Víkurfréttir - 05.11.1999, Side 29
Helgarblað Víkurfrétta er á menningarlegum
nótum. Blaðamaður okkar hefur verið að heim-
sækja listakonur á Suðurnesjum. I blaðinu í dag
tökum við hús á listakonunni Sossu sem hefur
var að ljúka sýningu í Danmörku. Önnur lista-
kona úr Keflavík, sem einnig er þekkt á
alþjdðavettvangi, Halla Har er með sýningu á
Akranesi sem lýkur nú um helgina. Við birtum
viðtal við Höllu í næstu viku, auk þess að skoða
annars konar hstsköpun á Suðurnesjum.
sumar og var að vinna þar. Ein-
hver galleríeigandi komst á
snoðir um að ég væri þama og
kom og skoðaði verkin mín. I
framahaldinu bauð hann mér
að taka þátt í þessari samsýn-
ingu. En það er náttúrulega
ekkert víst hvort Portúgalimir
fíli myndirnar mínar þó Dan-
irnir geri það”, segir Sossa
hógvær.
Undarleg samsýning
Þetta mun ekki vera í fyrsta
sinn sem sem Sossa sýnir í
Noregi því hún tók þátt í sam-
sýningu í litlum bæ nálægt
Stavanger árið 1997. „Á þeirri
sýningu sýndu listamenn frá
öllum heimshornum, m.a.
Rússlandi, Kóreu, Lettlandi og
tveir íslendingar auk mín. Þetta
var sú undarlegasta sýning sem
ég hef nokkum tíma tekið þátt
í. Þetta var samt ofsalega gam-
an. Þarna var hægt að virða
fyrir sér allt frá flottum hand-
máluðum silkifótum frá Kóreu
og yfir í framúrstefnulega leir-
list.” Næsta sýning Sossu í
Noregi verður ekki lík þessari
eftirminnilegu samsýningu.
„Eg er núna að fara að sýna í
fallegu galleríi sem stendur við
aðalgöngugötuna í Osló, Karl-
Johan. Gallerýið er í eigu ís-
lenskrar konu en hún rak áður
gallerí í Reykjavík.”
Nauðsynlegt að skipta um
umhverfi
Sossu finnst alveg nauðsynlegt
að skipta um umhverfi af og til
enda segist hún vera búin að
mála alla Keflvíkinga fyrir
löngu síðan. „Myndimar á sýn-
ingunni í Danmörku em eigin-
lega ferðasaga, þ.e. myndir frá
tíma mínum í Portúgal síðasta
sumar. Myndir af fólki sem ég
upplifði og sá. Ef ég fer í ferða-
lag þá er ég alltaf með skissu-
blokkina meðferðis. Ég er með
taumlaust hugmyndaflæði þeg-
ar ég er á ferðalögum. Ég er
reyndar alveg ofboðslega upp-
tekin af fólki dags daglega og
samskiptum manna”, segir
Sossa og bætir því við að hún
sé þegar búin að panta húsið
sem hún bjó í á Portúgal fyrir
næsta sumar.
Málar á Saab-bifreið
Sossa er kona sem finnst alltaf
gaman að prófa eitthvað nýtt.
Um miðjan janúar hyggst hún
taka þátt í mjög svo óvenjulegu
verkefni í bænum Köge í Dan-
mörku. Þar stendur til að opna
sölu- og sýningarsal fyrir Saab-
bifreiðar. ,,Ég var beðin um að
mála á bfl, málverk eins og ég
er vön að mála. Gestir geta
fylgst með mér vinna og bfllinn
á svo bara að vera sýningar-
gripur á staðnum til að trekkja
að”, segir Sossa og er greini-
lega sftennt yfir að fá að takast
á við þessa áskomn. Það verð-
ur gaman að sjá hvemig „kon-
umar hennar Sossu” taka sig út
á Saab bflnum.
Viðtal: Silja Dögg
Myndir: Úr einkasafni
SOSSA
GALLERl
SCT. GERTRUD
15. OKT. ' 4. NOV.
1999
Sossa settist út í horn í sýningarsalnum fyrir helgar-
blaðið og brosti framan í myndavélina í leiðinni.
Meðal gesta á sýningu
Sossu voru margir
Suðurnesjamenn. Hár má
sjá Rúnar Hannah og í
bakið á Ösp Birgisdóttur
en Rúnar er í úrsmíðanámi
í Danaveldi.
r< r
Bjargey Einarsdóttir og Logi
Þormóðsson eru mikilir vinir
istakonunnar og aðdáendur
hennar. Þau voru að sjálfsögðu
í Kóngsins Köbenhavn.