem koma inn eftir þörfum.“
Hann segir samfélagið á NMÍ
vera frábært enda sé þar að finna
alla þá aðstoð sem sprotafyrirtæki
gæti þurft á að halda. „Starfsmenn
NMÍ eru alltaf reiðbúnir að leggja
hönd á plóginn ef það er eitthvað
sem þeir geta aðstoðað Lum
enox og önnur fyrirtæki með. Við
höfum kynnst öllum þeim fyrir
tækjum sem starfa hér í húsinu og
lendum oft á spjalli við aðra frum
kvöðla og þá á spjallið sér oftast
stað við hliðina á kaffivélinni í
mötuneytinu.“
Þar sem Lumenox er eina fyrir
tækið í húsinu sem framleiðir
tölvuleiki og hin fyrirtækin eru
í ólíkum greinum er ekki beint
grunnur fyrir samvinnu milli
þeirra að sögn Burkna þótt aldrei
sé hægt að útiloka neitt. „Ég lendi
t.d. oft á spjalli við starfsmenn
Genis, sem eru hérna í húsinu líka,
um hvað þau eru að gera og það
er kærkomin breyting frá því að
hugsa bara um vandamál sem þarf
að leysa í tölvuleikjagerð.“
Allir leggja hart að sér
Kostir þess að vera með aðstöðu
eru margir að sögn Burkna.
„Maður finnur mjög vel fyrir því
að fyrirtækin á setrunum eru
mjög einbeitt og leggja hart að sér.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá er
mjög gefandi að vera í samfélagi
þar sem allir eru að reyna að búa
til eitthvað nýtt og eltast við sína
eigin sýn og hugmyndir.“
Ævintýrin halda áfram á nýju
ári og margt spennandi er fram
undan að sögn Burkna. „Þegar
Aaru’s Awakening var tilbúinn og
útgáfuferlið hófst, sem getur verið
mjög langt, fór fyrirtækið af stað
með næstu afurð en það er partí
leikurinn YamaYama. Leikurinn
var gefinn út á Steam vorið 2016
og verður svo gefinn út vorið 2017
á PlayStation 4. Við fengum styrk
frá Tækniþróunarsjóði haust
ið 2015 til framleiðslu á þriðja
leik fyrirtækisins og höfum við
verið að vinna að honum af full
um þunga síðan þá. Gera má ráð
fyrir að markaðssetning leiksins
hefjist haustið 2017 og stefnt er að
útgáfu hans haustið 2018.“
Þegar öllu er á
botninn hvolft þá
er mjög gefandi að vera í
samfélagi þar sem allir
eru að reyna að búa til
eitthvað nýtt og eltast
við sína eigin sýn.
Burkni J. Óskarsson
burkni j. ólafsson er framkvæmdastjóri lumenox ehf. sem er með aðstöðu í frumkvöðlasetri nmÍ . mynd/StefÁn
Partíleikurinn yamayama var gefinn út á Steam vorið 2016 og verður gefinn út
vorið 2017 á PlayStation 4.
gefandi samfélag
Vinnuaðstæður á frumkvöðlasetrum eru iðulega ólíkar þeim sem eru á
hefðbundnum skrifstofum. Þar hafa sprotafyrirtæki aðstöðu og deila sam eigin legri
aðstöðu með öðrum fyrirtækjum. Eitt frumkvöðlasetranna er í Keldnaholti í
Reykjavík þar sem tölvuleikjafyrirtækið Lumenox hefur verið síðan árið 2011.
Starri freyr
jónsson
starri@365.is
Það hefur ýmsa kosti í för með sér
að taka með sér nesti í vinnuna í
stað þess að kaupa sér mat í mötu
neytum, sjoppum eða á veitinga
stöðum. Það er yfirleitt hollara og
betra fyrir budduna.
Það reynist hins vegar
mörgum erfitt að
temja sér þann sið
að hugsa fyrir því
að taka með sér
mat í vinnuna
en þá er mikil
vægast að
skipuleggja
fyrirfram hvað
skuli borða.
Þrír kostir eru í
boði þegar kemur að
því að undirbúa máltíð
ir sem taka á með í vinnuna; að
elda og pakka öllum máltíðum vik
unnar um helgar, útbúa alltaf mat
inn kvöldið áður eða vakna fyrr á
hverjum morgni til að græja nest
ið. Það er misjafnt hvað hentar
hverjum og einum og þarf fólk bara
að prófa og sjá hvað gengur best
fyrir það. Eitt gott ráð þegar nest
ið er útbúið kvöldið áður er að gera
það um leið og verið er að elda
kvöldmatinn, það hjálp
ar til við að festa
vanann í sessi og
minnkar upp
vask og þrif.
Það er
sniðugt að
nota afganga
frá kvöld
matnum sem
nesti en það
getur orðið leiði
gjarnt að borða allt
af sama matinn tvisv
ar í röð. Þá er góð hugmynd
að breyta kvöldmatnum örlítið, til
dæmis að setja kjöt og grænmeti
í tortillu eða bæta grænmeti við
kjötafganga og búa til salat.
nestið gert fyrirfram
Rannsóknir sýna að blóm og
plöntur á vinnustað hafa góð
áhrif á framleiðni og líðan starfs
fólks. Það er kannski ekki að
undra enda eyðir skrifstofufólk
stærstum hluta dagsins innan
dyra og þykir því mörgum gott
að gæða nærumhverfið smáveg
is lífi. Fyrir því eru þó ýmsar fleiri
ástæður.
Plöntur lífga sjónrænt upp á
umhverfið og gera það vistlegra.
Er það upplifun bæði starfs
fólks og viðskiptavina. Sýnt hefur
verið fram á að framleiðni starfs
fólks er meiri þar sem blóm eru
til staðar og viðskiptavinir fá já
kvæðari ímynd af starfseminni,
hver svo sem hún er.
Plöntur eru jafnframt taldar
eiga þátt í því að draga úr streitu
á meðal starfsfólks og skerpa at
hyglina. Þá geta þær haft góð
áhrif á loftið sem getur verið
ansi staðið og innihaldið rykagn
ir, mengun sem berst að utan og
myglu. Plönturnar drekka meðal
annars í sig koltvísýring og koma
jafnvægi á rakastig andrúmslofts
ins. Að endingu hefur verið sýnt
fram á að plöntur á vinnustað
bæta hljóðvist.
Blóm BætA og kætA
Stattu upp úr stólnum á nýju ári !
Hæðarstillanleg skriborð á tilboði í janúar
89,900 m/vsk
• Stillanleg hæð 65-125cm
• 100 kg lyftigeta
• Borðplata 160 -200cm , breidd 80cm
• Stell hvítt (ral 9016) eða silfur grátt (ral 9006)
• Borðplata harðplastlögð eða spónlögð eik.
Trésmiðja GKS
Funahöfði 19
110 Reykjavík
577 1600577 1600
www.gks.is
Opið alla virka daga
milli 8 - 17.
Verið velkomin!
SkrifStofan kynningarblað
13. janúar 20172
1
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:5
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
E
F
-5
A
0
0
1
B
E
F
-5
8
C
4
1
B
E
F
-5
7
8
8
1
B
E
F
-5
6
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K