Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 05.11.1999, Side 24

Víkurfréttir - 05.11.1999, Side 24
VIKURFRETTA Brenton Birmingham/ bandaríski körfuknattleiks- maðurinn sem lék með IÍMFN í fyrra er að gera góða hluti með Grindvíkingum: Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Brenton Birmingham fer mikinn þessa dagana með ósigruðu liði Grindavíkur í Epson-deildinni. Hann kom til liðsins eftir að „litlu mótunum“ lauk og hefur skorað u.þ.b 37 stig að meðaltali í leikjum liðsins. Svo mikil áhrif hefur piltur haft á lið Grindvíkinga að þjálfari KR sá sig knúinn til að breyta spádómum sínum um röð efstu liða í deildinni, eftir að hafa tapað fyrir Grindavík tvisvaríröð. Ekki óvænt Þessi frammistaða Brentons kemur ekki öllum á óvart því hann lék hér einnig á síðasta tímabili og varð þá bikarmeist- ari með fimasterku liði Njarð- víkinga. VF ákvað að komast nær pilti og skoða fortíð þessa geðþekka leikmanns nánar. Bronxbúi með ræturá Jamaíka og Kúbu „Ég er fæddur í Bronx, New York, 29. nóvember 1972 og verð því 27 ára í þessum mán- uði. Ég er yngstur 5 systkina, á þrjá bræður og eina systur. For- eldrar mínir Lennel og Ynez em bæði komin á eftirlaun en þeim á allt að þakka. Þau ken- ndu mér að vera sjálfstæður og virða hvem einstakling sem á götu minni verður.“ Körfuknattleiksferillinn helg- aður látnum þjálfara „Ég gekk í Brooklyn Technical High School og þótti svona allt í lagi leikmaður og náði því að skora 20 stig að meðaitali á lokaárinu. Ég fékk litla athygli frá háskólaliðunum, þótti of lítill í framvörðinn og ekki nægilega tæknilega útbúinn til að vera skotbakvörður. Þjálfari minn, James Sulliv- an, tók mig undir sinn væng og var mér fyrirmynd og föð- urímynd á vellinum. Hann fylgdi mér til Brooklyn College þar sem ég lék í tvö ár. Þ a ð a n f ó r ég til Manhattan háskólans sem boðið hafði mér skólastyrk. James Sullivan lést skömmu- síðar og ákváð ég að helga honum körfuknattleiksferil minn og hugsa til hans í hvert skipti sem ég sem ég undirbý mig fyrir körfuknattleiksleik." BA prófið mesta afrekið „Ég get ekki annað sagt en að háskólaferillinn hafi verið góð- ur og árin tvö hjá Manhattan skiluðu 42-18 árangri í sigmm og töpum og tókum þátt í loka- keppni NCAA á seinna ári mínu. Mikilvægast var þó að ég útskrifaðist með BA próf í félagsfræði." Alþjóðlegi ferillinn hófst í Finnlandi „Fyrsta liðið í Evrópu sem ég lék með var Tapiola Honka í Finnlandi 1995, mér gekk vel og hafði gaman af. Þá lék ég á Kýpur sumarið 1998 en fann mig ekki þar og kom síðan til Njarðvíkur." Hef eignast fjölda vina á íslandi „Að færast á milli staða, svona eins og farandverkamaður, er erfitt að ákveðnu leyti. Maður kynnist fólki og eignast vini en þarf síðan að kveðja, kannski fyrir fullt og allt. Mér finnst afar erfitt að kveðja góða vini. Því miður hef ég ekki haldið sambandi við erlenda vini mína, þ.e.a.s þar til ég kom til Islands. Veðrið hér mætti vera betra og kuldinn á ekkert sér- staklega vel við mig en fólkið í landinu bætir það upp og rúm- lega það.“ How do you like lceland? ,,Ég hef oft verið spurður hvað mér líkar best við ísland og það er enginn vafi að það er fólkið hér sem heillar mig. Flestir tala ensku og ég hef ekki fundið fyrir neinu nema velvilja hvert sem ég hef farið, ég hef meira að segja gaman af bullinu í leikmönnum þegar mikið ligg- ur við á vellinum. Það er engin spuming að hér hef ég eignast vini sem munu endast mér til æviloka. Þeir em ekki bundnir körfunni. Hjónin Jónsi og Þór- unn eru mér jafnkær nú og í fyrra þótt harðir Njarðvíkingar séu. Þau tóku mig inn á heimili sitt eins og ég væri einn úr fjöl- skyldunni. Þá á ég mér tvo vini sem ég veit að stæðu við hlið mér sama hvað gengi á. Annar þeirra, Elli, er Keflvíkingur en þið vitið hvemig það er - eng- inn er fullkominn. Annars verð ég að segja að Njarðvíkingar hafa sýnt mér mikla hlýju í ár þótt ég hljóti að teljast til óvin- anna og finnst mér það sýna ís- lendinga í hnotskum. Þeir sjá ekki aðeins leikmanninn Brent- on Birmingham heldur líka manneskjuna Brenton Birmingham sem gerir vemna hér ógleymanlega." Einhleypur aftur Brenton er með myndarlegri mönnum og skyldi engan undra þótt kvenfólkið flykktist um hann. Sjálfur segist hann hinn rólegasti í þessum málum. „Ég er einhleypur á ný eftir að ég og kærasta mín til fjögurra og hálfs árs skildum skiptum í sumar. Að verða einn aftur eftir langt samband var andlega erfitt og hef ég ekki í hyggju að

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.