Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 05.11.1999, Síða 14

Víkurfréttir - 05.11.1999, Síða 14
Ur safni Heimis íslandsmeistarar Keflavtar (handboltakvenmí2.mW VORUM GÓÐAR! Myndin hér að ofan er af Islandsmeisturum IBK í 2. deild í meistaraflokki kvenna árið 1975. Eins og sjá má eru þarna margar hörku handholtaskvísur. Ein þeirra er Jóhanna Reynisdóttir (fjórða frá vinstri í efri röð) en hún er núna sveitarstjóri í Vatns- leysustrandarhreppi. „Við vorum bara nokkuð góðar man ég. Við unnum 2. deildina þetta árið undir stjórn þessa þjálfara sem ég man núna ekki hvað heitir. En hann náði öllu út úr okkur og þetta var rosalega gaman“, sagði Jóhanna fór og leit á verðlaunapen- ingasafnið sitt þegar blaða- maður helgarblaðs VF hringdi í hana. „Jú, þetta var 1975“, sagði hún og rakst í leiðinni á gullpeninga ineð 3. flokki Keflavíkur sem varð Is- landsmeistari árið 1971 og annan pening í 2. deild árið 1977. „Eftir þetta góða ár með meistaraflokki 1975 fórum við nokkrar hingað og þangað. Eg fór í bæinn og byrjaði að leika með Haukum og einn gullpen- ingurinn er einmitt frá því þegar við urðum meistarar í 2. deild. Við fengum nokkr- ar tilboð um að æfa með unglinga- og kvennalands- liðinu, ég, Gulla Jóns og Grethe Iversen ef ég man þetta allt rétt. „Eg spilaði hægra megin fyrir utan“, sagði Jóhanna að lokum þegar hún var spurð út í stöðu sína á vellinum. Þetta var í þá gömlu góðu hand- boltadaga í Keflavík. Nú er handbolti ekki á dagskránni á Suðurnesjum... Rifjað upp í tilefni 70 ára afmælis Keflavíkur: Mionamærinsamír í Keflavík Margnefnd gullöld Keflvíkinga í knattspyrn- unni var fyrir margra hluta athyglisverð ekki síst þegar hlutirnir eru bornir saman við dag- inn í dag. Eitt af þeim atriðum er aðsókn og innkoma á leikjum. I gamalli úrklippu úr Vísi síðan 1971 er sagt frá því að tíu þúsund manns hafi sótt hreinan úrslita- leik um íslandsmeistaratitil- inn milli Keflavíkur og og IBV á Laugardalsvellin- um. Það mun enn vera mesti áhorfendafjöldi sem sótt hefur íslenskan knattspyrnuleik. Meira að segja meistarar KR í ár slá vindhögg í saman- burði við aðsókn að þess- um leik. Tekjurnar af um- ræddunt leik ÍBK og ÍBV voru um 300 þús. kr. fyrir hvort félag. Nokkrum dögum fyrir leikinn við IBV lék Keflavík við stórliðið Tottenham. A þann leik mættu ellefu þúsund manns og greiddu mun hærri aðgangseyri en gegn IBV eða liðlega helmingi hæn i. Tekjumar þessa einu viku hjá Keflvíkingum voru því um ein milljón króna. Það samsvarar um 4 millj- ónum króna á núvirði. I Vísisfréttinni segir að upp- hæð sem þessi væri óþekkt hjá íþróttafélögum hér á landi, því flest þeirra, a.m.k. Reykjavíkurfélög- in og flest þau minni út á landsbyggðinni berjast í bökkum fjárhagslega. En „milljónamæringamir" í Keflavík þurfa þess ekki á næstunni", segir í lok grein- ar sem Kjartan L. Pálsson skrifaði. Þrír flugvélafarmar á leikinn við Tottenham Þegar enska stórliðið Tottenham kom til íslands til að leika við Keflavík árið 1971 fylgdu því margir áhagendur frá Englandi eins og venja er hjá „Tjöllunum“. I gamalli úrklippu er getið rnikils áhuga Kefl- víkinga á að fylgja sínu liði til Lundúna en hátt á þriðja hundruð manns fóru til Englands á leikinn, - í þremur flugvélaförmum. Þegar þetta er rifjað upp með Hafsteini Guðmundssyni, segir hann að það haft verið mikil ásókn í þess- ar þrjár flugferðir sem famar vom til Lundúna gagngert út af leiknum við Tottenham. „Við hefðum getað selt mun fleiri sæti. Við fengum þrjár leiguferðir og fylltum þær allar“. BYGGÐASAFN SUÐURNESJA/HEIMIR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.