Víkurfréttir - 05.11.1999, Blaðsíða 31
Leikfélag Keflavíkur hefur nýtt leikár
með skemmtilegri syningu í
Frumleikhúsinu:
OLIVER
TWIST
I ,,FJÖLNOTA“ HÚSI
Síðasta sunnudag gerði ég mér
ferð í Frumleikshúsið okkar
ásamt bömunum mínum til að
upplifa söngleikinn þekkta um
Oliver. Ég vil kalla þettaupplif-
un því það fylgir því alltaf
sérstök stemning að fara í
leikhús, finna sæti, koma böm-
unum fyrir, taka upp
hávaðalaust sælgæti og bíða
eftir að ljósin dofni og töframir
birtist á sviðinu. Það getur
reynst erfitt að útskýra þessi
hughrif en börnin eiga ekki
erfitt með að tjá hug sinn og
þegar ég spurði þau hvernig
þeim hefði þótt sýningin þá
stóð ekki á svari: Bara gaman!
Þegar ég fer í leikhús að sjá
bamaleikrit þá finnst mér ekki
síður gaman að fylgjast með
viðbrögðum barnanna við
sýningunni og er það oft sýn-
ing út af fyrir sig að sjá þau lifa
sig inn í atburðarásina. Þannig
var það á sýningu Leik-
félagsins að bömin vom hug-
fangin allan tímann þó aðeins
hafi dregið af yngstu leikhús-
gestunum þegar leið á sýningu-
na. Fleildarsvipurinn á
sýningunni er nefnilega mjög
skemmtilegur. Sviðsmyndin er
mjög góð og vel gengur að
skipta úr einu umhverfi í annað
þannig að trúverðugt sé.
Búningar og gervi öll eru
bráðskemmtileg þannig að ekki
er hægt að kvarta undan útliti
sýningarinnar. Sveindís
Valdimarsdóttir hafði yfirum-
sjón með búningahönnun og er
það einstaklega vel til fundið
hjá henni að virkja nemendur í
Fieiðarskóla til búningasaums.
Leikhópurinn samanstendur af
35 unglingum á öllum aldri þó
bróðurparturinn sé yngri en 18
ára. Það eru einmitt ungu
krakkarnir sem standa sig
sérstaklega vel þó þau séu mis-
langt komin í að þróa leikhæfi-
leika sína. Krakkarnir unnu
einstaklega vel saman í öllum
hópatriðum og leystu þau erfíð
verkefni sem fylgja leikhúsi
þannig að ekki er annað hægt
en að dást að. Þau gerðust
sviðsmenn, söngvarar og
dansarar eins og þetta væri
þeim alvanalegt.
Eldri unglingar leikfélagsins
stóðu sig einnig með prýði og
má þar nefna Einar Lars sem
fór á kostum sem Hr.
Sowerberry og söng lag
útfararstjórans á einstæðan hátt,
því söngur er ekki sterka hlið
þessa skemmtilega leikara.
Aftur á móti er söngur Jóns
Marinós mjög traustur og einn-
ig sýnir hann frábæra takta í
hlutverki Fagins.
Söngur skipar náttúrulega
stóran sess í þessari sýningu og
því reynir mjög á alla þátttak-
endur í söng. Einar Örn sem
sinnir undirleik í sýningu sá
einnig um söngstjóm og þar er
hann á heimavelli og hefur tek-
ist að ná ótrúlega miklu út úr
hóp sem ekki hefur haft mikla
söngþjálfun hingað til. Sönglög
Lionels Barts eru allt í senn,
falleg, skemmtileg, sorgleg og
sérstaklega erfið í söng, þannig
að allir smáhnökrar eru fýrirge-
fanlegir. Það sem vakti þó
sérstaklega athygli mína var
hópsöngurinn sem tókst oftast
með miklum ágætum.
Leikfélaginu og leikstjóranum
Þresti Guðbjartssyni hefur tek-
ist að virkja unglingana í
Reykjanesbæ til að setja upp
sýningu sem þau geta verið
stolt af. Þau hafa leyst það
erfiða verkefni að setja upp
söngleik með þeim hætti að
atvinnuleikhúsin gætu ýmislegt
lært af heimsókn í Frum-
leikhúsið.
Að lokum má segja að
Leikfélag Keflavíkur sé á réttu
róli með að fá ungu kynslóðina
til að taka þátt í uppsetningu
leikrits því fátt veit ég sem
reynir meira á hug og hönd. 1
leikhúsinu læra krakkarnir að
vinna saman, muna texta,
samhæfa hreyfingar á sviði,
taka tillit til annarra, syngja,
dansa, smíða, sauma, setja upp
ljós, mála og svo mætti lengi
telja. Þannig ef þetta er ekki
fjölnota hús þá veit ég ekki
hvað er!
Afram leikfélagið!
Baldur Guðmundsson
elgar
SMAAUGLYSINGAR
TIL LEIGU
4ra herb.
efri hæð og 3ja herb. íbúð í
Keflavík. Lausar nú þegar. Uppl. í
síma 862-6343 og 421-6343.
Rúmgðð 3ja herbergja íbúð
til sölu eða leigu í Sandgerði.
Uppl. í síma 423-7643 og 899-
8046.
ÓSKAST TIL LEIGU
2- 3ja herb. íbúð
óskast í Keflavík eða Njarðvík.
Öruggar greiðslur í gegnum
greiðsluþjónustu, góð umgeng-
ni. Uppl. í síma 864-5469 og
421-5154.
Vantar íbúð strax.
Reyklaus og reglusamur maður
með öruggar greiðslur og góða
umgengni. Uppl. ísíma 698-
7629.
3- 4ra herbergja
sérhæð eða einbýlishús með bíl-
skúr eftir 10. jan. 2000. Tilboð
leggist inn á skrifstofu
Víkurfrétta merkt öruggar
greiðslur.
TIL SOLU
Amerísk Cocer Spaniel tík
sjö mánaða svört/tan er meö
mjög góðan sýningadóm frá
HRFI. Uppl. ísíma 898-8126.
Vegna flutnings
til sölu fallegt hjónarúm með
áföstum náttboröum og lýsingu,
nýjar springdýnur, mjög gott
verð. Uppl. í síma 421 -2317 eða
698-2817.
Gömul þvottavél
í góðu lagi, fæstfyrir lítið. Uppl. í
síma 869-9693.
Mersedes Benz 230 E
árg '92 svartur metalic ekinn
159 þúsund km. meö rafmagns
topplúgu. Einn eigandi. Álfelgur
með sumardekkjum og vetrar-
dekk á stálfelgum og margt
fleira. Uppl. ísíma 862-3015.
Amerísk Cocker Spaniel tík
sjö mánaða svört/tan er með
mjög góöan sýningadóm frá
HRFI. Uppl. ísíma 898-8126.
Zanussi Frystiskápur
og isskápur 60cm x 210cm ca
10 ára gamlir verð 15.000,-
hvor. Uppl. í síma 421-6020 og
868-8262.
Tilboð óskast
í Izuzu dísel jeppa 1984
skoðaður 00, þarfnast aðhlyn-
ningar. Uppl. í sima 697-5066
eftir kl.18.00 í síma 423-7990.
Hjónarúm
160x200cm. sem nýtt. Uppl. í
síma 855-4150.
Furu sófasett
2+1 +1. Bára þvottavél selst
ódýrt. Uppl. í síma 421-6979.
ÓSKAÐ EFTIR
Vantar langan Suzuki Fox
breittan eða óbreittan. Uppl. í
síma 896-9300 fyrir kl.20.00 og
eftir kl.20.00 sími 421-5613.
Eldavél
Uppl. ísíma 421-2467.